Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Síða 15

Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Síða 15
Eiríkur B. Björgvinsson, bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði. Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri (Sveitarfélaginu Vogum og Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Flveragerðisbæ. Byggðastefna með frumkvæði heimamanna „Við þurfum byggðastefnu sem byggir á frumkvæði og þörfum heimamanna. Vaxtarsamningar ramma inn þessar þarfir og eru fram- lag hvers svæðis til byggðaáætlunar. Aðilar sem stuðla að nýsköpun sem og ráðuneyti þurfa að koma með formlegum hætti að gerð byggðaáætlunar og tryggja þarf að þeir vinni í takt við áætlun. Byggðastofnun hefur siðan yfirumsjón með gerð byggðaáætlunar sem verður grunnur að byggðastefnu stjórnvalda," sagði Páll Brynjarsson, sveitarstjóri i Borgarbyggð, í lokaerindi á ráðstefnu um byggðamál í Borgarnesi 20. febrúar sl. Atvinnuþróunarfélög og samstarf fyrirtækja Páll lagði út af því í erindi sínu að markmið stjórnvalda væri að stuðla að stöðugleika í búsetumynstri og draga úr fólksflutningum frá lands- byggðinni. Með það að markmiði þurfi að leggja áherslu á að efla atvinnulífið og gæta jafnræðis á meðal ibúa. Páll sagði getu landsbyggðarinnar í raun summuna af frumkvæði og nýsköpun i heimabyggðum og stuðningi opinberra aðila. Af þeim sökum þurfi að vera til ákveðinn samstarfsvettvangur fyrir þessa aðila og atvinnuþróunarfélögin séu kjörinn vettvangur þess samstarfs. Hann benti á að ýmsar miðstýrðar aðgerðir væru notaðar til þess að byggja upp atvinnulífið á landsbyggðinni og að hagvöxtur skipti þar miklu máli. Einnig yrði að huga vel að möguleikum vaxtarkjarna og þeim aðgerðum sem byggja á frumkvæði heimamanna. í því sambandi nefndi hann samstarf smáfyrirtækja eða svonefnda „klasa" og einnig áherslu á stuðningskerfi atvinnulifsins. Páll sagði að öflugt og fjölbreytt atvinnulíf réði mestu um hvar fólk veldi sér búsetu. Annað sem fólk liti til i því efni væri góð opinber þjónusta, önnur þjónusta og ekki síst góðar samgöngur. Með sam- göngum væri ekki aðeins átt við vegi heldur einnig almennings- samgöngur og góðar háhraðatengingar við Internetið. Þá skiptu hús- næðismöguleikar máli og einnig hvaða afþreyingar- og útivistarmögu- leikar væru í boði. Byggðastefna með frumkvæði heimamanna Páll varpaði þeirri spurningu fram hvaða opinberir aðilar eigi að stuðla að jákvæðri byggðaþróun. Fyrst nefndi hann sveitarfélögin en at- TÖLVUMIÐLUN www.h3.is 15

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.