Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 9

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 9
„Síðast en ekki síst hafa sveitarfélög víða komið myndarlega að málum, bæði ein sér og í samstarfi við ríkisvaldið og einkaaðila.“ stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Gjaldinu var skipt á milli um- hverfisyfirvalda, til ráðstöfunar fyrir þjóðgarða og friðlýst svæði, og nýstofnaðs Framkvæmda- sjóðs ferðamannastaða. Gistináttaskatturinn er gjald sem lagt er á hverja selda gistinátta- einingu en útfærslan hefur verið gagnrýnd nokkuð og liggur fyrir að breytingar verða gerðar. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða Framkvæmdasjóður ferðamannastaða er í vörslu Ferðamálastofu sem annast rekstur hans, þ.m.t. framkvæmd úthlutunar. Sérstök stjórn, skipuð af ráðherra, hefur það hlutverk skv. lögum að gera tillögur til ráðherra um úthlutanir úr sjóðnum. Formaður stjórnar- innar er skipaður án tilnefningar, tveir stjórn- armenn eftir tilnefningu Samtaka ferðaþjón- ustunnar og einn eftir tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga. í sjóðinn geta bæði opinberir aðilar og einkaaðilar sótt um styrki samkvæmt lögum og reglum sem um sjóðinn gilda. Markmið og hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferða- mannastaða ( opinberri eigu eða umsjón um land allt. Þá skal með fjármagni úr sjóðnum leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðaman- nastaði. í aðdraganda að stofnun sjóðsins setti Ferðamálastofa saman forgangslista yfir þá ferðamannastaði þar sem brýnast þótti að fara í uppbyggingu, viðhald og verndun nátt- úrunnar fyrir ágangi ferðamanna. Listi Ferða- málastofu byggði m.a. á rauðlista Umhverfis- stofnunar, tillögum forstöðumanna markaðs- stofa landshlutanna, Samtaka ferðaþjónust- unnar, Ferðamálasamtaka Islands og reynslu starfsmanna Ferðamálastofu. Margir þessara staða hafa þegar fengið styrki í þeim úthlut- unum sem ákveðnar hafa verið frá stofnun sjóðsins. í fjárlagafrumvarpi ársins 2014 er gert ráð Við Dyrhólaey. Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson/Ferðamálastofa. fyrir að Framkvæmdasjóður ferðamannastaða muni hafa úr 216 milljónum króna að spila. Uppbygging fylgir ekki fjölgun gesta Eftir að ferðamönnum fór að fjölga nokkuð hratt upp úr aldamótum hefur reynst erfitt að tryggja að uppbygging og viðhald ferða- mannastaða haldi í við fjölgun gesta. Ábend- ingar hafa komið fram um þörf fyrir úrbætur hér og þar, ástand friðlýstra svæða hefur verið metið og aðgerðum forgangsraðað. Mikil umræða fór af stað snemmsumars 2013 um brýna þörf fyrir gjaldtöku sem leið til að fjármagna uppbyggingu og viðhald ferðamannastaða. Áhugi er á því hjá stjórn- völdum að bregðast hratt við. Á hinn bóg- inn er Ijóst að gjaldtakan varðar hagsmuni margra, enda er ferðaþjónusta orðin fjöl- menn og kröftug atvinnugrein sem vegur sí- fellt þyngra í þjóðarbúskapnum. Forsenda sáttar um niðurstöðu og ákvörðun er að greinargóðar upplýsingar liggi fyrir. Því var það að undirrituð lagði til við at- vinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að Ferðamálastofu yrði falið að láta taka saman greinargerð um mögulegar gjaldtökuleiðir til að fjármagna uppbyggingu og viðhald ferða- mannastaða. Var samið við ráðgjafafyrirtækið Alta um að vinna verkið. Yfirlit um gjaldtöku í öðrum löndum Byrjað var á að fá yfirlit um fyrirkomulag gjaldtöku í nokkrum löndum. Tilgangurinn var annars vegar sá að finna fjölbreytileg fordæmi sem reynsla er af og hins vegar að fá mynd af því hvaða fyrirkomulag er algengast í þeim löndum sem við keppum við um ferða- menn. Ferðamálastofa óskaði jafnframt eftir því að á grunni yfirlitsins yrðu ályktanir dregn- ar um það hvaða fyrirkomulag gjaldtöku gæti hentað best á íslandi. í greinargerðinni er jafnframt reynt að skýra hvað falist gæti í hugmyndum um nátt- úrupassa en slíkum hugmyndum hefur verið vel tekið af ýmsum aðilum innan greinarinnar þótt nákvæm útfærsla hafi verið nokkuð á 9

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.