Hermes - 01.04.1963, Qupperneq 17
Fyrstu
feikn
vorsins
Vindur að morgni
Kuldalega bjart
Unglingur sem vaknar
efast augnablik
um Ijóma framtíðarinnar
Ung stúlka
Ungur maður
vakna að morgni,
blautum, nöktum marzmorgni,
svefndrukkin og sœl eftir nóttina
Full saknaðar eftir unað nœturinnar
kvíðin fyrir hinum dulda, harða,
raunveruleika framtlðarinnar
Tukthúslimurinn
bakvið þykka múra og jórnrimla
fyllist öryggi fyrsta skipti
eftir handtökuna,
er hann lítur
efniskenndan marxhiminn útifyrir
Köttur piparjúnkunnar
gengur út í bakgarðinn
að drepa snjótittlinga
í nótt hvarf seinasti snjórinn,
svo kötturinn getur aftur
skriðið í moldarbeðunum
EYJÓLFUR FRIÐGEIRSSON
RANNVEIG HARALDSDÓTTIR
Jörðin er alauð, blaut, í drungalitum
Nakin, lostafull í þró sinni
eftir blómum vorsins
Nakin einsog ung kona
biðandi arma elskhuga síns
til að hylja líkama sinn
Drungalegur marzmorgunn
Oþœgilegur fyrirboði
yndislegs vors