Morgunblaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011 Barnabækur Birta Björnsdóttir birta@mbl.is Yfirlit yfir nýútkomnar barna- bækur, íslenskar og þýddar. Af hverju gjósa fjöll? Spurningar og svör af Vísindavefnum um eldgos Þorsteinn Vilhjálmsson og Jón Gunnar Þor- steinsson. Þórarinn Már Baldursson mynd- skreytti. Mál og menning. bbbbm Fjölmargir fróðleiksfúsar hafa í gegnum tíðina leitað ráða hjá Vísindavef Háskóla Ís- lands. Það er því góð hugmynd að nýta þenn- an fróðleik til bókaútgáfu og það er gert í fyrsta sinn með útgáfu þessarar bókar. En það þarf að vanda til verka þó svo að fróðleik- urinn sé áhugaverður á heimasíðunni og það hefur svo sannarlega tekist vel til í þetta sinn. Í bókinni eru 40 spurningar og svör um eld- fjöll og þær eru allt frá vangaveltum um af hverju eldgos verða yfir í spurningu um hvort íslenskt móberg segi okkur eitthvað um líf á Mars. Bókin er vel heppnað fræði- og upp- flettirit og ætti að nýtast vel börnum sem vilja fræðast um eldfjöll, jarðfræði og sögu jarðarinnar. Það mætti kannski setja spurningarmerki við val á einhverjum spurninganna í bókinni, sérstaklega þegar farið er inn á Vísindavefinn og allar spurningar um eldgos skoðaðar. Spurningar á borð við hvað er eldgos heitt og hvað er öflugasta eldgos sem vitað er um hér á landi, hefðu að mínu mati átt vel heima í bókinni, en það er auðvitað smekksatriði. Þórarinn Már Baldursson á heiðurinn af frábærum teikningum bókarinnar, sem eru bókinni og fróðleik hennar algjörlega nauð- synlegar. Teikningarnar eru bráðsniðugar, fullar af hlýju og húmor og þjóna textanum fullkomlega. Þórarinn á einnig heiðurinn af teikningum í bókunum um Maxímús Músíkús og það er vonandi að við fáum að sjá meira til hans verka á komandi árum. Svo má einnig binda vonir við að við sjáum meiri fróðleik af Vísindavefnum í þessum búningi í framtíðinni, af nógu er að taka. Hávamál Þórarinn Eldjárn endurorti. Kristín Ragna Gunn- arsdóttir myndlýsti. Mál og menning. bbbmn Garðurinn sem ráðist er á við endurútgáfu Gestaþáttar Hávamála í bundnu máli er í hærra lagi, því er ekki að neita. Hinsvegar eru eflaust fáir til þess betur fallnir en Þór- arinn Eldjárn, sem hefur fyrir óralöngu sann- að færni sína í meðferð íslenskrar tungu. Sama hvað manni finnst um endurútgáfu á texta sem þessum, ekki er um að villast að vandað er til verka og texti Þórarins er vel saminn og afar læsilegur. Það er kannski hæpið að flokka bókina með Af hverju gjósa fjöll? Myndskreytingar Þórarins Más eru hýjar, upplýsandi og fullar af húmor. barnabókum þó svo að öllum börnum væri hollt og gott að kynnast Hávamálum. Full- orðnir ættu ekki síður að hafa gagn og gaman af bókinni og hún á eflaust eftir að nýtast vel sem tilvalin gjöf fyrir börn, unglinga og full- orðna á komandi árum. Myndskreytingar Kristínar Rögnu Gunn- arsdóttur eru margar hverjar mjög vel gerð- ar og fallegar. Þær eru eilítið súrrealískar á köflum og hver og ein listaverk út af fyrir sig, þó að þær þjóni textanum mis vel. Flugan sem stöðvaði stríðið Bryndís Björgvinsdóttir Vaka-Helgafell bbbbn Það er ekki oft sem tækifæri gefst til að lesa heila bók sem sögð er út frá sjón- arhóli húsflugna. Sú staðreynd ein og sér ætti að vera nógu góð ástæða til að mæla með lestri bókarinnar Flugan sem stöðvaði stríðið. Enn betri ástæður eru þær að bókin er skemmtileg, frumleg og vel skrifuð og vel skiljanlegt að Bryndís Björgvinsdóttir hafi fengið fyrir Ís- lensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina á dögunum. Sagan segir frá ferðalagi Kolkexar, Her- manns Súkker og Flugunnar á slóðir munka í Nepal sem að sögn gera ekki flugum mein. Á leiðinni kynnast þær kollegum sínum í As- sambad sem kynna þær fyrir hörmungum stríðs. Sagan er ekki löng, einungis rúmar 100 blaðsíður, og er það vel. Magn er nefnilega ekki sama og gæði og