Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Side 17
SVEITARST JÓRNARMÁL
15
Samþykkt fyrir Æskulýðsráð Reykjavíkur.
SKULÝÐSRÁÐUM hefur nú verið
komið á fót í mörgum kaupstöðum
og kauptúnum. En verksvið þeirra liefur
óvíða verið afmarkað. Áhöld eru um, hversu
víðtæk starfsemi æskulýðsráða skuli vera,
sérstaklega ef þau þykja taka upp sömu
störf og starfandi æskulýðsfélög liafa með
höndum. Markmið þeirra mun þó umfram
allt annað vera, að ná til þeirra unglinga,
sem ekki taka þátt í neins konar félagslífi
og beina athygli þeirra að heilbrigðu æsku-
lýðsstarfi. Annað er það, sem vafa hefur
valdið, og hefur ntisjafnlega skipast eftir
stöðum, og það er, hvernig æskulýðsráð
skuli skipað. Hvort sveitarstjórn kjósi ráð-
ið eða hvort starfandi æskulýðsfélög tilnefni
fulltrúa til starfa í því að einhverju leyti.
Nú hefur borgarstjórnin í Reykjavík, sem
l'rumkvæði hafði að stofnun æskulýðsráðs á
sínum tíma, gert samþykkt um æskulýðs-
ráð hjá sér, og mætti gjarna hafa það til
hliðsjónar, þegar gerðar eru slíkar sam-
þykktir annars staðar. Þykir því rétt, að
birta samþykktina hér í heild. Fer hún hér
á eftir:
SAMÞYKKT
fyrir Æskulýðsráð Reykjavíkur
1. gr.
Æskulýðsráð Reykjavíkur fer í umboði
borgarráðs með stjórn æskulýðsmála, ann-
arra en íþróttamála, eftir því sem ákveðið
er í samþykkt þessari og með þeim hætti,
sem þar er mælt fyrir.
2. gr.
Æskulýðsráð er svo skipað, að í því eiga
sæti sjö menn. Borgarstjóri eða fulltrúi,
sem hann skipar í sinn stað, fræðslustjóri
eða fulltrúi, sem hann skipar í sinn stað,
og fimm menn kosnir hlutfallskosningu af
borgarstjórn á ári hverju. Borgarstjóri eða
fulltrúi hans gegnir formennsku, og vara-
formaður skal skipaður af honum. Enn
fremur sitja fundi æskulýðsráðs með mál-
frelsi og tillögurétti piltar og stúlkur á aldr-
inum 16—25 ára, sem verið hafa þátttakend-
ur í starfsemi ráðsins. Þau skulu skipuð af
æskulýðsráði til eins árs í senn að fengnum
tillögum framkvæmdastjóra ráðsins.
3. gr.
Fundi í æskulýðsráði skal a. m. k. lialda
einu sinni í mánuði, og situr framkvæmda-
stjóri ráðsins þá fundi. Ráðið skal halda
gerðabók og senda eftirrit fundargerða til
borgarráðs jafnóðum.
4. gr.
Æskulýðsráð liefur það lilutverk að vinna
að eflingu félags- og tómstundaiðju meðal
æskufólks í Reykjavík og hafa um það sam-
vinnu við þá aðila, sem um slík mál fjalla,
og vera þeim til aðstoðar og leiðbeiningar.
Æskulýðsráð skal á hverju hausti gera starfs-
áætlun, og skal við undirbúning hennar leit-
að eftir starfsáætlunum annarra aðila, sem
æskulýðsstarf hafa með höndum. Að öðru
leyti eru verkefni ráðsins sem hér segir:
a. að vera borgaryfirvöldum, eftir því sem
þau óska, til ráðuneytis um æskulýðsmál,