Hermes - 01.05.1969, Qupperneq 13
Frá borginni
við sundið
Kaupmannahöfn,
sautjón dögum eftir Kyndilmessu
á því herrans óri 1969 e. k.
Eftir móttöku álnarlangs betlibréfs frá ritstjóra
þínum, höfum við ákveðið að gera grein nokkra
fyrir veru okkar hér í Höfn.
Aðdragandi hennar er sá, að fyrir nokkrum ár-
um fékk okkar ágæti skólastjóri, Guðmundur
Sveinsson, því framgengt í samráði við ráðamenn
Verzlunarháskólans í Kaupmannahöfn, að tveir
nemendur ættu kost á að hefja frekara nám við
skólann ár hvert.
Fyrstu nemendurnir, þeir Hreiðar Karlsson
(útskr. 1965) og Þorsteinn Þorsteinsson (útskr.
1966) héldu utan síðla sumars 1967 og hófu nám
þann 1. september. Því miður varð Hreiðar að
hætta námi vegna veikinda en Þorsteinn (Steini)
tórði veturinn og lauk (fyrri-hluta-prófi) for-
prófi um vorið.
Haustið 1968 fékk Steini félagsskap þeirra Guð-
mundar Jóelssonar (útskr. 1967) og Sigurðar Gils
Björgvinssonar (útskrifaður 1963), og hófu þeir
nám af krafti. Vegna gengisfellingar og skorts á
gömlu dönsunum (Þórscafé) sá Guðmundur sér
ekki fært að koma aftur eftir jólafrí, og harma
karlar og konur sér í lagi, fráfall Guðmundar,
slíks afbragðs bridgespilara, frábærrar fótbolta-
hetju og dýrðlegs dansmanns. Hefur hann síðan
verið nefndur Guðmimdur ,,heitinn“ manna á
meðal hér í Höfn. Við létum vandræði útflutnings-
atvinnuveganna og viðbrögð viðreisnar cem vind
um veski þjóta og stundum námið enn.
Verzlunarháskólinn er mjög stór skóli, með um
4,800 nemendur, og um 390 kennara. Skólinn
skiptist í tvær aðaldeildir, máladeild og hagfræði-
deild. Af máladeildinni höfum við lítið að segja,
þar sem hún er annars staðar í borginni. Þetta
þykir okkur mjög leitt, þar sem þar ku vera gnótt
fagurra kvenna, en karlmenn fáir. Hagfræðideild
skiptist í tvær höfuðgreinar H. D. og H. A. H. D.
námið beinist að því að gera menn að sérfræðing-
um á takmörkuðu sviði og er eingöngu stundað af
Hinn nýi menntabrunnur Bifrestinga —
Verzlunarháskólinn í Kaupmannahöfn.