Hermes - 01.05.1969, Qupperneq 11
Lundúna-
bréf
frá Sigurði Kristjánssyni
Það er venjan þegar gömul skólasystkini úr Sam-
vinnuskólanum koma saman, að þá er gjarnan
rætt um gamla, góða skólann og rifjaðir upp ýmsir
atburðir þaðan. Þá miðlar einn öðrum af sínum
fróðleik um náungann, hvar þessi eða hinn er nið-
urkominn á landinu, við hvað er starfað o. s. frv.
Eins og gengur verður stundum að líta út fyrir
landsteinana til þess að finna suma, því hinn stóri
heimur hefur löngum heillað og verið vettvangur
náms og starfs Islendinga um lengri eða skemmri
tíma.
Þegar greinarhöfundur fékk tilmæli um að
skrifa smá pistil frá London, þá kom ýmislegt til
greina. Hér eru nokkrir gamlir Samvinnuskóla-
menn eins og Gunnlaugur Sigvaldason, sem vinn-
ur á skrifstofu SlS, Vignir Gísli Jónsson heimilis-
faðir og rækjusali, Björn Ágústsson sem er að
læra ensku við Pitmans skóla og e. t. v. fleiri. Með
allri virðingu fyrir þessum ágætu mönnum tók ég
á mig rögg og hringdi í Þórunni Matthíasdóttur
— hana Tótu Matt, og spurði hana, hvort ég mætti
ekki koma í heimsókn. Þegar ég hafði fullvissað
hana um kosti mína sem blaðamaður, sem komu
skýrt fram í Þefaranum á sinni tíð — var ekkert
því til fyrirstöðu að koma.
Þórunn er búin að vera í London í 17 mánuði,
vann fyrst á ferðaskrifstofunni FINLANDIA og
síðan í First National City Bank of New York. —
Hún er reyndar komin með gullhring á fingur
sem merkir trúlofun með einum ágætum manni
úr ríki drottningar. Sá heitir Douglas Law og
vinnur á ferðaskrifstofu í borginni. Það má gjarn-
an taka fram, að hann nýtur óskoraðra vinsælda
meðal Islendinga í London fyrir félagsanda og
prúðmannlega framkomu, þannig að hvergi er rúm
fyrir neina afbrýðissemi út af þeirri staðreynd að
hann „náði í hana Tótu“.
Ekki að orðlengja það frekar, ég heimsótti þau
hjónaefnin um páskana í einhverju því bezta veðri
sem London hafði boðið upp á í fjölda mánaða. —
Ekki var mjög langt að fara, svo notaðir voru
,,postularnir“ í þetta skipti og von bráðar var ég
staddur upp í Highgate, sem er vinalegur borgar-
hluti í norður London með dálitlu útsýni yfir
Þórunn MaUhíasdóttir og tilvonandi eiginmaður hennar, Douglas
Law fyrir utan heimili þeirra í Highgate í London.