Hermes - 01.04.1963, Side 2

Hermes - 01.04.1963, Side 2
RITSTJÓRNARGREIN Nú hefur Hermes göngu sína í nýjum búningi. Við erum vongóð- ir um að hann hljóti þær móttök- ur, sem hann þarf til að honum verði lífs auðið. Utgáfa hans hef- ur verið gloppótt fram til þessa; alls hafa komið út þrjú blöð og sum þeirra að minnsta kosti með hálfgerðum harmkvælum. Nú er ætlunin að koma útgáfunni á fast- ari grundvöll. Blaðið hefur verið stækkað og efnið er nú ekki jafn rígbundið félagslífi og fréttum frá nemendasambandinu og verið hef- ur. Það verður að nokkru leyti heimilisblað, blað sem meðal ann- ars efnis flytur greinar um menn- ingarmál og þjóðmál, ljóð, sögur o.s.frv., þ. e. verður annað og meira en fréttablað. Fyrst og fremst verð- ur seilzt eftir efni til Samvinnu- skólamanna, eldri sem yngri, en einnig annarra, ef svo ber undir. Takmarkið er að koma út tveim- ur blöðum á ári til að byrja með. En bakvið útgáfu svona blaðs liggur talsverð vinna, sem verður að vera ókeypis, fyrst um sinn að minnsta kosti. Því verða sem flestir að leggja hönd á plóginn og bregð- ast vel við, ef til þeirra verður leit- að til stuðnings blaðinu. Vinsæld- ir blaðs sem þessa hljóta líka að byggjast töluvert á því, að sem flestir skrifi í það. Einnig teljuni við, að með auknu lífi í þessu blaði sé starf NSS kom- ið á breiðari grundvöll en áður var, og að þar með opnist ný við- horf til þátttöku þeirra nemenda Samvinnuskólans, sem útskrifuð- ust meðan skólinn starfaði í Reykjavík, en fæstum þeirra hef- ur til þessa þótt ástæða til að ganga í nemendasambandið. Við viljum sérstaklega hvetja þá nemendur Samvinnuskólans, sem enn hafa ekki gerzt félagar í NSS, til að gerast það hið fyrsta, og styrkja okkur þar með í því starfi, sem NSS er ætlað: að stuðla að aukn- um kynnum milli þeirra, sem hafa fengið menntun sína í Samvinnu- skólanum — og það er meðal ann- ars í þeim tilgangi, sem þetta blað er gefið út. Ætlunin er að árgjöld nemenda- sambandsins kosti útgáfuna, og verði hægt að senda blaðið út án nokkurra aukaútgjalda frá ykkar hálfu. Sýnið nú viljann í verki, sendið efni og tillögur um gerð og útlit blaðsins og stuðlið að því, að sem flestir ungir og gamlir sam- vinnuskólamenn gangi í sitt eigið nemendasamband. hermes Vor 1963 - 4. árg. - 1. tbl. Útg.: NSS Ritstjóri: Bragi Ragnarsson Aðrir í ritstjórn: Árni Reynisson Dagur Þorleifsson Gunnar Sigurðsson Sigurður Hreiðar Ljósmyndari: Kári Jónasson Uppsetning: Sigurður Hreiðar Prentun: Prentsmiðja Jóns Helgasonar Myndamót: Rafgraf Afgreiðsla hjá Degi Þorleifssyni, Safamýri 44

x

Hermes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.