Morgunblaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 8
Nú eru 10 tíðnir lausar fyrir FM-
senda fyrir hljóðvarp á höfuðborg-
arsvæðinu. Póst- og fjarskiptastofn-
un hefur auglýst þessar tíðnir laus-
ar til umsóknar með auglýsingu í
Lögbirtingablaðinu.
Eftirfarandi tíðnir eru lausar:
89,0 – 89,6 MHz, 91,9 MHz, 96,2
MHz, 101,0 – 101,5 MHz, 103,4 –
104,0 MHz, 106,0 – 106,7 MHz. Þá
verður tíðnin 100,5 MHz laus hinn
1. desember nk. Stofnuninni hefur
borist umsókn um eina af ofan-
greindum tíðnum, 100,5 MHz, frá
fyrirtækinu Skeifan 7 Eignarhald
ehf.
Fram kemur í auglýsingunni að
tíðnirnar séu háðar staðsetningum
og sendistyrk senda. Áhugasamir
geta sent inn umsókn til stofnunar-
innar fyrir 21. nóvember nk. „At-
hygli er vakin á því að skilyrði fyrir
úthlutun tíðna til reksturs hljóð-
varps er að fengist hafi leyfi til
hljóðmiðlunar frá fjölmiðlanefnd,“
segir í auglýsingunni. sisi@mbl.is
10 tíðnir á lausu
Auglýstar lausar til umsóknar
Þurfa leyfi frá fjölmiðanefnd
Morgunblaðið/Ernir
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011
Asparbaninn í borgarstjóra-stólnum leggur nú til að sveit-
arfélög á Stór-höfuðborgarsvæðinu
sameinist í eitt. Hætt er við að þessi
hugmynd hafi ekki fallið í kramið
hjá öllum og sennilega síst hjá ösp-
um í öðrum sveitarfélögum.
Nær væri aðbyrja á því að
sameina Besta flokk-
inn og Vinstri græna
í einn flokk. Af því
gæti orðið mikil póli-
tísk hagræðing.
Annar flokkurinn,
VG, hefur reynst sá allra svikulasti í
sögu íslensks flokkakerfis. Hinn
flokkurinn fór fram með það sem
helsta markmið að svíkja öll sín
kosningaloforð. Og Besti flokkurinn
hefur þegar rétt VG útrétta sátta- og
sameiningarhönd með því óvenju-
lega afbrigði í pólitík að svíkjast sér-
staklega um að svíkja það kosninga-
loforð að uppræta aspir í Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn í borg-arstjórn hefur ekki látið í sér
heyra frá kosningum Hann hafði
heyrt haft eftir De Gaulle að þögnin
gæti verið skætt vopn ef henni væri
réttilega beitt. En fræðimenn telja
að De Gaulle hafi ekki átt við þögn í
heilt kjörtímabil.
Nú er sagt að Sjálfstæðisflokk-urinn telji sig þurfa að bregð-
ast við trjáaárásum borgarstjórans
en vilji ekki ganga of langt í andstöð-
unni og leggi því til að Oslóar-
jólatréð verði friðað, en þó ekki fyrr
en eftir að það verði komið á Aust-
urvöll.
En á meðan sameinar borgar-stjórinn sveitarfélög. Hann
byrjar á Garðabæ, Njarðvík, Akra-
nesi, Reykjanesi og Reykjavík.
Hann leggur því til að hið sam-eiginlega sveitarfélag fái nafn-
ið
GNARR.
Jón Gnarr
Kristinsson
Tekist á við tré
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.11., kl. 18.00
Reykjavík 2 léttskýjað
Bolungarvík -2 snjókoma
Akureyri 0 slydda
Kirkjubæjarkl. 2 léttskýjað
Vestmannaeyjar 4 heiðskírt
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 12 skýjað
Helsinki 11 alskýjað
Lúxemborg 13 heiðskírt
Brussel 13 skúrir
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 10 léttskýjað
London 15 léttskýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 13 léttskýjað
Hamborg 11 heiðskírt
Berlín 12 heiðskírt
Vín 8 þoka
Moskva 7 alskýjað
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 18 léttskýjað
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg 2 léttskýjað
Montreal 8 léttskýjað
New York 10 heiðskírt
Chicago 12 léttskýjað
Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:14 17:10
ÍSAFJÖRÐUR 9:32 17:02
SIGLUFJÖRÐUR 9:15 16:44
DJÚPIVOGUR 8:47 16:36
Ólafur Haraldur Ósk-
arsson, landfræðingur
og fyrrverandi skóla-
stjóri, lést í Gautaborg
sl. mánudag, 78 ára að
aldri. Ólafur fæddist í
Reykjavík 17.3. 1933.
