Morgunblaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.11.2011, Blaðsíða 11
Bók og diskur Strákurinn sem ekki vildi selja húfuna sína og prestsins dansandi kona prýða bókarkápuna. það kemur. Börn eru ekki eins for- dómafull og við hin fullorðnu, þau snúa ekki upp á sig og segja „þetta er gamalt og asnalegt.“ Þessi bók er fyrir öll börn, ekki fyrir einhverja sér- vitringa. Ég vildi gera þetta sem aðgengileg- ast og því mátti þetta ekki vera stór bók eða þung og hún mátti ekki vera frá- hrindandi. Ég vildi ekki hafa þetta íburðarmikið, held- ur lítið og óalvar- legt.“ Lærði að lesa fornt letur Fyrsta nám- skeiðið sem Eva María sótti þegar hún byrjaði í meistaranáminu, var fíló- lógía eða textafræði. „Þar var verið að kenna okkur að vinna með handrit og búa til út- gáfu. Þegar ég sagðist vilja gera kvæðaverkefni þá benti Guðrún Ása Grímsdóttir mér á Fornkvæða- bók Gissurar Sveinssonar. Hann var prestur í Álftafirði við Arnar- fjörð á sautjándu öld og það er að- eins eitt eintak til af þessari bók. Hún er handskrifuð af Gissuri, þetta er því mikið dýrmæti,“ segir Eva þar sem hún flettir síðum handritsins ofurvarlega með ný- þvegnum höndum. „Bókina lauk Gissur við að skrifa árið 1665, þetta er því um 350 ára bók. Ég kunni ekki að lesa þetta gamla letur en lærði það smám saman. Þetta er eins og að læra að lesa upp á nýtt, skrift þessa tíma er allt önnur en sú sem við þekkjum í dag. Þetta er heilmikil augnaþjálfun og allskonar hljóð eru táknuð sem ekki eru lengur táknuð,“ segir Eva María sem eftir þetta fyrsta námskeið sitt hefur lært að lesa alla mögulega skrift. Börn vilja dramatísk ævintýr Í bók Gissurar fann Eva María Tófukvæði, þar sem segir af kon- unni Tófu sem eignast barn með Birni, og hún vill dans heyra. „Það- an kemur einmitt titillinn á bókinni okkar Óskars. Þetta kvæði kom út á diskinum Raddir sem gefin var út fyrir aldamótin 2000 og ég hafði æft mig á að kveða það með börn- unum mínum eftir þeim diski. Mér fannst þetta frábær tenging, að finna í þessari fornu bók eitthvað sem var mér kunnuglegt. Þá datt mér í hug að þetta ætti erindi við nútímabörn, sérstaklega ef maður segir þeim söguna fyrst og dregur út aðalatriðin. Þetta sagnakvæði um hana Tófu er dálítið svakalegt, hún ber barnið út, hrafn tekur það og flýgur með út yfir sjó og missir það. Barnið lendir þá á skipi þar sem greifi situr og grípur barnið og þegar hann sér það kemst hann að því að þetta er hans eigið barn. Þetta er náttúrulega stórkostleg saga. Börn skilja og eiga auðvelt með að setja sig í spor þessa barns sem lendir í þessum æv- intýrum og miklu dramatík,“ segir Eva María og bæt- ir við að fólk þurfi ekki að vera hrætt við að kynna börn fyrir mátulegum hryllingi því ef ein- hver sem barnið treystir segir sög- una, þá er barnið í stakk búið til að upp- lifa óttann í öruggu skjóli. „Gott getur verið að hræða börn í góðu hófi heima hjá sér til að búa þau undir lífið. Svo þau verði ekki berskjölduð. Fyrsta hugmyndin hjá mér var reyndar að velja einvörð- ungu hræðilega sagnadansa, en svo sá ég að margt var of hræðilegt, sérstaklega fyrir ung börn, svo ég hvarf frá þeirri hugmynd.