Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 24

Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 24
Seyðisfjarðarkaupstaður legar fyrirfram. Hægt er þó að sigla með henni á öðrum tíma en þá er þjónustan um borð (lágmarki og ferðin ekki bókanleg fyrir- fram. Hér er um að ræða vannýtta gátt inn í Austurland, að mati Arnbjargar. „Það þarf þó að huga að innviðunum svo hægt sé að laða fólk af meginlandi Evrópu til okkar, það sama gildir um flugvöllinn á Egilsstöðum. Við sjáum möguleika á að laða til okkar fólk á skíðasvæðin í Stafdal og (Oddsskarð og svo I hálendisferðir, en til þess að það náist þarf að vinna markvisst að því, bæði hvað varðar uppbyggingu áfangastaðanna og að mark- aðsstarfi. Við bindum vonir við að markaðs- átak, sem er að hefjast á vegum Austurbrúar, skili okkur miklu á komandi árum." Hún segir að um 6.500 manns hafi komið til Seyðisfjarðar með öðrum farþegaskipum en Norrænu á þessu ári, um 8.500 manns séu áhafnarmeðlimir taldir með. „Við getum því með stolti sagt að það séu á bilinu 45.000 til 50.000 manns sem fara hér um höfnina árlega. Flestar hafa skemmtiferðaskipa- komurnar verið 17 árið 2009 og fæstar um 6 ef við skoðum síðustu 10 ár. Á næsta ári eru þegar bókuð 9 skip með um 7.000 farþega og þá um 2.500 manns ( áhöfnum skipanna. Það má segja að vaxtarbroddurinn ( atvinnu- lífinu sé í ferðaþjónustunni og reiknast okkur til að um sé að ræða 15 heilsársstörf og til viðbótar komi um 60 til starfa yfir sumar- mánuðina; oft skólafólk og aðkomufólk." Um helmingsfjölgun gistinátta Arnbjörg segir að gistirýmum hafi fjölgað á undanförnum árum og enn sé áætlað að bætist við gistirými næsta ár. „Þó nokkrir að- ilar eru að byggja og breyta eldra húsnæði með það fyrir augum að bjóða gistingu fyrir ferðamenn. Sumarbústaðahverfi er í upp- byggingu rétt utan bæjarins, sem hefur fengið mjög góðar móttökur og einnig er verið að byggja hótelíbúðir inni ( bænum. Sumarið var okkur gott og til dæmis var fjölgun gistinátta á tjaldsvæðinu í júlí um 50%. Þá var aukning á milli ára hjá flestum ferðaþjónustuaðilum. Farfuglaheimilið, sem hefur verið hér lengi starfandi, keypti Gamla sjúkrahúsið og endurnýjaði það fyrir gisti- þjónustu sína. Þá eru gistiheimili starfandi sem gengið hafa vel." Hótel Aldan er burðarásinn í ferðaþjón- ustunni, að sögn Arnbjargar. „Þar er unnið að því að auka gistirými en nú þegar er rekið glæsilegt gistirými í gamla Landsbankahúsinu og gamla Hótel Snæfelli, sem verið er að gera upp. Hótel Aldan rekur mjög góðan veitingastað i einu af gömlu verslunarhús- unum. Einnig má nefna Bístró Skaftfell í kjallara Skaftfells menningarmiðstöðvar auk félagsheimilisins Herðubreiðar, þar sem er bíó og salir til fundahalda og skemmtana." Seyðisfjörður er „hipp og kúl" „Seyðisfjörður er vinsæll viðkomustaður fyrir þá sem eru ferðast í kringum landið og til dæmis númer 7 á „toppick" lista hinnar heimskunnu ferðahandbókar Lonely Planet, sem einn af áhugaverðustu stöðunum á íslandi að heimsækja. Við státum af fjöl- breytni (ferðaþjónustunni og má þar nefna að í Skálanesi er rekið náttúru- og menn- ingarsetur. Setrið tekur á móti ferðamönnum en hefur sérhæft sig í að taka á móti erlend- um háskólahópum og hefur verið í samstarfi við erlenda háskóla hvað það varðar. Það eru sérstaklega meistaranemar sem koma þá og stunda rannsóknir um ákveðinn tíma, en leggja í sumum tilfellum líka hönd á plóg í verndun umhverfisins." Arnbjörg segir ýmislegt í boði í afþrey- ingu, svo sem gönguferðir um bæinn undir leiðsögn. „Hér er einnig boðið upp á marg- rómaðar kajakferðir, hjólaferðir og hægt að fara á sjóstangaveiði. Kafarar hafa sótt hingað til að kafa niður að olíuskipinu El Grillo sem var sökkt hér í firðinum á stríðsár- unum. Þá eru hér kjöraðstæður fyrir þá sem stunda svifvængjuflug (e. paragliding), með því að svífa fram af Bjólfinum. Þá er hér ágætur níu holu golfvöllur, líkamsræktarstöð og sundhöll. Listamenn sækja mikið í Seyðis- fjörð og áberandi er að mikið af ferðamönn- unum sem sækir Seyðisfjörð heim er af yngri kynslóðinni. Margir telja að það sé vegna þess að ímynd Seyðisfjarðar er „hipp og kúl", eins og sumir orða það," segir Arnbjörg Sveinsdóttir.

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.