Sveitarstjórnarmál - 01.06.1968, Blaðsíða 34
Dagheimili
Selfosshreppur hefur reist 200
fermetra liús undir starfsemi dag-
heimilis, sem Kvenfélag Selfoss
rekur fyrir hönd hreppsins. liygg-
ingarkostnaður nemur um 2,5
millj. króna og á félagið 15% í
húseigninni móti hreppnum. Hef-
ur félagið eina stofu til sinna þarfa.
Húsið rúmar 50 börn í leikskóla,
sem Ivvenfélagið rekur yfir sumar-
ið. Húsið er stálgrindahús, klætt
vatnsheldum krossviði og hitað
með geislahitun.
Nýtt gagnfræðaskólahús
Gagnfræðaskólinn áSelfossi flutti
í nýtt húsnæði s.l. liaust. Var þá
tekinn í notkun liluti fyrsta áfanga
af þremur af 4800 fermetra skóla-
húsi, sem liyggt verður á einni
hæð. Fyrsti áfangi liússins er 2600
fermetrar, 8 kennslustofur, skóla-
eldhús, handavinnustofur, bóka-
safn, skrifstofur skólastjórnar,
teiknistofa og húsnæði fyrir tón-
listarkennslu. Síðast liðið sumar
var byggður grunnur að kennslu-
deild fyrir verknám pilta á 300
ferm. gólffleti og verður sá hluti
fyrsta áfanga fullgerður í sumar.
Ormar Þór Guðmundsson arkitekt
tciknaði skólahúsið.
Allar kennslustofur urðu full-
skipaðar um leið og skóliun flutti
í húsnæðið. S.l. vetur voru 250
nemendur í 11 deildum. í vor út-
skrifuðust 46 gagnfræðingar, 27 úr
bóknámsdeild og 19 úr verknáms-
deild. Þriðji bekkur var þrískiptur,
100 með landsprófs-, bóknáms og verk-
SVEITARSTJÓRNARMÁL
námsdeild. Unglingaprófi luku 69
nemendur.
Af 250 nemendum skólans voru
63 utan skólahéraðsins, en Jjað nær
yfir Sandvíkurhrepp og Selfoss-
hrepp. Fjórir skólabílar óku nem-
endum til skólans úr nágranna-
sveitum og þótti heimanaksturinn
gefast vel. Samtals voru nemendur
úr 20 lireppum í Arnessýslu og
víðar. Kveðst Sigurður Ingi Sig-
urðsson oddviti liafa hug á að koma
á samstarfi við hlutaðeigandi sveit-
arstjórnir, sem láta börn sín sækja
nám í skólanum, að jiær taki ein-
hvern þátt í byggingarkostnaði
skólans.
Meðal sveitarstjórna og fræðslu-
yfirvalda er nú rætt um aukinn
akstur nemenda úr Jiorpum og lág-
sveitum Árnessýslu til skólans, sam-
anber uppdrátt af aksturleiðum í
seinasta tölublaði. Við skólaslit í
vor skýrði skólastjórinn Árni Stef-
ánsson frá því, að námsárangur
nemenda, senr ættu langt að sækja
til skólans, væri sízt lakari en ann-
arra.
Þess má geta í sambandi við tón-
listarkennslu í skólanum, að á
næstunni mun koma á almennan
sölumarkað hljómplata með
stúlknakór skólans, sem fram kom
seinasta vetur m.a. í sjónvarpi og
hljóðvarpi.
Skjaldarmerki
Hreppsnefndin samjjykkti á
fundi nýlega, að taka upp skjaldar-
rnerki fyrir Selfoss. Merkið teikn-
aði Kristín Þorkelsdóttir, auglýs-
ingateiknari. Meginhluti þess er
Ölfusárbrúin, sem speglast í Ölfusá.
Undir lienni er táknmynd, sem
minnir á lax og yfir er fugl á flugi.
Merkið er í bláum lit.
Hitaveita keypt
Selfosshreppur liefur keypt og
yfirtekið rekstur hitaveitu í þorp-
inu, sem Kaupfélag Árnesinga hef-
ur átt í 20 ár, eða allt frá 1947.
Hreppurinn kaupir 80 sek/1. af
80 gráðu heitu vatni í landi Laug-
ardæla ásamt öllum mannvirkum
fyrir 14 milljónir króna, svo og
hitaréttindi og greiðist fyrir þau
með Jjví, að K. Á. fær 6 sek/1. af
vatni úr veitukerfinu til sinna nota
og að auki 10% af varanlegri vatns-
aukningu.
Við undirritun samnings greiddi
hreppurinn 5 millj. króna, yfir-
tekur lán samtals 2,3 millj., en
greiðir 6,7 millj. kr. á næstu 15
árum með jöfnum afborgunum og
gildandi bankavöxtum.
Gert er ráð fyrir, að nokkru fé
verði veitt úr sveitarsjóði til kaup-
anna fyrst unt sinn, en síðan standi
hitaveitan sjálf undir kaupverðinu
og frekari uppbyggingu.
Gatnagerð
í ár verður skipt um jarðveg í
þeim hluta þjóðvegarins gegnum
kauptúnið, sem ekki liefur Jjegar
verið malbikaður. Stefut er að Jjví,
að þeir kaflar verði malbikaðir að
ári. Þá liafa allar aðalumferðargöt-
ur gegnum þorpið verið gerðar úr
varanlegu efni. Við þá framkvæmd
hefur kauplúnið skipt um svip.
2273 íbúar
íbúatala Selfosshrepps liækkar
nokkuð jafnt og Jrétt ár frá ári.
Hinn 1. desentber s.l. voru Jjeir
2273. Er Selfoss fjölmennasta
hreppsfélagið utan liöfuðborgar-
svæðisins, aðeins Garðahreppur er
fjölmennari með 2354 ibúa. Fimm
kaupstaðanna telja færri íbúa en
Selfoss.
Ekki eru ráðagerðir uppi um að
óska sveitarfélaginu kaupstaðarrétt-
inda, enda er Selfoss Jjjónustumið-
stöð í stóru héraði.