Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Qupperneq 17
Fré
ferðamanna
Sumardagur í Reykjavík. Fólk sækir kaffihúsin ekki síður að vetri til þótt það geti tæpast setíð úti á þessum
árstíma.
Reykjavíkurborg
Mikil fjölgun
Samkvæmt upplýsingum fá Höfuðborgarstofu
tók Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykja-
vík á móti um 30% fleiri gestum í september,
október og nóvember á liðnu ári, samanborið
við sömu mánuði árið áður. í desember komu
43% fleiri í heimsókn ef miðað við jóla-
mánuðinn 2007.
í fréttinni kemur fram að þrátt fyrir að
erlendum ferðamönnum hafi fjölgað allt árið
2008 hafi fjölgunin verið minni en undan-
farinn áratug eða um 3% í stað um það bil
8% fjölgunar að jafnaði sl. 10 ár. Einnig
kemur fram að svo virðist sem ferðamenn
leiti meira til upplýsingamiðstöðva og bóki
þar ferðir, gistingu og aðra þjónustu sem er í
takt við þá þróun í ferðaþjónustu, bæði hér-
lendis og annars staðar. Ferðamenn virðast t
auknum mæli kjósa að skipuleggja ferðir
sínar sjálfir auk þess sem þeir eru hvatvísari í
ferðakaupum sínum og kaupa til að mynda
helgarferð með afar skömmum fyrirvara ef
hún býðst á hagstæðu verði.
Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar ferða-
mála telur að óvenju mikið sé um erlenda
ferðamenn um þessar mundir miðað við
árstíma, sem alla jafna hefur verið fremur
rólegur í ferðaþjónustu. Þá má geta þess að
endurgreiðsla á virðisauka til erlendra ferða-
manna hefur aukist mikið og af því má sjá að
sala á ýmsum vörum til ferðamanna hefur
aukist umtalsvert.
Austurland
30 milljónir í menningarstyrki
Menningarráð Austurlands úthlutaði nýlega
hátt í 100 styrkjum til menningarverkefna.
Samtals var úthlutað 30 milljónum króna og
námu hæstu styrkir einni milljón króna en
þeir lægstu 100 þúsund krónum. Alls bárust
140 umsóknir.
í fréttatilkynningu frá Menningarráði
Austurlands segir að sérstaka athygli hafi
vakið hversu margir listamenn á Austurlandí
sækja sjálfir um stuðning til verkefna sem
þeir hafa áhuga á að hrinda í framkvæmd.
Einnig er bent á hversu mikilvægt sé að
fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir sjái tæki-
færi í að efla samstarfið við listamenn á
Austurlandi á þeim erfiðu tímum sem nú eru.
Listamenn hafi löngum verið helstu hug-
myndasmiðir í nýsköpun og komið að gerð
nýrrar vöru og vöruflokka. Aukið samstarf við
Að undanförnu hefur verið unnið að því að
kortleggja götur í Reykjanesbæ með tilliti til
umferðarhraða og slysatíðni. Búið er að
kortleggja nýjustu hverfin í Reykjanesbæ,
þ.e. Tjarnahverfi og Dalshverfi 1 og 2. Eldri
hverfi höfðu ekki auglýstan hámarkshraða
og gildir þar því 50 km hámarkshraði.
Farið var yfir slysahættur á gatnamótum,
skólahverfi merkt upp og reynt að draga úr
hraða þar sem aðstæður leyfðu. (framhaldi
listamenn sé því afar mikilvægt fyrir framtíð
og uppbyggingu á Austurlandi.
verður unnið að því að lækka umferðarhraða
í Reykjanesbæ og bæta þannig umferðar-
öryggi. Þetta verk er unnið með tilliti til fram-
tíðarsýnar Reykjanesbæjar um slysalausa sýn.
Gert er gert ráð fyrir að hámarkshraði á
íbúðagötum verði 30 km og 50 km á stofn-
æðum og tengibrautum, með einhverjum
undantekningum. Bæjaryfirvöld hafa unnið
að þessu verkefni í samvinnu við Lögregluna
á Suðurnesjum.
Reykjanesbær
Slysalaus framtíðarsýn
Grant Thornton ®