Hermes - 01.05.1969, Qupperneq 6
Að loknu vel heppnuðu nemendamóti héldu þótttakendur kótir og reifir í bœinn. (Ljósm. Guðmundur Bogason)
nemendamót
NSS
efni þessarra lína. Mjög mikill halli varð á mót-
inu, sem kom að sjálfsögðu mjög illa við hinn ekki
of gilda sjóð gjaldkera NSS. — Ef þátttakendur
hefðu hins vegar verið rúmlega hundrað eða sá
fjöldi, sem hafði látið skrá sig til þátttöku, hefði
mótið orðið hallalaust. Slíkt sem þetta má alls
ekki endurtaka sig og þess vegna er nú skorað á
ykkur, NSS-félagar, að fjölmenna á næsta mót og
gera það engu síður minnisvert en síðasta mót
varð þeim, sem það sóttu.
Þó nokkuð sé nú liðið frá síðasta nemendamóti
NSS, sem haldið var að Bifröst um mánaðarmót-
in ágúst/september í fyrra, er sjálfsagt mál að
vekja á því athygli nú, þegar næsta mót nálgast
óðfluga. Þetta mót, sem m. a. var haldið í tilefni
10 ára afmælis NSS tókst með slíkum ágætum að
elztu menn mundu ekki annað eins.
Þó var þetta mót eitt hið fámennasta, aðeins
milli 70 og 80 þátttakendur og þá er komið að til-