Hermes - 01.05.1969, Blaðsíða 7
staldraö við
á kennarastofu
Rœtt við Snorra Þorsteinsson, yfirkennara
Spyrjandi: Vigdís Pólsdóttir Ljósmyndari: Gunnlaugur Sigmarsson
Dag einn að aflokinni vinnu, eftir að hafa tryggt
mér Landrover og bílstjóra, vopnað mig segul-
fcandi og penna, hélt ég upp að Bifröst, og var til-
gangurinn með ferð minni að eiga viðtal við
Snorra Þorsteinsson, yfirkennara. Á leiðinni, í
gegn um svað það er kallast þjóðvegur og tengir
norður og vesturhluta dreifbýlisins við höfuðborg-
ina, velti ég fyrir mér, um hvað ég ætti nú að
ræða en komst ekki að neinni niðurstöðu svo ég
ákvað að láta það ráðast, og finnist sumum þetta
viðtal hálf höfrungahlaupslegt og viða stokkið, þá
verður það að skrifast á minn reikning en ekki
yfirkennarans.
Þegar upp að Bifröst kom tók háttvirtur
Hrafn Magnússon, kennari, á móti mér við yztu
dyr og dreif mig niður í kennarastofu, hvar Snorri
tók mér með mestu virktum. Eftir töluvert brask
með segulband og slíkt, tókum við tal saman, og
fer hér á eftir sumt af því sem okkur fór á milli,
en of langt yrði að birta allt sem fram kom. Ég
byrjaði auðvitað á þeirri klassísku spurningu: —
Hvar fæddur og hvenær?
— Ég er fæddur 31. júlí 1930 að Hvassafelli hér
í Norðurárdal.
— Námsferill?
— Ég var í bamaskóla eins og lög gera ráð
fyrir. Þegar ég var 17 ára, fór ég austur að Laug-
arvatni og var þar í 1. bekk héraðsskólans. Árið
eftir fór ég í þriðja bekk og tók þar landspróf
1949 um vorið. Haustið eftir byrjaði ég svo að
kenna börnum hér upp í Norðurárdal og Þverár-
hlíð í farskóla, og var þá á ýmsum bæjum. Þann
vetur las ég 3. bekk menntaskóla utanskóla, fór
í fjórða bekk næsta vetur og las síðan utanskóla
til stúdentsprófs og tók það 1952. Næstu ár liðu
við nám og kennslu. Las ég þá íslenzk fræði og
stundaði nám í B. A. deild Háskólans.
— Hvenær gerist þú kennari hér að Bifröst?
— Fyrsta veturinn sem Samvinnuskólinn er að
Bifröst er ég ráðinn stundakennari, og um vorið
var gengið út frá því, að ég yrði hér fastráðinn og
hef ég síðan verið einn af þessu fasta inventari
hér. Þetta var víst reynslutími fyrst til að byrja
með geri ég ráð fyrir. (brosir). Það sumar sótti ég
svo kennaranámskeið í London.
— Finnst þér nemendurnir breytast mikið?
— Ojá, þetta er náttúrlega gagnólíkt fólk sem
núna er frá því sem var hér fyrst. Þegar ég byrjaði
hérna, þá var þetta fólk tiltölulega lítið yngra en
ég. Ég var tuttugu og fimm ára gamall þegar ég
byrjaði að kenna hér, og það var einn nemandi
sem var einum og hálfum mánuði eldri en ég og