Hermes - 01.05.1969, Side 14
mönnum í fastri vinnu. Þar af leiðandi fer kennsl-
an. eingöngu fram á kvöldin. Má þar t. d. nefna
greinar eins og Söluhagfræði (Afsætningsökon-
omi), Skipulagningu fyrirtækja (Organisation),
Bankamál (Bankvæsen) og utanríkisviðskipti
(Udenrigshandel).
Þá komum við að okkar eigin námi, H. A. nám-
inu (H. A. er skammstöfun fyrir Handelsvinden-
skapelig afgangseksamen og starfstitill er cvilö-
konom). Námið tekur þrjú ár (lámark) og veitir
alhliða menntun í stjórnun fyrirtækja og sölu-
tækni.
Hliðstætt nám er viðskiptafræðin við Háskóla
Islands, þó lærum við meira í sumum fögum og
þeir aftur meira í öðrum. Nokkra kosti hefur þó
H. A. námið fram yfir viðskiptafræðina. Má þar
nefna, að völ er á sérhæfðum kennurum í hverri
grein, en þessu virðist ekki að heilsa við viðskipta-
fræðina. Þess má einnig geta, að okkar framhalds-
nám tekur 5—6 ár (SVS og H.H.) en viðskipta-
fræðingur er 8—9 ár að ljúka sínu námi. Að prófi
loknu er möguleiki á frekara framhaldsnámi við
skólann, svokallað cand, menrc, studium og tekur
það 3 misseri.
Ritstjóri þinn bað okkur einnig að segja þér
eitthvað frá Borginni við sundið, sem páfinn kallar
mesíu klámmyndaborg veraldar. En þar sem rit-
skoðun er ströng á Islandi, munum við sleppa
þessu skemmtilega umræðuefni að sinni. En ef
einhver (einhverjar) vildu fræðast frekara um
þetta mál, erum við til umræðu um málið á
þrengri grundvelli.
Þar sem próf og ,,seminar“ gera áhlaup á okk-
ur úr öllum áttum og tíminn orðinn naumur til
að vopnbúast, þá verður bréfið ekki lengra, en við
óskum þér kæri Hermes, gæfu og gengis í fram-
tíðinni. Siggi og Steini.
BRÉFKORN
AÐ
NORÐAN
Þegar ritstjórn Hermesar fór fram á það við Bif-
restinga á Húsavík, að þeir létu til sín heyra, hlaut
þingeyskt eðli þeirra að koma í ljós. Þeir gátu
ekki látið segja sér slíkt oft, án þess að bregðast
við á einhvern hátt.
Erfiðara reyndist þó að safna liðinu í einn stað,
sökum annríkis, áhugaleysis og fjarlægða í tíma og
rúmi, enda ekki óeðlilegt, að gamlir Samvinnu-
skólamenn hafi ýmsum störfum að gegna.
Þórhallur Björnsson var ekki fyrr seztur um
kyrrt, en hann var kjörinn foringi hornaflokksins
hér á staðnum, og innan skamms hljóp árshátíð
þeirra af stokkum, — hátíð, sem beðið var eftir í
sex ár. Þess má geta, að hljóðfæri Þórhalls er bá-
súna, sömu tegundar og Björn R. notar.
Haukur Logason fyllir einnig þennan lúðra-
flokk og þenur ,,Allt-horn“ svo að jörð titrar og
ísbirnir utan við Grímsey leggja til hafs. Kemur
það víst fáum á óvart, að Þingeyingar blási fast-
ara en aðrir.