Hermes - 01.05.1969, Side 9
Það er þjóðfélagsleg nauðsyn, að skóli Maður hefur alltaf komizt í mjög gott og Hér fó allir að njóta sín, ekki satt?
sem Samvinnuskólinn verði til. persónulegt samband við nemendurna.
um, en að mér finnist á nokkum hátt verra að
umgangast það, alls ekki.
— Finnst þér Nemendasambandið ná þeim til-
gangi sínum að vera tengiliður milli yngri og eldri
útskrifaðra nemenda?
— Ég verð nú að segja það alveg eins og er, að
ég hef orðið fyrir dálitlum vonbrigðum með þetta
Nemendasamband. Þannig lagað séð, að það er
auðvitað ágætt og góðra gjalda vert að halda uppi
þessu sambandi, en mér finnst það einhvern veg-
inn þannig, að það sé ekki eins og það ætti að vera
en þetta er ósköp eðlilegt að yngra fólkið haldi
meira saman, eftir því sem fólk eldist meira breyt-
ast áhugamál þess. En ég er ekki frá því að bilið sé
ennþá lengra á milli fólks úr fyrstu árgöngum
skólans að Bifröst en á eldri nemendum og ung-
lingimum, vegna þess að eldra fólkið er aftur far-
ið að komast í snertingu við hið yngra í gegn um
sín eigin börn. Veit ekki, nema það væri reynandi
fyrir Nemendasambandið að reyna að ná til þess-
ara eldri nemenda, en þá kemur, að skemmtana-
líf þessa fólks er ákaflega ólíkt. .En því miður, þá
hef ég nú enga ,,patent“ lausn í félagsmálum,
hvorki þessa félagsskapar né annarra. Kannski að
félagslíf almennt batni þegar að kapphlaupið um
lífsgæðin fer að minnka?
— Já þetta er nú auðvitað alveg voðalegt, þetta
kapphlaup um lífsgæðin, að hugsa sér þau ó-
sköp, að maður er alla tíð að basla við að koma
sér upp einhverjum lífsgæðum.. Ég get tekið dæmi
af sjálfum mér, maður er að kaupa sér bækur í
metravís af því að ég er nú haldinn þessari bókka-
ástríðu, en ég er svo önnuni kafinn sem sagt að
vinna til að draga fram lífið, að ég hef engan tíma
til að lesa mínar bækur. Ég hef oft verið að hugsa
um það, að þó að verið sé að tala um þessa frið-
sæld og einangrun hér upp í sveit, hvað það væri
yndislegt að vera einn vetur uppi á Hveravöllum
eða vitavörður norður á Horni, og það þrátt fyrir
að maður sé alls ekki í hringiðunni.
— Heldur þú að einhverjar breytingar verði á
Bifröst í framtíðinni?
— Hvaða skóli sem er verður alltaf að taka
vissum breytingum, og spurningunni hvað gerist í