Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 8

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 8
Sveitarstjórnarmál Um sveitarfélagamörk - „Bein stefna í vestara rekamark Eiðasands" Jón Jónsson, hæstaréttarlögmaður á Sókn, lögmannsstofu, skrifar. Tilefni þessarar greinar eru vangaveltur um þróun reglna um staðarmörk sveitar- félaga og hugsanleg álitamál sem komið geta upp vegna óskýrleika um þau. í 3. gr. sveit- arstjórnarlaga er kveðið á um að sveitarfélög skuli hafa staðarmörk og þeim verði ekki breytt nema með lögum. Þá er gert ráð fyrir því að sveitarfélög geti samið um breytingu á staðarmörkum með samningum sem ráð- herra staðfestir. Það er í raun gefin forsenda sveitarstjórn- arlaga að staðarmörk sveitarfélaga séu þekkt og óumdeild. Við skoðun almennra réttar- heimilda finnast hins vegar engin nákvæm gögn um staðarmörk sveitarfélaga. Til eru kort, ( mismunandi kvörðum, þar sem sveit- arfélagamörk koma fram. Kortin eru sett fram af ráðuneytum, ríkisstofnunum og aðil- um á sviði landmælinga. Þá sýna svæðis- og aðalskipulagsuppdrættir oft mörk sveitar- félaga. Lega þessara staðarmarka sveitar- félaga er jafnan ekki hnitsett og þar með ónákvæm að ákveðnu marki. Þá er hvergi kveðið á um hvað teljist vera „rétt" staðar- mörk ef misræmi er milli korta. Þessi aðstaða veldur í fæstum tilvikum vandkvæðum, en það getur þó gerst, t.d. vegna stórra framkvæmda sem hafa áhrif innan fleiri sveitarfélaga s.s. virkjunarfram- kvæmda. Eins geta komið upp álitamál vegna húsbygginga nærri sveitarfélagamörkum. Lega sveitarfélagamarka getur varðað mikla hagsmuni og haft áhrif á réttindi og skyldur sveitarfélaga, s.s. varðandi fasteignaskatt- lagningu og ábyrgð á þjónustu. Forsagan Forsaga reglna um sveitarfélagamörk á (slandi hvílir á upphaflegri hreppaskipan á (slandi. Á því var byggt að einstakar jarðir fylgdu til- teknum hrepp. Þessi skipan endurspeglaðist í sveitarstjórnarlögum nr. 8/1986, þar sem kveðið var á um að byggðin í landinu skiptist Jón Jónsson. í sveitarfélög. Jafnframt var kveðið á um að afréttir sem íbúar einstakra sveita áttu upp- rekstrarrétt á, fylgdu því sveitarfélagi. Vegna vaxandi hlutverks sveitarfélaga í skipulags- málum varð sú breyting með skipulagslögum frá 1997 og sveitarstjórnarlögum 1998 að kveðið var á um að landið allt skiptist í stað- bundin sveitarfélög. ( kjölfarið voru sveitar- félagamörk inni á miðhálendinu dregin upp. Núverandi staðarmörk sveitarfélaga hvíla að grunni til á því að þau fylgja landamerkjum jarða á sveitarfélagamörkum og eftir atvikum merkjum afrétta. Landamerkjalög frá 1919 kváðu á um gerð landamerkjabréfa bæði fyrir jarðir og afrétti. Telja verður að löggjöf um jarðamat og síðar fasteignamat hvíli á þeirri meginreglu að einstakar jarðir og aðrar fast- eignir falli innan staðarmarka eins sveitar- félags. Ef jörð eða lóð liggur í tveimur sveitar- félögum ætti að greiða fasteignaskatt til beggja sveitarfélaga. Stjórnsýsluleg ábyrgð yrði einnig óljós, s.s. varðandi ýmsar leyfis- veitingar, umsagnir og skipulagsmál. f drögum að frumvarpi að nýjum sveit- arstjórnarlögum kemur bakgrunnur núver- andi sveitarfélagamarka vel fram, þar sem beinlínis er vísað til landamerkja fasteigna á sveitarfélagamörkum. Lagabreytingin er tví- mælalaust til bóta og felur í sér heppilega reglu, en í raun mun óskýrleiki lögformlegra sveitarfélagamarka ennþá verða til staðar. Landamerki jarða og mörk sveitarfélaga fylgjast ekki að! ( landamerkjaþrætu milli tveggja jarða á mörkum sveitarfélaga geta landeigendur bæði samið um mörk eða fengið dóm um landamerki. Hins vegar er kveðið á um að staðarmörkum sveitarfélaga verði ekki breytt nema með lögum! Landamerki jarða og mörk sveitarfélaga fylgjast því ekki að. Sú staða getur því skapast að hluti jarðar teygi sig inn í nágrannasveitarfélagið. Vísbendingar um slíka stöðu hafa komið fram, þar sem landeigendur hafa unnið að hnitsetningu landamerkja jarða og þau ekki fallið ofan í sveitarfélagamörk sem dregin hafa verið upp á kortum. Jörð er þar með að hluta í tveimur sveitarfélögum, en sú aðstaða vekur upp fjöl- mörg álitaefni. Til þess að koma í veg fyrir álitamál vegna sveitarfélagamarka væri heppilegt að ákvæði sveitarstjórnarlaga gerðu ráð fyrir því að mörk sveitarfélaga væru skrásett með ná- kvæmum hætti. Mörk sveitarfélaga ættu að vera birt á einum stað með lögformlegum hætti, t.d. í B-deild stjórnartíðindum eða með vísan í aðalskipulag sveitarfélags, sem ráð- herra hefur staðfest. Við skrásetningu staðarmarka sveitar- félaga þyrfti einnig að huga að því að þau féllu örugglega saman við landamerki jarða á sveitarfélagamörkum. Unnt væri að vinna að því með samkomulagi aðliggjandi sveitar- félaga og viðkomandi landeigenda. Heildar- hnitsetningu sveitarfélagamarka á landinu yrði þó varla lokið án þess að til staðar væri 8

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.