Hermes - 01.04.1963, Page 7

Hermes - 01.04.1963, Page 7
orðum. En það sýnir bezt grunnfærnislega og alvörulausa afstöðu almennings í þessum málum, að ívitnuð orð skyldu fyrst og fremst finna hljómgrunn sem broslegur brandari. Nú veit ég að vísu ekki með hvaða hugarfari kaupmaðurinn kom vigorðum sínum svo oft og lengi á framfæri — það er hugsanlegt, að hann hafi jafnvel sjálfur brosað í kampinn. En hvað sem líður viðhorfi skyldra og vandalausra til þessa sérstæða auglýsingarkjarna, er hann virð- ingarverður í sjálfum sér: eitt það humaniskasta, sem heyrzt hefir í þeim stríða auglýsingastraumi, er mætt hefir á þjóðinni æ sterk- ar á undanförnum árum. Vissulega ætti að vera höfuðmarkmið allra fyrirtekta manna ,,að auka ánægjuna", sem óhjákvæmilega er skilgetið afkvæmi sjálfrar lífshamingjunnar. Það er kunnari staðreynd en um þurfi að tala, að hamingja manna eða vellíðan samanstendur af tveim meginþáttum: andleg- um og efnislegum. A hvaða þroskastigi, sem þeir standa, er það gagnverkun þessara meginþátta og samspil þeirra, sem gildir og sker úr um það, hvort um vansælu eða hamingju er að ræða. Hin andlega hlið þessara mála verður ekki rædd hér. Aftur á móti skal leitast við að rekja örfáa þræði þeirrar efnislegu og benda á nokkur atriði, sem skipta máli varðandi hana. Nú á dögum er mikið talað um fjárhagslegt lýðræði og fjárhags- öryggi manna. Það er að sjálfsögðu ekki að ófyrirsynju. Hvort tveggja er, að tímarnir hafa mótast af sterkri efnishyggju og all- almennri auðsöfnun í stærri og minni stíl, enda líka ríkir full við- urkenning á því, hversu ósegjanlega mikil áhrif öll efnahagsafstaða einstaklingsins verkar á líf hans og líðan. Það þarf enga strípaða ► efnishyggjumenn til þess að hafa opin augu fyrir þeirri staðreynd, að án vissra lágmarksmöguleika í efnahagslegu tilliti, getur tæplega verið um „mannsæmandi" líf að ræða — amk. ekki almennt. Efnahagslegur máttur og öryggi mynd- ast af mörgu. Annars vegar eru öflunar- möguleikarnir svo sem heilsa, dugnaður, atvinna, kaupgjald eða afrakstur ofl. Hins vegar eyðslu- eða neyzluþörfin svo sem framfærsla, opinber gjöld ofl. kvaðir. — Liggur í augum uppi, að varðandi hvort tveggja þetta er það ekki aðeins persónu- leg fyrirhyggja og útsjónarsemi einstakl- ingsins, sem gerir gæfumun. Margt er honum lítt eða ekki viðráðanlegt, svo sem almennt stjórnarfar með öllum sínum inngripum. En róttækari jafnvel hinu tilætlunarsamasta stjórnarfari eru fyrirvaralaus slysa- og tjónareiðarslög, sem í einu vetfangi svipta burtu eftir at- vikum miklum eða litlum eignum manna, stundum því, sem meira er um vert: lífi þeirra og limum. Næst einsemd mannsins frammi fyrir þungbærustu örlögum tilfinningalífsins, kemur sennilega smæð hans og vanmátt- arkennd gagnvart hamförum óvæntra

x

Hermes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.