“ Heillandi gamlar raddir Hún segist hafa komist að því að það væri ekki rétt gagnvart þessum textum að birta þá á bók án þess að með fylgdi diskur þar sem þeir eru kveðnir. „Sagnakvæð- in njóta sín best þegar þau eru kveðin. Tilfinningin er allt önnur heldur en ef þau eru lesin upp. Ég ákvað því að láta fylgja með disk með gömlum upptökum og fyrir vikið helgaðist val mitt á textum af því hvað var til á hljóðupptökum. Ég vildi ekki kveða þetta upp á nýtt inn á disk, eða láta kveða fyrir mig, af því ég vildi gera aðgengi- legar þær upptökur sem fólkið hér á Árnastofnun hafði fyrir að sækja á sjöunda áratugnum. Þau fóru út um allt land og sóttu kveðskap, sögur og frásagnir. Sumar raddirnar voru svo heillandi að þær urðu hreinlega að vera með, til dæmis kvæðafólkið sem kveður lausavísurnar, það er svo viðkunnanlegt og hlýtt. Ég hugsa diskinn sem stuðning, svo fólk geti lært að kveða, en einnig má nota hann til að spila kveðskap- inn fyrir börnin, kannski þegar þau fara að sofa.“ Napurt Hér má sjá eina síðu úr bókinni, blessuðum lömbunum frekar kalt. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011 Næstkomandi laugardag verður boð- ið upp á lifandi viðburð með leik- rænum tilþrifum í tengslum við sögu- smiðjuna Sérvizka Kjarvals sem myndlistarmaðurinn Huginn Þór Ara- son leiðir með aðstoð Klöru Þórhalls- dóttur, fulltrúa fræðsludeildar. Hug- inn kemur fram með hluti, myndefni og sögur tengdar smiðjunni og veltir fyrir sér á lifandi og myndrænan hátt hvort uppátæki og hversdagslegar athafnir Jóhannesar Kjarvals hafi í raun verið gjörningar. Athafnir og uppátæki Kjarvals þóttu ögra ís- lensku samfélagi og borgaralegum gildum og almenningur furðaði sig á honum. Hann var sagður vera með trúðslæti, athyglissýki og hegða sér á ýmsan hátt andfélagslega. Þeirri spurningu er velt upp hvort líta megi á athafnir Kjarvals sem hluta af skap- andi vinnuferli hans og hvort þær hafi meðvitað listrænt inntak. Í Sögu- smiðjunni er unnið upp úr þekktum og birtum heimildum, safneign og skjalasafni Kjarvalsstaða en einnig rannsókn Hannesar Lárussonar um upphaf gjörningalistar á Íslandi frá árinu 1980, sem Gjörningaarkíf Ný- listasafnsins varðveitir. Huginn Þór Arason hefur unnið að jöfnu sem myndlistarmaður og sýningarstjóri ásamt öðrum verk- efnum, t.a.m. í leikhúsi og við list- kennslu. Hann sat í stjórn Ný- listasafnsins 2006-2010 og stofnaði ásamt öðrum Gjörningaarkíf Ný- listasafnsins árið 2008. Afsprengi verkefnisins er sérstök útvarpsdags- skrá sem unnin er í samvinnu Ný- listasafnsins og Ríkisútvarpsins þar sem íslenskir gjörningalistamenn lýsa verkum úr sínu ranni. Viðburð- urinn er öllum opinn og fer fram á ís- lensku. Frítt er fyrir handhafa Menn- ingarkortsins, en nánari upplýsingar um aðgangseyri eru að finna á www.listasafnreykjavikur.is. Sögusmiðja Sérvizka Kjarvals skoðuð asdf qwerty Kjarval Athafnir og uppátæki listamannsins þóttu ögra íslensku samfélagi. Opinn hugarflugsfundur um gerð nýrrar Menningarstefnu Akureyr- arbæjar fer fram á föstudaginn klukkan 14-18 í Ketilhúsinu. Er fólk hvatt til að mæta þangað og taka þátt í að skapa nýja metnaðarfulla og skemmtilega stefnu fyrir menning- arbæinn Akureyri. Frá byrjun þessa árs hafa fimm hópar verið starfandi og skoðað ólíkar listgreinar en á fundinum verður farið yfir afrakstur vinnuhópanna og kallað eftir hug- myndum frá bæjarbúum. Meðal ann- ars verður leitað svara við spurn- ingum á borð við: Hvernig sérðu framtíð listgreinarinnar eftir 10 ár? Hvaða hindranir sérðu í að ná þessari framtíðarsýn? og Hvaða lausnir sérðu til að yfirstíga þessar hindr- anir? Eru allir velkomnir á fundinn. Menningarstefna Akureyrar Á hugarflug - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.