Sveitarstjórnarmál - 01.06.1968, Page 32
AÐALFUNDUR í
REYKJANES-
KJÖRDÆMI
ASalfundur Sambands sveitar-
félaga í Reykjanesumdæmi var
haldinn í Kópavogi laugardaginn
30. marz s.l. Á fundinum voru full-
trúar frá 12 af 15 sveitarfélögum í
umdæminu, auk rnargra sveitar-
stjórnarmanna annarra. Fundar-
stjóri var Jón M. Guðmundsson,
oddviti Mosfellshrepps.
Formaður sambandsins, Hjálmar
Ólafsson, bæjarstjóri, flutti skýrslu
stjórnar og gerði þar grein fyrir
gangi mála á liðnu starfsári. Stjórn-
in hafði haldið 11 bókaða fundi.
Barnsmeðlög
Formaður ræddi í skýrslu sinni
m.a. um innheimtu barnsmeðlaga
og skýrði frá því, að gerður hefði
verið samningur ntilli sveitarfélag-
anna í umdæminu og Reykjavfkur-
borgar þess efnis, að innheimtu-
deild borgarinnar taki að sér að
innheimta endurkræfan barnalff-
eyri fyrir þau sveitarfélög í um-
dæminu, sem þess óska.
Skóli í Krísuvík
Formaður skýrði frá undirbún-
ingi að stofnun skóla í Krísuvík fyr-
ir börn, sent búa við félagslega erf-
iðar aðstæður. Skólahús hefur ver-
ið teiknað, sem rúma á 40—50 börn.
Gert er ráð fyrir, að skólahúsið
verði sameign ríkisins og samtak-
anna, svo og Vestmannaeyjakaup-
staðar, og að sveitarfélögin annist
skólahald í 8 mánuði ársins, en
4 mánuði verði rekið þar sumar-
dvalarheimili á vegum Sumarbúða-
nefndar Þjóðkirkjunnar í Kjalar-
nessprófastsdæmi, en það nær einn-
ig yfir Vestmannaeyjar.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Skólanefnd fyrir þennan fyrir-
hugaða skóla starfaði á árinu. I
hcnni eru Flelgi Jónsson, yfirkenn-
ari í Hafnarfirði, Karl Guðjóns-
son, fræðslufulltrúi, Kópavogi og
Ragnar Guðleifsson, bæjarfulltrúi,
Keflavík. Fyrirhugað er, að skóla-
luisið verði 4100 rúmmetrar að
stærð. Áætlað kostnaðarverð um
10 milljónir.
Hagfræðiathugun
Formaður skýrði frá þvf, að
stjórnin hefði leitað eftir að fá
haglærðan mann til að kanna hag-
fræðilega og atvinnulega stöðu
sveitarfélaganna í umdæminu, en
það ekki tekizt. Hins vegar hefði
stjórnin látið gera skýrslur um ýmis
mál, svo sem um fjárveitingar rík-
isins til skólamála og jarðhitarann-
sókna í umdæminu. Stjórnin hafði
einnig athugað heppilega gerð
íþróttahúsa, fjallað um kjaramál,
sálfræðiþjónustu í skólum og önn-
ur mál, svo sem urn skiptiútsvör og
staðgreiðslukerfi, sem gert hefur
verið skil á öðrum vettvangi.
Skipulagsmál
í lok skýrslu sinnar mælti Hjálm-
ar Ólafsson á þessa leið:
„Það hefur oft borið á góma lijá
stjórninni, hvort rétt væri að leggja
til, að ráðinn yrði fastur starfsmað-
ur hjá samtökunum — líkt og Sam-
tök sveitarfélaga í Austurlandskjör-
dænti hafa gert. Hefur okkur ekki
þótt ástæða til að leggja það til nú
þegar. Austfirðingar eru langt frá
höfuðstöðvum fjárveitinga- og
framkvæmdavalds og af þeirn sök-
um ærin ástæða til, að þeir ráði
sér starfsmann. Við erum hins veg-
ar í næsta nágrenni við nefnda að-
ila.
En við erum sammála um, að
til ákveðinna verkefna þurfum við
að geta ráðið menn, og nefni ég
þar hagfræðiathugunina sem dæmi.
Nauðsynlegt er, að samtökin hafi
þau fjárráð að geta fengið til hæfa
menn á ýmsuin sviðum til þess að
vinna fyrir okkur.
Þá er ástæða til, að aukin á-
herzla sé lögð á skipulagsmál um-
dæmisins — og nánari samvinnu
um þau, einkum á svæðinu sunnan
Hafnarfjarðar. Það er von mín, að
á næsta starfsári takist að fá menn
til að vinna að áðurnefndri hag-
fræðiáætlun um þróun byggðarinn-
ar, en hún er nauðsynleg forsenda
þess, að okkur megi takast á skipu-
legan hátt að vinna betur að vel-
ferðarmálum íbúanna í umdæm-
inu. En það er að sjálfsögðu mark
og mið samtaka okkar."
Stjórn
í stjórn samtakanna næsta starfs-
ár voru kosnir: Hjálmar Ólafsson,
bæjarstj., Kópavogi; Sigurgeir Sig-
urðsson, sveitarstj., Seltjarnarnesi;
Sveinn Jónsson, bæjarstj., Keflavík,
og í varastjórn: Kristinn Ó. Guð-
mundsson, bæjarstj., Hafnarfirði;
Jón Ásgeirsson, sveitarstj., Njarð-
víkurhreppi og Ólafur G. Einars-
ron, sveitarstjóri, Garðahreppi.
Endurskoðendur voru kosnir Ey-
þór Stefánsson, oddviti Bessastaða-
hrepps og Alfreð Alfreðsson, sveit-
arstjóri Miðneshrepps og til vara
Björn Finnbogason, oddviti Gerða-
hrepps og Pétur G. Jónsson, odd-
viti Vatnsleysustrandarlirepps.
Ný umdæmi
Á fundinum flutti Unnar Stef-
ánsson erindi unt starf Sameining-
arnefndar sveitarfélaga og varpaði
fram hugmyndum um sameiningu
sveitarfélaga í Reykjanesumdæmi,
þar sem gert er ráð fyrir róttækum
breytingum á umdæmaskipan á
svæðinu.
Fjöldi fundarmanna tók til máls
að lokinni framsöguræðu og komu
jjar fram miirg sjónarmið með og
móti slíkri sameiningu sveitar-
félaga í stærri félagsheildir.