Hermes - 01.05.1969, Side 34
skýringar (samvizka)
Ýmislegt er það í sögu þessari sem ekki liggur
ljóst fyrir. Hef ég því afráðið að skýra út ýmis hug
tök og atburði sem í henni felast, þeim sem ekki
kynnu hafa gripið staðreyndirnar. Margir munu
hafa veitt því eftirtekt og það ekki að ófyrirsynju
að hér muni á nokkurn hátt greint frá hernámi
íslands og aðstöðu okkar íslendinga til eigin sjálf-
ræðis. Eru þær ófáar setningar í frásögninni sem
bera þessu glöggt vitni og eru tæplega valdar af
tilviljun einni saman, eða til stílskreytingar, enda
eru þau orðfæri sem skörpust skil má af draga
vandlega undirstrikuð með svörtum rúnum, svo
að varla er sá bögubósi fyrirfinnanlegur, sem ekki
tekst að skynja hvert spjótum er snúið. Sam-
band „hommanna" er aðeins rammi utan um verk-
ið til að sýna vanmátt ísl. þjóðarinnar, til að tákna
hið lága menningarstig: úrkynjun.
útskýringar á orðum:
„1949“ — hernámið, Nato
„ásvallagötunni“ — völlurinn?
„0’Brian“ — amerískt nafn
„Vesturgötu“ — greinilega í ætt við USA
„Ruth Johnson“ — amerískt nafn
„herbergi" — gnmsamlega tengt hemum
„Herdís“ — dulnefni á hernum
„Keflavik“ — aðsetur hersins
efiir þessar útlistanir ætti flestum að vera ljóst
cfni sögunnar og gildi þeirra hættu er að oss steðj-
ar. minnugir þess og vitandi það að við getum
andmælt, tökum við undir með skáldinu sem
kærast hefur sungið lofsöng fósturjörðinni en
fjærst henni hefur búið, og styrkast hefur slegið
gígjustrengi ættjarðarinnar, Richard Beck.
„Vestanblær mér vængi ljær,
vegur greiður loftin há.
Ástarkær við augum hlær,
ættlands heiða tigna brá“.
XV. kafli, sökulok
beide scheinen kein reines Gewissen zu haben,
denn ihre Blicke trennen sich wieder. Peter kehrt
wieder um und biegt in einen Nebengang ein ....
Kein Zweifel, dieser Mann ist Peters Mitwisser.
um vorið gerðist ég meðlimur Landsamb. Sóknar-
presta & Djákna sem var stofnað í reykjavík 5/3.
var oft glatt á hjalla á aðalfundunum sem haldnir
voru í Breiðfirðingabúð (uppi á lofti)
á sunnudaginn var mér boðið í sundlaug vestur-
bæjar og síðan hefur ekkert til mín spurzt. er tal-
ið að ég hafi drukknað í gjálpandi brimlöðri laug-
arinnar en fyrir þá sem vildu kynna sér þessi mál
vísast til fyrra bindis Aldarminningar Búnaðar-
félags Islands eftir Dr. Þorkel Jóhannesson.
FIN
gunnarr runólfr.