sannast það vel í þess- arri stuttu og hnitmiðuðu sögu um hvernig margt mátt gerir eitt stórt með vináttu og samkennd að vopni. Bryndís skrifar skemmti- legan texta sem bæði börn og fullorðnir ættu að hafa gaman af og fullvíst að allir lesendur bókarinnar láta vera að kremja til bana næstu húsflugu sem kíkir í heimsókn. Náttúrugripasafnið Sigrún Eldjárn Mál og menning bbbbn Náttúrugripasafnið er sjálfstætt framhald Forngripasafnsins og þau Rúnar, Magga og Lilli fá ný verkefni til að kjást við. Sigrún Eldjárn kann að skrifa bækur fyrir börn, á því leikur lítill vafi. Indversk blómafræ, dvergar og dularfullir menn með sólgleraugu er meðal þess sem kemur við sögu í þessarri skemmti- legu og spennandi ævintýrabók fyrir alla krakka. Sagan er þrælspennandi og líkt og í öllum góðum spennusögum er um miðbikið fjölda spurninga ósvarað og fjöldi dularfullra persóna á kreiki svo ekki er annað hægt en að halda lestrinum áfram allt til enda Samræður krakkanna eru reyndar einstöku sinnum einum of einfaldar, þá fær lesandi á tilfinninguna að verið sé að koma upplýs- ingum einum og kirfilega til skila, sem er óþarfi. Að lokum má nefna að brot bókarinnar er skemmtilegt, það er í minna lagi og sú stað- reynd, ásamt skemmtilegum svart/hvítum myndskreytingum Sigrúnar, gefur bókinni gamaldags og sjarmerandi yfirbragð. -EMPIRE HHHH - KVIKMYNDIR.IS/ SÉÐ & HEYRT HHHH FRÁBÆ R TÓN LIST - MÖG NUÐ DANSA TRIÐI EINN BYG F Æ AL LADDI - EGILL ÓLAFSSON - ÖRN ÁRNASON NÝJASTA ÆVINTÝRIÐUM BANGSANN SEM ALLIR ELSKA TINNI, TOBBI OG KOLBEINN KAFTEINN, DÁÐUSTU HETJUR ALLRA TÍMA LIFNA VIÐ Í FLOTTUSTU ÆVINTÝRAMYND SÍÐARI ÁRA. "GÓÐUR HASAR OG FRÁBÆR HÚMOR, SJÁÐU HANA UNDIR EINS!" - TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS HHHH MYNDINSEMALLIRERUAÐTALAUM SEMÓVÆNTASTASMELLÁRSINS. BYGGÐÁMETSÖLUBÓKINNI HÚSHJÁLPINEFTIRKATHRYNSTOCKETT „SÍGILD FRÁ FYRSTA DEGI“ - US WEEKLY HHHH „BESTA KVIKMYND ÁRSINS“ - CBS TV HHHH „STÓRKOSTLEG“ - ABC TV HHHH „FYNDIN, TILKOMUMIKIL“ - BACKSTAGE HHHH R FYRIR EINN KUSPENNANDI NTÝRAMYND EM ALLIR TU AÐ HAFA GAMAN AF DANUM STEVEN SPIELBERG - J.C. SSP HHHH -S.S. FILMOPHILIA.COM HHHH -J.O. JOBLO.COM HHHH FABAKKA FYRIR ALLA - ALLI GÐ Á EINU RÆGASTA VINTÝRI LRA TÍMA HÖR ÆVI S ÆT 15.000 MANNS Á AÐEINS 11 DÖGUM! - H.S.S., MBL HHHHH HUGH JACKMAN ER FRÁBÆR Í EINNI ÓVÆNTUSTU MYND ÁRSINS FRÁ FRAMLEIÐAN SÝND Í ÁL MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS ÆVINTÝRITINNA Enskt tal kl. 5:50 - 8 - 10:10 3D 7 THEHELP kl. 5:30 - 8:30 - 10:10 2D L THETHREEMUSKETEERS kl. 5:40 - 8 3D 12 FOOTLOOSE kl. 5:50 VIP - 8 2D 10 REAL STEEL kl. 10:20 2D 12 JOHNNYENGLISHREBORN kl. 5:50 - 8 2D 7 KONUNGUR LJÓNANNA kl. 6 Ísl. tal 2D L DRIVE kl. 8 - 10:20 2D VIP / ÁLFABAKKA ÆVINTÝRITINNA Enskt tal kl. 5:40 - 8 - 10:30 3D 7 THEHELP kl. 6 - 9 2D L ÞÓR kl. 5:40 3D L THETHREEMUSKETEERS kl. 8 - 10:30 3D 12 FOOTLOOSE kl. 5:40 - 8 - 10:30 2D 10 ÆVINTÝRITINNA Enskt tal kl. 8 3D 7 THETHREEMUSKETEERS kl. 10:20 3D 12 BORGRÍKI kl. 8 2D 14 KILLER ELITE kl. 10 2D 16 / EGILSHÖLL / KRINGLUNNI / KEFLAVÍK / AKUREYRI / SELFOSSI DONGIOVANNI Óperaendurfl. kl. 6 L THEHELP kl. 6 - 9 2D L THETHREEMUSKETEERS kl. 10:20 3D 12 FOOTLOOSE kl. 8 2D 10 THE SKIN I LIVE IN kl. 10:10 2D 16 BANGSÍMON kl. 6 Ísl. tal 2D L ALGJÖR SVEPPI kl. 6 Sýndámorgun 2D L THEHELP kl. 6 - 9 2D L THETHREEMUSKETEERS kl. 6 - 8 - 10:10 2D 12 SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KEFLAVÍK SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK NÆSTU SÝNINGAR Á FÖSTUDAGSÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL OG KRINGLUNNI SÝND Í EGILSHÖLL Don Giovanni Mozart www.operubio.is 2. nóv kl.18:00 Endurflutt Leikstjóri: James Levine Leikarar: Marina Rebeka, Barbara Frittoli, Moja Erdmann, Ramón Vargas, Mariusz Kwiecien, Luca Pisaroni, Joshua Bloom.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.