Hermes - 01.07.1965, Blaðsíða 13
Ólíklegt er, að háþróað líf finnist á öðrum hnött-
um í sólkerfi voru. En í himingeimnum eru millj-
arðar á milljarða ofan stjörnuhvela. Ljósið, sem fer
umhverfis jörðina á 1/7 úr sekúndu, þarf milljónir
ára til þess að fara frá einu stjörnuhveli til annars,
og gefur það nokkra hugmynd um hið ómælanlega
viðfeðmi himingeimsins.
I hverju stjörnuhveli eru hundruð milljarðar sól-
kerfa, sem eru svipuð voru sólkerfi. I okkar eigin
stjörnuhveli, Vetrarbrautinni, eru að því er talið er
hundruðir milljóna sólkerfa og a. m. k. 30. milljónir
stjarna.
Vísindamenn telja, að í Vetrarbrautinni séu um
100 milljón hnettir eins og jörðin, þ. e. eins hvað
snertir aldur, gerð og fjarlægð frá sólu, en það þýðir,
að skilyrði til lífs er svipuð. A þessum hnöttum
mun vera líf. Óraunhæft væri að telja, að háþróað-
ar verur á borð við okkur jarðarbúa búi ekki á
mörgum þessara hnatta. A hversu mörgum þeirra
vitsmunaverur búa vitum við ekki, en við getum
gizkað á t. d. einum hundraðasta þeirra — þ. e. á
einni milljón hnatta.
Segjum sem svo, að til séu einn milljarður ann-