Sveitarstjórnarmál - 06.03.2009, Page 22
Fréttir
Hellisheiðarvirkjun
Framlag OR til ferða-
I kynningarrými Hellisheiðarvirkjunar býðst gestum að skoða glæsilega
sýningu þar sem hægt er að fræðast um jarðfræði íslands, uppruna
jarðhitans og orkuvinnslu I jarðvarmavirkjunum. Sýningin byggir á
skoðunarferð um virkjunina sjálfa og fjölbreyttu fræðsluefni í marg-
miðlunarformi auk þess sem kynningarfulltrúar Orkuveitunnar eru
jafnan á staðnum og veita fræðslu og upplýsingar. Kynningarrýmið er
opið alla daga kl. 9.00 til 18.00. Aðgangur er ókeypis og sýningin
öllum opin.
Gestum sýningarinnar hefur fjölgað jafnt og þétt frá opnun hennar
árið 2007 og koma nú u.þ.b. 3.000 manns f hverjum mánuði. Gestirnir
sem heimsækja Hellisheiðarvirkjun koma alls staðar að og hefur það
komið talsvert á óvart hversu margir erlendir skólahópar eiga leið um
landið og líta inn. Þjóðhöfðingjar og blaðamenn hafa sýnt virkjuninni
mikinn áhuga og á forseti (slands, Ólafur Ragnar Grímsson, án efa
mikinn heiður af mörgum af þeim heimsóknum en hann hefur verið
ötull talsmaður fyrir nýtingu jarðvarma og bent á Orkuveituna sem
frumkvöðlafyrirtæki á því sviði.
Nýverið var sýningin I Hellisheiðarvirkjun tilnefnd til Lúðursins, ís-
lensku auglýsingaverðlaunanna, í flokki viðburða. í þessari tilnefningu
felst mikil viðurkenning og verður hún eflaust til að auka hróður þessa
framlags Orkuveitu Reykjavíkur til ferða- og fræðslumála á (slandi.
Fleiri ferðamenn á næsta ári
Framundan er mikil aukning ferðamanna I Hellisheiðarvirkjun en bæði
smá og stór ferðaþjónustufyrirtæki hafa ákveðið að setja virkjunina
inn I skipulagðar ferðir sínar. Þessir aðilar þjónusta fyrst og fremst
erlenda ferðamenn hér á landi og koma við í Hellisheiðarvirkjun á
leiðinni að Gullfossi, Geysi, Þingvöllum eða öðrum perlum Suður-
lands.
Það sem helst hefur þótt vanta af gestum í Hellisheiðarvirkjun eru
íslenskir hópar og einstaklingar. Nú er að hefjast markvisst átak til þess
að kynna virkjunina fyrir framhaldsskólum og háskólum landsins og er
vonast til að þessir hópar fari að skila sér ekki síðar en næsta haust.
Útlitið framundan er því bjart og gera má ráð fyrir a.m.k. 100.000
manns í heimsókn í kynningarrými Hellisheiðarvirkjunar á árinu 2009.
og fræðslumála
Útivistarmöguleikar á Hengilssvæðinu
Orkuveita Reykjavíkur hefur unnið markvisst að því að gera Hengils-
svæðið að útivistarsvæði fyrir íbúa Reykjavíkur og nágrannasveitar-
félaga og hafa um 120 kílómetrar af gönguleiðum verið merktir og
göngustígar lagðir. Gönguleiðirnar eru styrkleikamerktar þannig að
allir eiga að geta fundið sér leið eftir getu.
Kynningarfulltrúar Hellisheiðarvirkjunar hafa leiðbeint fólki sem
hyggst njóta útivistar á Hengilssvæðinu og einnig hafa þeir skipulagt
gönguferðir um svæðið. Á liðnu sumri tóku hátt í 500 manns þátt (
skipulögðum gönguferðum á vegum Orkuveitunnar um Hengilssvæð-
ið og er þess vænst að þátttakendur verði ekki færri á sumri
komanda.
Allsherjarþing Evrópusamtaka
sveitarfélaga
- haldið í Svíþjóð dagana 22.-24. apríl nk.
Allsherjarþing Evrópusamtaka sveitarfélaga, CEMR, verður haldið í
Malmö, Svlþjóð, dagana 22.-24. apríl nk. undir yfirskriftinni „Fit for
the Future - How Europe's local and regional governments are prepar-
ing".
Allsherjarþingið er haldið 3. hvert ár og er stærsti viðburður kjör-
inna fulltrúa á sveitarstjórnarstigi í Evrópu. Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri mun taka þátt í einni málstofu þingsins og ræða áhrif fjár-
málakreppunnar á íslensk sveitarfélög.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram á www.cemr2009.se/.
Skráningargjöld eru lægri til 15. mars, þ.e. 500 evrur, en hækka eftir
það upp I 600 evrur. Drög að dagskrá þingsins er að finna á vef
Sambands (slenskra sveitarfélaga, www.samband.is
Seltjarnarneskaupstaður
Lægstu fasteignagjöldin
Seltirningar greiða nú lægstu fasteignagjöld á höfuðborgar-
svæðinu. Útgjöld þeirra vegna fasteignagjalda má nú bera saman
við útgjöld Ibúa nokkurra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Á vefsvæði Seltjarnarness er að finna fasteignagjaldareiknivél
sem gerir íbúum kleift að bera saman fasteignagjöld nokkurra
sveitarfélaga. Reiknivélin hefur nú verið uppfærð með nýjustu
álagningartölum miðað við árið 2008. Ljóst er að umtalsverðu
munar ( kostnaði fasteignaeigenda eftir búsetu.
SFS
22
TÖLVUMIÐLUN
www.tolvumidlun.is