Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 15

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Blaðsíða 15
lfiðtal mánaðarins Skólamál Heilsuleikskólinn Urðarhóll í Kópavogi er móðurskóli Heilsustefnunnar. Heilsu- stefnan er farin að ryðja sér til rúms í leikskólastarfi hér á landi og kallast þeir skóla sem vinna eftir stefnunni heilsu- leikskóli. Markmið heilsuleikskólans eru að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og list- sköpun. Unnur Stefánsdóttir, fyrrum leik- skólastjóri, er frumkvöðull í starfi heilsu- skóla. Hún stýrði Urðarhóli til ársins 2007 og þá tók Sigrún Hulda Jónsdóttir við og hefur stýrt þessu starfi síðan. Auk heilsustefnunnar er lögð áhersla á þróun og nýbreytni í starfi. Sigrún Hulda ræðir leikskólastarfið og þá sérstaklega heilsu- leikskólann við Sveitarstjórnarmál í viðtali mánaðarins að þessu sinni. igrún Hulda segir að upphaf Heilsu- stefnunnar megi rekja til þess þegar Kópa- vogsbær opnaði leikskólann Skólatröð við Skólatröð árið 1995 þar sem voru rými fyrir 26 börn. „Unnur Stefánsdóttir var þá ráðin leikskólastjóri og byrjaði hún ásamt kenn- urum Skólatraðar að móta markmið skólans að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun. Kópavogsbær tók svo yfir rekstur leikskólans Stubbasels við Kópavogsbraut 19 árið 1997 sem áður var ríkisrekinn. Unnur var þá fengin til að reka þessi tvö hús sem einn skóla fyrir 45 börn. Á aldamótaárinu 2000 byggði Kópavogs- bær nýtt og glæsilegt hús á sömu lóð og Stubbasel. Þar með voru þessi þrjú hús rekin undir einum hatti; þ.e. Heilsuleikskólinn Urð- arhóll með rými fyrir rúmlega 140 börn. Þannig að þótt Urðarhóll hafi fagnað 10 ára afmæli sínu 17. nóvember á liðnu ári eru 15 ár frá því að Unnur Stefánsdóttir fór að móta heilsuskólann með starfsfólki sínu." Unnur er frumkvöðullinn Sigrún Hulda segir að Unnur Stefánsdóttir sé frumkvöðull og raunverulegur eigandi Heilsu- stefnunnar. „Þegar Unnur var ráðin leikskóla- stjóri í Skólatröð var hugmynd hennar að aðaláhersluatriði leikskólans væru heilsa og hreysti, enda hafði hún sjálf tekið þátt í íþróttum frá blautu barnsbeini. Hún hafði ávallt horft til þess að næring og hreyfing Markmið Urðarhóls eru að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og list- sköpun. Þetta eru viðamikil markmið sem eru skilgreind á nákvæman hátt innan Heilsustefnunnar. — skiptu miklu máli fyrir vellíðan og árangur í námi og starfi. Ég var svo heppin að fá að taka þátt í mótun stefnunnar ásamt Arn- dísi Ástu Gestsdóttur og Guðlaugu Sjöfn Jónsdóttur leikskólakennurum sem voru Unni innan handar við að opna leikskólann Skólatröð. Ári síðar kom Ingibjörg Pálma- dóttir, þáverandi heilbrigðisráðherra og Ólafur Ólafsson, þáverandi landlæknir og 15

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.