Sveitarstjórnarmál - 01.12.1963, Page 30
28
SVEITARSTJ ORNARMAL
f'--------------------------------V
TRYGGINGATÍÐINDI
___________—-----------------------
IÍVgjöld til atvinnuleysistrygginga 1964.
Iðgjöld atvinnurekenda til atvinnuleysis-
tryggingasjóðs árið 1964 hafa verið ákveðin.
Verður vikugjaldið kr. 13.00, en var kr.
11.50 árið 1963. Gjaldið ákvarðast fyrir
eiLt ár í senn og miðast við almennan dag-
vinnutaxta Dagsbrúnarverkamanna (nemur
1% af launum fyrir 48 stunda vikn) árið á
undan.
Úr reikningum atvinnuleysistryggingasjóðs.
Samkvæmt reikningum atvinnuleysis-
tryggingasjóðs fyrir árið 1962 voru tekjur
sjóðsins það ár sem hér segir:
Iðgjöld atvinnurekenda . . 14.216 þús. kr.
Framlag sveitarfélaga .... 14.392 — —
Framlag ríkissjóðs ......... 28.784 — —
Vextir ..................... 24.730 - -
Samtals 82.122 þús. kr.
Útgjöld sjóðsins voru dagpeningar, 628
J)ús. kr., og kostnaður 978 Jdús. kr. Aukn-
ing höfuðstóls nam Jjví 80.516 |>ús. kr. Var
höfuðstóllinn 318.5 millj. kr. í árslok 1961,
en 399.0 millj. kr. í árslok 1962. Mun
hann nema um 500 milljónum króna í árs-
lok 1963.
Samið um greiðslur til héraðslækna.
Svo sem frá var greint í 2. hefti 1963, voru
Jjeir læknasamningar, sem sagt hafði verið
upp frá 1. apríl s. 1., framlengdir um eitt
ár með Jjeirri breytingu, að greiðslur
hækkuðu um 5.8% 1. apríl, og enn fremur
skyklu greiðslur breytast á ný 1. október
eftir umsömdum reglum. Hækkunin 1. októ-
ber nam 13.2%, og eru því greiðslur nú
19.8% hærri en í marzlok 1963.
Samningur Læknafélags íslands og Trygg-
ingastofnunarinnar um greiðslur til héraðs-
lækna gilti til 1. október 1963. Hinn 29.
nóvember s.l. var undirritað samkomulag
um framlengingu samningsins til 1. apríl
1964 með Jæim meginbreytingmn, að
greiðslur hækka yfirleitt um 19.8% og yfir-
vinnuálag hækkar úr 50% í 60% og greið-
ist á tímabilinu kl. 18—8 í stað kl. 19—8.
Daggjöld sjúkrahúsa hækka.
Hinn 1. janúar 1964 liækkaði daggjald
Landspítalans og fæðingardeildar Landspít-
alans úr 210 krónum í 300 krónur á dag,
og daggjöld ríkishælanna úr 150 krónum í
200 krónur.
í sambandi við breytingar og umbætur,
sent gerðar hafa verið á Reykjalundi í Jjví
skyni að setja Jjar upp æfingadeild, sem
nú er tekin til starfa, hefur tryggingaráð
samþykkt að heimila sjúkrasamlögum að
greiða allt að daggjaldi Landspítalans fyr-
ir allt að 6 vikna dvöl á æfingadeildinni.
Talið er, að lengri dvöl á kostnað samlaga
eigi að vera í samráði við og eftir ákvörðun
trúnaðarlæknis samlags.
Ný lög um Lífeyrissjóð barnakennara.
Aljiingi samþykkti fyrir jólin ný lög um
Lífeyrissjóð barnakennara. Eru þau hlið-
stæð lögum Jjeim um Lífeyrissjóð starfs-
manna ríkisins, sem samþykkt voru á síð-
astliðnu vori og miðast m. a. við, að sjóð-
félagar fái full réttindi hjá almannatrygg-
ingum frá 1. janúar 1964.