Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 15

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 15
„Sveitarfélögin eiga því að vera þátttakendur og leiðandi í umræðunni um ferðaþjónustu og uppbyggingu hennar á hverjum stað fyrir sig.“ Hrein og fögur íslensk náttúra í Örlygshöfn I Vesturbyggö. Ung atvinnugrein f Vesturbyggð hafa orðið miklar breytingar á stuttum tíma. ibúum hefur fjölgað um 80 á 3 árum og eru nú 960. Nú er uppbygging í stað áralangrar hnignunar. Ferðaþjónusta á ekki síst þátt í endurreisn og aukinni bjartsýni ( sveitarfélaginu. í Vesturbyggð eru einhverjar mestu nátt- úruperlur landsins. Látrabjarg er einstakt fuglabjarg á heimsvísu, friðlandið í Vatnsfirði og landnám Hrafna-Flóka, Rauðasandur þar sem fegurðin ein ríkir, Arnarfjörður og Geir- þjófsfjörður þar sem sagan drýpur af hverju strái, þorpin Bíldudalur og Patreksfjörður og í næsta nágrenni einhver fegursti foss landsins, Dynjandi. [ Vesturbyggð er ferðaþjónusta mjög ung en á stuttum tíma hefur greinin tekið risastökk fram á við. Á þessu ári var glæsilegt heilsárs- hótel tekið í notkun á Patreksfirði. Nýtt afþrey- ingar- og upplýsingafyrirtæki hefur tekið til starfa. Veitingastöðum hefur fjölgað, tjald- svæði hafa verið endurbætt og unnið er mark- visst að því að bæta aðgengi að fjölsóttum ferðamannastöðum I samráði við landeig- endur, Umhverfisstofnun, Ferðamálastofu og sveitarfélagið. Síðast en ekki sist er unnið að undirbúning þjóðgarðs á Látrabjargi. Vegna þessarar stöðu greinarinnar hefur atvinnulífið og sveitarfélagið einstakt tækifæri til þess að byggja upp ferðaþjónustu, grunn- gerð, upplýsingaveitu og sýn okkar til fram- tíðar með skipulögðum hætti í stað þess að vera alltaf að bregðast við og bjarga hlutun- um eins og er ríkjandi í íslenskri ferðaþjón- ustu. Sveitarfélagið Vesturbyggð bindur miklar vonir við að ferðaþjónusta á Vestfjörðum verði arðbær atvinnugrein. Vesturbyggð leggur mikið upp úr því að styðja við grunngerðina, markaðsmál og upplýsingagjöf. Sveitarfélagið vill sjá vandaða uppbyggingu og að þjónustan sem veitt er sé fyrsta flokks. Mikilvægi umhverfisverndar og sjálfbærni Eitt allra mikilvægasta verkefni okkar allra í dag er að vinna að sjálfbærni og umhverfis- vernd. Sveitarfélög eiga að vera leiðandi á þessu sviði og vinna með ferðaþjónustunni að aukinni umhverfisvitund sem aftur eflir ferða- þjónustuna. Umhverfisvottanir gegna veiga- miklu hlutverki vegna þeirra viðmiða sem Látrabjarg er einstök náttúruperla sem hefur mikið aðdráttarafl. - Myndir: Qunnlaugur Júliusson. sveitarfélögin þurfa að mæta í vottunarferl- unum og þar með breyta því sem breyta þarf til batnaðar. Skólar og smábátahafnir Vestur- byggðar eru með Grænfána- og Bláfánavottun og sveitarfélög á Vestfjörðum vinna að Earth Check vottun. Til að styðja við þetta eru aðrar stofnanir Vesturbyggðar að marka sér um- hverfisstefnu, byggða á Grænum skrefum Landverndar. Allt þetta er hluti af ímynd sveit- arfélagsins og markaðssetningu þess sem nútímalegt, framsækið sveitarfélag. Markaðs- setningin er ekki síður mikilvæg gagnvart íbú- unum til að efla sjálfsmynd þeirra. Lærum að meta mikilvægi ferðaþjónustu Þau sveitarfélög sem eru svo heppin að hafa friðlönd eða þjóðgarða innan sinna vébanda þurfa að kunna að meta þau og nýta til markaðssetningar. Vesturbyggð hefur t.d. kosið að horfa til umhverfisverndar í fram- tíðarsýn sinni. Sveitarfélögin eiga því að vera þátttakendur og leiðandi í umræðunni um ferðaþjónustu og uppbyggingu hennar á hverjum stað fyrir sig. Ferðaþjónusta snýst ekki aðeins um móttöku ferðamanna heldur lika hvernig gestgjafar við viljum vera og hvernig samfélag við viljum kynna. Það er því mikilvægt að sveitarstjórnarmenn þekki skyld- ur sínar gagnvart ferðaþjónustunni og taki þessa atvinnugrein alvarlega. Það skiptir máli fyrir alla. 15

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.