Sveitarstjórnarmál - 01.11.2013, Blaðsíða 19
Safnaráð auglýsir eftir
umsóknum um styrki
úr safnasjóði á árinu 2014
Hlutverk safnasjóðs er að styrkja starf
þeirra safna sem falla undir safnalög
nr. 141/2011. Safnaráð gerir tillögu til
mennta- og menningarmálaráðherra um
úthlutun úr sjóðnum samkvæmt safna-
lögum og úthlutunarreglum ráðsins frá
18. september 2013. Upphæð og fjöldi veittra
styrkja fer eftir fjárveitingu á fjárlögum
og umsóknum.
Til þess að geta sótt um rekstrarstyrk úr
safnasjóði þarf safn að vera viðurkennt
safn samkv. safnalögum nr. 141/2011, frestur
til að sækja um viðurkenningu á árinu 2013
rennur út 15. nóvember.
Söfn sem hljóta rekstrarstyrk á fjárlögum
munu ekki hljóta rekstrarstyrk úr safna-
sjóði sama ár, en geta sótt um verkefna-
styrki.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2013.
Umsóknum skal skila með því að fylla út
umsóknareyðublað á vefsíðu safnaráðs:
www.safnarad.is
Nánari upplýsingar á skrifstofu safnaráðs.
SAFNARÁÐ
The Museum Council of lceland
Safnaráð - safnasjóður • Suðurgötu 41 -101 Reykjavík
Slmi 530 2216 • www.safnarad.is
!■
? Minjastofnun íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2014
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi
ffiðlýstra og ffiðaðra húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr.
182/2013. Samkvæmt úthlutunarreglunum er heimilt að
veita styrki úr sjóðnum til:
• viðhalds og endurbóta á friðlýstum og
friðuðum húsum og mannvirkjum.
• viðhalds annarra mannvirkja sem hafa
menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt
gildi.
• byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið
skráningu húsa og mannvirkja, og miðlun
upplýsinga um þær.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d.
vegna byggingarlistar, menningarsögu, umhverfis,
upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis hennar fyrir
varðveislu byggingararfleifðarinnar. Að þessu sinni verður
lögð sérstök áhersla á að veita styrki til endurbóta á
friðlýstum húsum og mannvirkjum.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunar-
reglur, er að fínna á heimasíðu Minjastofnunar íslands,
www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2013. Umsóknir sem
berast eftir að umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita
við úthlutun.
Minjastofnun íslands hefúr eftirlit með að styrkt verkefni
séu viðunandi af hendi leyst og í samræmi við innsend
umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit Húsafriðunar-
nefndar sem finna má á heimasíðu Minjastofnunar Islands
og Húsvemdarstofú um viðhald og viðgerðir eldri húsa í
M injasafn i Reykj avíkur/Arbæj arsafni.
Suðurgötu 39,101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
g g M
Minjastofnun
Islands