Hermes - 01.07.1965, Page 14
arra stjörnuhvela, sem séu jafn gömul og Vetrar-
brautin, og þá stöndum við andspænis þeirri stað-
reynd, að þúsund billjónir hnatta séu byggðir mönn-
um.
Þessar tölur eru að sjálfsögðu ágizkun. Þær geta
verið miklu hærri eða miklu lægri. Það skiptir ekki
svo miklu máli, heldur hitt, að telja má svo til full-
víst, að úti í geimnum eru menn. Sumir eru ef til
vill eins þróaðir og við, aðrir ef til vill mun háþró-
aðri, enn aðrir geta verið frumstæðari. En þeir eru
þar.
Þetta er ein þeirra staðreynda, sem vísindi nútímans
hafa opinberað manninum, og sem hann getur ekki
á móti mælt. Og sú staðreynd, að jörðin er einungis
einn hnöttur af ótrúlega mörgum, sem byggðir eru
mönnum eða vitsmunaverum — vissan um það,
að einstaklingurinn hér á jörðinni er ekki einungis
einn af 3.5 milljörðum jarðarbúa, heldur er hann
lítill dropi í hinu ótrúlega stóra mannhafi alheims-
ins — þetta er þvílík andstaða fyrri vitneskju jarð-
arbúa, að hún kippir fótunum undan fyrri lífsskoð-
unum og trú hins vestræna manns.
Ef á heildina er litið, eru jarðarbúar einungis
lítil fjölskylda í hinu stóra samfélagi mannlífsins.
Þetta er sú nýja heimsmynd, sem nútíma vísindi
hafa lagt á borð fyrir nútímamanninn. Gamlar skoð-
anir um manninn, guð hans og tilgang geta illa að-
lagast þessari nýju heimsmynd. Og nútímamaður-
inn ber þess greinilega vitni.
Sú bylting, sem átt hefur sér stað í tækni og vísind-
um á hinni nýju öld, hefur valdið gjörbreytingu á
lífi manna og lífsskoðunum. Gufuvélin, og sú tækni
og vélmenning, sem fylgt hefur í kjölfar hennar,
hefur skipt jarðarbúum í tvennt. Hin þróuðu ríki
senda geimfara sína umhverfis jörðina og taka
nærmyndir af tunglinu, en hinum megin á hnetti
vorum plægja menn jörðina með tréplógum. Meiri-
hluti jarðarbúa lifir á barmi sultar, en á Vestur-
löndum ríkir velmegun, sem gert hefur hjartasjúk-
dóma algengustu dánarorsök íbúa hins þróaða þjóðfé-
lags. Og bilið milli þessara öfga — ofláts og sult-
ar breikkar stöðugt. Jarðarbúum fjölgar einnig
stöðugt. Með sömu hlutfallslegri fjölgun mannkyns-
ins, verður allt landsvæði jarðarinnar ekki nægilega
stórt fyrir jarðarbúa að standa á eftir 285 ár.
I dag stendur nútímamaðurinn andspænis þeirri
staðreynd, að þrátt fyrir alla sína framþróun á sviði
tækni og vísinda, geimferðir sínar, eldflaugar og
gerfihnetti, er ástandið á jörðinni sjálfri verra en
áður. Byltingin á sviði vísindanna gerðist hratt —