Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 25

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 25
„Nú tekur aðeins um fimm mínútur að aka frá þéttbýlinu í Reykholti í Biskupstungum yfir að Flúðum þar sem áður var liðlega hálfrar klukkustundar akstur.u sveitarfélaga fylli þennan hóp. Þetta á sér vissulega rætur í miklu hugsjónastarfi einnar konu, Sesselju Sigmundsdóttur, en skapar fámennu sveitarfélagi ákveðna sérstöðu. Málefni Sólheima eru komin í þennan sam- starfsfarveg þótt ekki sé búið að ganga frá samkomulag við vistheimilið." Samvinna um félagsmálin Gunnar nefnir samstarfssamning um sam- eiginlega félagsþjónustu í Hveragerði, Ölfusi, Grímsnes- og Grafningshreppi, Bláskóga- byggð, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi sem nýlega var undirritaður. „Með þessum samningi er- um við að sameina yfirstjórn velferðarmála í þessum sveitarfélögum. Með þessu tel ég að við séum bæði að spara fjármuni og styrkja málaflokkinn. Það er ákveðin samheldni á milli sveitarfélaganna í þessum málum og með þessum samstarfssamningi erum við að styrkja okkur og undirbúa flutning málefna aldraðra til sveitarfélaganna." Hann segist viss um að hægt sé að Mynd: Magnús Hlynur hagræða með ákveðinni samnýtingu í félags- þjónustunni og nefnir aksturskostnað sem dæmi ef félagsþjónustan og heimahjúkrunin vinni meira saman. „Við þurfum að leita hag- ræðís í þessu eins og í öðru. Svo er annar þáttur í félagsþjónustunni sem við þurfum að vinna að en hann er að rjúfa félagslega ein- angrun fólks í dreifðu byggðunum. Hún er til staðar. Þetta geta verið viðkvæm mál og erfið sem nauðsynlegt er að nálgast af varfærni. Ég held að verkefni eins og ég nefni um að bjóða eldri borgurum að borða með skóla- börnunum geti verið liður í því starfi." Skortur á almennings- samgöngum Gunnar segir eitt af því sem skapar félags- lega einangrun fólks viða um land sé alger skortur á almenningssamgöngum í dreif- býlinu. „Fólki sem ekki ekur eða á bíl hættir til að einangrast. Þetta er mál sem við þurf- um að huga að - hvernig skipuleggja megi almenningssamgöngur um hinar dreifðu byggðir. í nýrri samgönguáætlun er gert ráð fyrir að styrkja samgöngur innan héraða í stað eldri hugmynda um að einblína á styttri ferðatíma frá landsbyggðinni til Reykjavíkur. Eitt af því sem sveitarfélögin þurfa að koma að er að semja við Vegagerðina um þessi sér- leyfi til fólksflutninga sem víða eru til staðar og að koma upp einhvers konar almennings- samgangnakerfi. Ég sé ekkert annað en sókn- arfæri í þeim málum," segir Gunnar Þor- geirsson að lokum. Námskeið Jafnréttisstofu Markmið námskeiðanna er að auka þekkingu á jafnréttismálum og kynna aðferðir sem notaðar eru til að koma á jafnrétti kynjanna. Námskeiðin eru um ein klukkustund og henta sem innlegg á starfsmannafundum, sem frœðsluerindi í hádegi eða við önnur tœkifœri. Staða jafnréttismála Á námskeiðinu er fjallað um stöðu og þróun jafnréttis- mála á íslandi. Rætt er um hvað hugtakið jafnrétti felur í sér og rýnt í rannsóknir á stöðu kvenna og karla. Jafnréttisáætlun Fjallað er um gerð jafnréttisáætlunar. Rætt er um mikilvægi þess að vera með jafnréttisáætlun og hvernig hægt er að setja skýr markmið og fylgja þeim eftir ásamt því að auðvelda vinnu við innleiðingu jafn- réttisáætlunar og framkvæmd hennar. Kynjasamþætting: Hvernig getur hún nýst okkur? Námskeiðið fjallar um aðferðafræði kynjasamþættingar og hvernig hún er notuð til að bæta þjónustu stofnana og fyrirtækja. Kynnt eru grundvallaratriði kynjasamþættingar og dæmi tekin sem varpa Ijósi á hvernig stuðla má að auknum gæðum í þjónustu og starfsháttum með jafnrétti að leiðarljósi. eu progress samstíga PROGRAMME Jafnréttisstofa

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.