Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Page 11
^Það sem við gerum í sveitarstjórninni hér hefur ekki aðeins áhrif á Ölfusið. Það
hefur áhrif á Suðurlandið og raunar á landið í heild sinni vegna þess að það skiptir
þjóðarbúið miklu að hér komist á legg ný atvinnustarfsemi. 4
þessu svæði. Það er samdráttur í hefðbundn-
um atvinnugreinum, bæði í fiskveiðunum og
hefðbundnum landbúnaði, þannig að við
þurfum eitthvað nýtt hingað inn á svæðið.
Það er algert grundvallaratriði."
Ólafur Áki kveðst telja að Ölfusið hafi
ákveðna lykilstöðu varðandi orkumálin. „Það
sem við gerum í sveitarstjórninni hér hefur
ekki aðeins áhrif á Ölfusið. Það hefur áhrif á
Suðurlandið og raunar á landið í heild sinni
vegna þess að það skiptir þjóðarbúið miklu
að hér komist á ný atvinnustarfsemi. Við
höfum verið að athuga með fyrirtæki sem
sinna hátæknivinnu en losa enga mengun út
í andrúmsloftið og ég hef gagnrýnt stjórn-
völd fyrir að þau standa ekki betur við bakið
á okkur. Ég get nefnt framkvæmdirnar á
Austurlandi sem dæmi þar sem stjórnvöld
stóðu heilshugar að baki heimamönnum og
að öllum þeim framkvæmdum sem ákveðið
var að fara í. En mér hefur fundist skorta á
þetta bakland hér á Suðurlandi."
Nokkur ár eru síðan sveitarstjórnin í
Ölfusinu hóf undirbúning þess að koma
atvinnuuppbyggingu af stað en mesti þung-
inn hefur verið á síðustu tveimur árum. „Það
hefur tekið lengri tima en við bjuggumst við
að kynna okkur og það sem við höfum að
bjóða. Við höfum þurft að hafa talsvert fyrir
því að koma Ölfusinu á framfæri en sú vinna
er smám saman að skila sér. Hingað hafa
komið fulltrúar nokkurra fyrirtækja á ári og
litið á þær aðstæður sem hér eru til staðar.
Okkur vantar nú nauðsynlegan stuðning frá
stjórnvöldum til þess að lenda svona mál-
um."
Vilja hafa allt á hreinu
„Ég held að sama sé hvað við erum að gera,
hvað við vinnum mikið og erum öflug; þau
fyrirtæki sem leita hingað vilja hafa „allan
pakkann" ef svo má taka til orða. Stjórnendur
þeirra vilja vita nákvæmlega hvað er I boði
og hvað þau geta fengið líkt og gert var
þegar samningurinn við Alcoa var gerður um
byggingu álversins fyrir austan. Því er ákaf-
lega mikilvægt í svona málum að hægt sé að
setja fram í einu lagi hvað sé í boði viðkom-
andi sveitarfélags og ríkisins. Þeir erlendu
aðilar sem leita hingað vilja vita allar að-
stæður. Þeir vilja hafa allt á hreinu."
Ólafur Áki segir að taka þurfi á málum í
sambandi við umhverfismat með ákveðnari
hætti. Séð verði til þess að þær stofnanir og
ráðuneyti, sem eiga að fjalla um viðkomandi
mál og vera umsagnaraðilar, haldi málum
innan þess ramma sem gert er ráð fyrir. Þvi
miður sé algengt að umhverfismat taki mun
lengri tima en ráðgert er í lögum vegna
seinagangs í ráðuneytum og stofnunum sem
eiga að annast slíka hluti. „Það verður að
vera skýrt hvernig afgreiða á svona hluti.
Forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem eru að
leita fyrir sér vilja vita hvað umhverfismat
tekur langan tíma og hvað umsagnartími og
<g>
TÖLVUMIÐLUN
www.h3.is
11