Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 14

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 14
ísafjarðarbær, Tálknafjörður, öræfasveit, Kirkjubæjarklaustur, Patreksfjörður, Vest- mannaeyjar og Suðurnes voru bau svæði sem aðlögun vegna sorpbrennslu náði fyrst til. í dag eru sorpbrennslurnar á Kirkjubæjarklaustri, á Svínafelli í öræfum og í Vestmannaeyjum pær einu sem falla undir aðlögunina. Eftir að sorp- brennslunni á Svínafelli verður lokað verða aðeins eftir tvær sorpbrennslur sem starfa á undanpágu frá reglum ESB. þremur af fjórum sorpbrennslustöðvum sem störfuðu á undanþágu frá ESB og gáfu niðurstöður þeirra mælinga til kynna að losunin væri umtalsvert meiri en talið var og langt yfir þeim mörkum sem sett voru í Evróputilskipuninni. Þessum niðurstöðum var ekki fylgt eftir af hálfu yfirvalda, hvorki af hálfu Umhverfisstofnunar né umhverfisráðuneyt- isins. I úttekt Ríkisendurskoðunar eru líkur leiddar að því að hagsmunir sveitarfélaganna hafi ráðið mestu um að farið var fram á sérstaka undanþáguheimild um brennslu úrgangs. Kostnaðurvið breytingarog lagfæringar hafi ráðið mestu en einnig var bent á sérstöðu (slands sem afar fámenns en dreifbýls lands auk þess sem talið var að áhrif súrra gastegunda á umhverfi væru mjög lítil. í úttektinni kemur fram að Hollustuvernd hafi á árinu 2002 talið umhverfislegan ávinning keyptan óhóflega dýru verði ef ráðist yrði í að uppfylla skilyrði ESB-tilskipunarinnar og sveitarfélög hefðu ekki bol- magn til þess að standa undir slíkum framkvæmdum. Þótt tilskipun ESB tæki ekki gildi fyrr en á árinu 2000 var farið að meta áhrif hennar nokkru fyrr eða þegar á árinu 1997 þegar Hollustuvernd sendi hlutaðeigandi aðilum athugasemdir við hana af hálfu íslands. Hugsunin að baki var sú að reyna að hafa áhrif á hana með tilslakandi hætti áður en hún tæki formlega gildi. Cjörbreyting hefur orðið Ljóst er að um margt hefur verið unnið ötullega að bættri umgengni um sorp og umhverfisvænni aðferðum beitt við förgun þess á undan- förnum árum en áður var. Ef miðað er við stöðu þeirra mála fyrir ekki lengri tfma en tveimur til þremur áratugum er árangurinn svo umtals- verður að gjörbreyting hefur orðið. En einnig er Ijóst, að fengnum upplýsingum um mengandi áhrif sorpbrennslustöðva, aðfinna þarf sorpförgun, þarsem brennslustöðvar hafa verið starfræktar, nýjan farveg. Það verður hins vegar ekki gert án verulegs tilkostnaðar. Sem betur fer eru fáar sorpbrennslur enn starfandi hér á landi og því ekki um neina óyfirstíganlega erfiðleika að ræða. Við þetta má bæta þeirri augljósu staðreynd að tilkostnaður við þessa þætti umhverfismála skilar sér f bættri umgengni við umhverfið og hollara andrúmslofti. Flestum er orðið Ijóst að sjórinn tekur ekki endalaust við úrgangi manneskjunnar. Gróðurstöáin Hæáarenc Hágerði, 801 Selfossi • Símar: 486-4545 / 824-4546 a ! [L. Kerhestar - hestaleiga Miðengi, 801 Selfossi Símar: 482 3666 / 867 5175 /662 4422 Borgarhús ehf, trémiðja Minni-Borg, 801 Selfossi • Símar: 486-4411 / 893-3779 teitur@borgarhus.is Orkuveita Hæðarenda Hæðarenda, 801 Selfossi • Símar: 486-4599 / 899-9671 Grímsborgir Guesthouse Ásborgum 30, 801 Selfossi • Símar: 555-7878 / 897-6802 Ólafur Jónsson, jarðvinna Steinum, 801 Selfossi • Símar: 486-4494 / 893-7465 Tætari • Vörubill • Grafa • o.m.fl. Steypustöfl Magnusar Svínavatni, 801 Selfossi • Sími: 899-9670 Qamla 3í(Wfy ehf Borg, 801 Selfossi Símar: 486-4550/ 863-8814 K.Þ. verktakar ehf Stærri-Bæ II, 801 Selfossi • Símar: 868-5901 / 862-0743 Vélaleiga Ingólfs ehf Villingavatni, 801 Selfossi • Sími: 892-4679 MINNIBORGIR.IS Minni-Borg, 801 Selfossi • Símar: 486-4418 / 894-3555 Sumarhús • Hestaleiga • Ferðaþjónusta 14

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.