Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Page 20

Sveitarstjórnarmál - 23.06.2011, Page 20
Suðurland Samstarfs- samningur um félagsþjónustu Gerður hefur verið samstarfssamningur um sameiginlega félagsþjónustu í Hveragerði, Ölfusi, Grímsnes- og Grafningshreppi, Blá- skógabyggð, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi og var samn- ingurinn undirritaður af fulltrúum allra sveit- arfélaganna á fundi á Flúðum. Samtímis var undirritað erindisbréf fyrir sameiginlega vel- ferðarnefnd þessara sveitarfélaga. Með þessari undirritun er sameiginleg yfirstjórn velferðarmála þessara sveitarfélaga orðin staðreynd. Tilgangur samstarfsins er að efla samstarf milli sveitarfélaganna á svæðinu á sviði félagsþjónustu með það að markmiði að minnka faglega einangrun starfsmanna auk þess sem skapað verði teymi starfsmanna sem vinni að því að efla og bæta þjónustu við (búa í þessum sveitarfélögum. Hið nýja fyrirkomulag tekur gildi þann 1. ágúst næstkomandi þegar sameiginleg velferðarnefnd og sameiginlegur félagsmála- stjóri munu taka til starfa. Starfssvæðin verða áfram þrjú; Ölfus, Hveragerði og uppsveitir Árnessýslu og Flóahrepps. Á hverju svæði verða félagsráðgjafar að störfum en nýr félagsmálastjóri mun hafa yfirumsjón með starfinu á svæðunum. Myndin er af þéttbýlinu á Flúðum i Hrunamannahreppi. Fréttir Á myndinni eru Ágústa Halldóra Gisladóttir og Sigurbjörg Fjölnisdóttir hópstjórar og Ingibjörg Hrönn Ingimarsdóttir verkefnisstjórí. Á myndina vantar þríðja hópstjórann, Helga Þór Gunnarsson. Velferðarmál Virknimiðstöð í Breiðholti Ákveðið hefur verið að hefja tilraunaverkefni um breytingar á félagsstarfi í öllum hverfum Breiðholts. Að mestu verður byggt á því félagsstarfi sem fyrir er í hverfinu og styrk- leikum þess en einnig verður bætt við nýjum áherslum með það fyrir augum að höfða til fleiri einstaklinga. Bakgrunn þessa verkefnis má finna í yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga og er þetta eitt þeirra verkefna sem Reykjavíkurborg hefur lagt út í af þeim sökum. Ingibjörg Hrönn Ingimarsdóttir verkefnis- stjóri segir að verkefnið byggist á hugmynd- inni um að samfélagsleg virkni borgara sé talin vera ein meginstoð farsældar og vellíð- unar í velferðarsamfélagi en félagsleg óvirkni og einangrun auki á hinn bóginn á vanlíðan og geti komið í veg fyrir að fólk nýti sér þau bjargráð sem í boði eru. Hún segir markmiðið vera að efla tengsl einstaklinga við nærsam- félagið, þar á meðal við frjáls félagasamtök, kirkjustarf, þátttöku í heilsueflingu og fleira. Þrír undirbúningshópar teknir til starfa Þrír undirbúningshópar hafa nú tekið til starfa og eru skipaðir 8 til 10 manns hver um sig og hittust vikulega á tímabilinu frá 1. maí til 15. júní. „Hlutverk þeirra er að útfæra nánar þær hugmyndir sem verkefnið byggist á. Einn hópurinn annast þarfagreiningu í Breiðholti og hlutverk hans er að undirbúa jarðveginn og útfæra nánar þætti eins og staðsetningu virknimiðstöðvar, styrkleika og veikleika í umhverfi Breiðholts og fjalla um menningu, viðhorf og ríkjandi áherslur í Breiðholtinu. Annar hópur fjallar um notendahóp og markaðssetningu. Hlutverk hans er m.a. að skilgreina notendahóp og athuga hvernig unnt verði að koma til móts við þarfir stærri og breiðari notendahóps í félagsstarfi í Breið- holti. Þriðji hópurinn er starfshópur um þróun félagsstarfs og er hlutverk hans að leggja fram hugmyndir og tillögur um nýjar leiðir um dagskrá í félagsstarfi sem byggir á því sem þótt hefur skara fram úr annars stað- ar. Þessi hópur hefur samstarf við aðila á borð við Hlutverkasetur, Hugarafl, Geðhjálp, athvörf Rauða krossins o.fl. Stýrihópur styður við hópastarfið Ingibjörg Hrönn segir að stýrihópur fyrir til- raunaverkefnið um virknimiðstöð í Breiðholti muni styðja við hópastarfið og hrinda í fram- kvæmd þeim áætlunum sem hóparnir þrír leggja fram. Stýrihópinn skipa Jóna Rut Guð- mundsdóttir, VEL; Helga Sigurjónsdóttir, ÞB; Berlind Magnúsdóttir, Heimaþjónustu RVK; María Einisdóttir, LSH; Þórdís Rúnarsdóttir, Rauða krossinum og Ingibjörg Hrönn Ingi- marsdóttir, verkefnastjóri sem situr fundi hópanna og er tengiliður þeirra við stýri- hópinn. Vinnuheiti tilraunaverkefnisins er Virknimiðstöð i Breiðholti en einkum er horft til viðbótar í þjónustu félags- og menning- armiðstöðva sem til staðar eru í Gerðubergi, Árskógum og víðar í byggðarlaginu.

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.