Foreldrar hans voru
Sigríður Ingunn Ólafs-
dóttir og Óskar Ást-
mundur Þorkelsson.
Ólafur varð stúdent
frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1954, stund-
aði nám í rafmagns-
verkfræði við Tec-
hnische Hochschule í
Stuttgart í 3 ár, lauk BA-prófi í
þýsku og landafræði frá Háskóla Ís-
lands 1968 og prófi í uppeldis- og
kennslufræði frá sama skóla 1971.
Hann lauk MA-prófi í landafræði og
þýsku frá Minnesota-háskóla 1974.
Ólafur var kennari við Lind-
argötuskóla 1961-74, skólastjóri Val-
húsaskóla 1974-1998 og stundakenn-
ari í landafræði við Háskóla Íslands
1974-90. Ólafur var framkvæmda-
stjóri Rauða kross Ís-
lands 1962-63 og leið-
sögumaður erlendra
ferðamanna nokkur
sumur. Hann var félagi
í Rótarýklúbbi Sel-
tjarnarness, forseti
hans 1982-83 og var
sæmdur Poul Harris-
viðurkenningu 2001.
Ólafur gegndi trún-
aðarstörfum á vegum
Glímufélagsins Ár-
manns og Glímu-
sambands Íslands, sat í
orðanefnd landfræð-
inga og kortagerð-
armanna hjá Íslenskri málstöð. Þá
var hann formaður Ættfræðifélags-
ins í nokkur ár.
Fyrri kona Ólafs var Elín Anna
Sigurðardóttir, d. 20.9. 1980. Hinn
16.3. 1983 kvæntist Ólafur Ingi-
björgu Björnsdóttur. Börn Ingi-
bjargar og stjúpbörn Ólafs eru þrjú.
Útför Ólafs fer fram frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 4. nóvember
og hefst athöfnin kl. 13.00.
Andlát
Ólafur H. Óskarsson
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Jóhannes Árnason, lögmaður Matt-
híasar Imsland, segir að niðurstaða
sýslumannsins í Reykjavík í gær sé í
fullu í samræmi við væntingar hans
og Matthíasar en hafnað var kröfu
Iceland Express og eiganda þess,
Pálma Haraldssonar, um lögbann á
hendur Matthíasi. Hann var nýlega
rekinn úr starfi forstjóra IE en mun
verða forstjóri nýs flugfélags,
WOWAir, sem tekur senn til starfa.
„Þessi niðurstaða er í fullu sam-
ræmi við okkar væntingar, enda lá
alltaf ljóst fyrir að megintilgangur
lögbannskröfunnar var að skaða orð-
spor skjólstæðings míns, fremur en
nokkuð annað,“ segir í yfirlýsingu
Jóhannesar í gær.
„Við lítum svo á að með þessu sé
fullt atvinnufrelsi Matthíasar stað-
fest og vonum að þar með sé mála-
rekstri gegn honum af hálfu Pálma
og Iceland Express lokið – ekki síst í
ljósi ummæla sem fallið hafa í fjöl-
miðlum um að félagið óttist ekki
samkeppni.“
Iceland Express hyggst kæra úr-
skurðinn til héraðsdóms. Félagið
segir í yfirlýsingu að Matthías sé enn
á launum, hafi síðast fengið laun upp
yfir milljón króna um þessi mánaða-
mót, sé með síma, fartölvu og heima-
tölvu frá fyrirtækinu og fái greiddan
bifreiðastyrk. Uppsagnarfrestur
hans rennur ekki út fyrr en 1. apríl
2012. Matthías hafi í sínum fórum
upplýsingar um starfsemi Iceland
Express og stór hluti þeirra sé við-
skiptaleyndarmál.
„Reyndar er stjórn félagsins
þeirrar skoðunar að samkvæmt
ráðningarsamningi sé Matthíasi ekki
heimilt að koma að sams konar
rekstri í 24 mánuði að uppsagnar-
fresti liðnum,“ segir IE.
Hyggjast kæra úr-
skurð um lögbann
Matthías Imsland enn á launum hjá IE
Tunguhálsi 10,
110 Reyjavík