Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 19

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 19
„Hugmyndafræðin var fyrst kynnt opinberlega haustið 1998 og nú, 13 árum síðar, starfa 18 leikskólar eftir Heilsustefnunni víðsvegar um landið.“ við eru þarfir barna af erlendum og blönd- uðum uppruna sem eiga sér annan menn- ingarheim og þurfa oft að læra fleiri en eitt tungumál I einu. Hver er áherslan á málefni þeirra á Urðarhóii? „Við tökum á móti öllum börnum á þeirra forsendum, hvort sem um er að ræða börn af erlendum uppruna eða börn með sérþarfir af einhverju tagi. Við erum með börn frá 13 löndum sem ekki tala íslensku að móðurmáli. Við höfum veitt þeim aukna málörvun um- fram daglegt starf. Börnin fara heim með möppu sem innheldur myndir og orðin á íslensku, foreldrarnir skrifa svo orðið á sínu tungumáli. Þetta gefur okkur tækifæri til að skilja þau betur og flýtir fyrir íslenskunámi þeirra og jafnvel foreldranna líka." Elfn María Ingólfsdóttir, leikskólasérkenn- ari og sérkennslustjóri skólans, heldur utan um foreldrasamskipti og samskipti við stoð- þjónustuna. Þetta starf hefur aukist til muna undanfarin ár og er aukin þekking grundvall- arástæða þess. „Ég er fullviss um að snemm- tæk íhlutun skilar sér í bættri sjálfsmynd barna. Það skiptir öllu að við fáum viðurkenn- ingu fyrir það sem við erum og gerum. Það er forsenda velgengni og eflingar sjálfs- myndar." Sameining leik- og grunn- skóla getur hentað í fámennum byggðum -Samvinna og sameining leik- og grunnskóla er nokkuð til umræðu, m.a. vegna rekstrar- legra forsendna sveitarfélaga. Þessi umræða á sér nú stað nú i Reykjavik og einnig hefur þetta komið til umræðu vítt og breitt um landið og þá ekki sist i dreifbýlinu þar sem margir fámennir skólar eru. Hvert er sjónarmið Sigrúnar Huldu hvað þetta varðar? „Þegar rætt er um sameiningu á skóla- stigum og vitnað í lagaheimild þess efnis kemur fram að þar sem aðstæður eru eins og í sumum fámennum sveitarfélögum geti verið full þörf á slíkri sameiningu. Ég er viss um að við slíkar aðstæður getur þe,tta verið heppi- legt enda um smærri einingar að ræða. En þar sem verið er að setja saman leik- og grunnskóla í fjölmennum skólum tel ég það Spaghetti i hádeginu. Umhverfið er fjölmenningarlegt enda börn af 13 þjóðernum á Urðarhóli. afar varhugavert og tel að slfkt skuli aðeins gert að vel ígrunduðu máli og þá í samvinnu við þá sem koma til með að vinna í því um- hverfi." Hún segist telja að þrátt fyrir samrekstur sé hægt að vinna saman á milli skólastiga. „Við erum til dæmis í samvinnu við Kópa- vogsskóla er varðar að brúa bilið milli skóla- stiga. Einnig fer öll íþróttakennsla Skólatraðar fram í íþróttasal Kópavogsskóla sem er góð aðlögun fyrir börnin. Þau þekkja þá umhverfi skólans og eru betur á heimavelli þegar þangað kemur. Þessi samvinna er byggð á faglegum ávinningi fyrir börnin." Hún segir að leikskólinn hafi einnig verið í góðri samvinnu við Kársnesskóla. „Það er fólgið í að brúa bilið á milli skólastiga auk þess að við fórum saman af stað með úti- námssvæðið Ævintýraskóginn á Kópavogs- túninu. Þar hittast hópar frá báðum skóla- stigum og eiga stund saman. Auk þess hafa nemendur úr 5. bekk komið til okkar í heim- sókn og leikið við börnin." Mikilvægt að hlúa vel að starfsmannahópnum Sigrún Hulda segir að allt þetta samstarf sé til þess fallið að auka gæði skólastarfsins að frumkvæði kennara með hag barnanna að leiðarljósi. „Við þurfum að vinna þessi verk- efni með grasrótinni og einnig að horfa til þess að leikskólar f Kópavogi hafa verið vel reknir í gegnum árin og ekki verið bruðlað. Ég tel mikilvægt að hlúa vel að starfs- mannahópnum á þessum tímum og er ánægð með að Kópavogsbær fór ekki út í frekari sameiningar eins og Reykjavík," segir hún að lokum. 19

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.