Morgunblaðið - 02.11.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011
Íbúasamtök miðborgar, foreldra-
félög leik- og grunnskóla í miðborg-
inni og Hverfisráð miðborgar efna
til málþings um miðborgina sem
íbúahverfi laugardaginn 5. nóv-
ember nk. milli kl. 11 og 15 í matsal
Tækniskólans.
Á málþinginu verður hugað að
innri málum hverfisins og því
hvernig hægt er að bæta það sem
íbúabyggð. Rætt verður um aðstöðu
barna og unglinga, fjölskyldna og
eldri borgara, aðstöðu til félags-
starfs, leiksvæði og umferðaröryggi
o.fl. sem á íbúum brennur. Allir íbú-
ar miðborgar eru hvattir til að
mæta.
Morgunblaðið/Golli
Garðar Leikið með flugdreka í Hljóm-
skálagarðinum í miðborginni.
Rætt um miðborg
Föstudagskvöldið 4. nóvember kl.
20 flytur Gísli Jökull Gíslason fyr-
irlestur í MÍR-salnum, Hverfisgötu
105, um átökin á austurvígstöðv-
unum í síðari heimsstyrjöldinni,
föðurlandsstríðið mikla eins og
Rússar nefna innrásarstríð Þjóð-
verja í Sovétríkin á árunum 1941-
1945. Daginn eftir, laugardaginn 5.
nóv., verður sérstæð sýning tengd
efni fyrirlestursins opin á sama
stað.
Gísli Jökull mun í erindi sínu
rekja gang stríðsins stig af stigi, allt
frá innrásinni sumarið 1941 og að
falli Berlínar.
Á sýningunni verður sett á svið
með módelum í stærðarhlutföll-
unum 1:100 ein af mestu orrustum á
austurvígstöðvunum, orrustan við
Minsk.
Fjalla um „föður-
landsstríðið“
Fyrirlestur um stíflur í ám og til-
raunir til að greiða för sjógöngu-
fiska á áhrifasvæðum stíflumann-
virkja verður haldinn í
Háskólabíói, Sal 2, kl. 11.50-13.20,
á morgun, fimmtudaginn 3. nóv-
ember.
Fyrirlesari er dr. Margaret J.
Filardo líffræðingur, forstöðu-
maður Fiskvegamiðstöðvarinnar í
Oregon-ríki í Bandaríkjunum.
Aðrir sem taka til máls eru m.a.
Óli Grétar Blöndal Sveinsson,
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Landsvirkjunar, og Magnús Jó-
hannsson, fiskifræðingur hjá
Veiðimálastofnun.
Fyrirlesturinn er öllum opinn en
hann er haldinn á vegum verk-
fræði- og náttúruvísindasviðs Há-
skóla Íslands, Stofnunar Sæmund-
ar fróða og NASF, Verndarsjóðs
villtra laxastofna.
Stíflur í ám og áhrif
þeirra á fiskstofna
Laugardags-
fundur Heila-
heilla verður á
Litla sviðinu í
Borgarleikhús-
inu laugardag-
inn 5. nóvember
nk. kl. 11-13.
Sérstakir gestir
verða Ingibjörg
Sólrún Gísla-
dóttir, fyrrver-
andi borgarstjóri og utanrík-
isráðherra, og Guðrún
Karlsdóttir, endurhæfingarlæknir
á Grensásdeild. Dagskrá hefst á
skýrslu formanns, Þóris Stein-
grímssonar.
Laugardagsfundur
Heilaheilla
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
STUTT
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Tog- og nótaskipið Víkingur AK, skip HB Granda,
er nú í slipp í Reykjavík vegna hefðbundins við-
halds en í liðinni viku var systurskipið Sigurður
VE á sama stað af sömu ástæðu. Skipin hafa að
mörgu leyti fylgst að í rúma hálfa öld, verið í hópi
þeirra aflahæstu og ávallt skipuð góðum áhöfnum.
Þessi aflaskip komu til landsins fyrir um 51 ári
og eiga sér merka sögu. Þau voru smíðuð hjá AG
Weber Werk í Bremerhaven í Þýskalandi árið
1960, en eldri systurskip þeirra voru Maí GK og
Freyr RE. Tvö síðarnefndu skipin voru seld úr
landi og Freyr kom við sögu í þorskastríðunum,
hét þá Ross Revenge, auk þess sem útvarpsstöðin
Radio Caroline var í skipinu á tímabili.
Til Akraness haustið 1950
Síldar- og fiskimjölsverksmiðja Akraness lét
smíða Víking. Skipið var 950 brúttólestir með
2.400 hestafla vél. Ganghraðinn var 16-17 sjómílur
á klukkustund og voru umrædd systurskip með
stærstu og fullkomnustu fiskiskipum landsmanna
fyrir hálfri öld.
Víkingur var smíðaður sem síðutogari með
þriggja hæða yfirbyggingu. 1967 var honum
breytt í nótaveiðiskip og síðan fór hann á síldveið-
ar. Eftir að síldin hvarf var Víkingur notaður sem
síðutogari á ný en aftur breytt í nótaveiðiskip
1976. Skipt var um aðalvél 1981 og rafmagns-
kerfið endurnýjað. 1989 kom ný brú og þá var
efsta íbúðarhæðin líka endurnýjuð.
Heildarafli Víkings er um 940.000 tonn. Und-
anfarin ár hefur skipið lengst af verið bundið við
bryggju á Akranesi en verið notað til loðnuveiða
frá 2005. Víkingur landaði fyrsta loðnuafla hausts-
ins, um 1.000 tonnum, og fór í þrjá túra í október
áður en farið var með hann í slipp.
Morgunblaðið/Kristinn
Eftirlit Vel er fylgst með tog- og nótaskipinu Víkingi AK, skipi HB Granda, en það er nú í slipp í Reykjavík vegna hefðbundins viðhalds.
Fylgjast að á sjó sem þurru landi
Aflaskipið Víkingur AK í slipp í Reykjavík á eftir systurskipinu Sigurði VE
Nýliðinn októbermánuður var frem-
ur hlýr um mestallt land, hlýjastur að
tiltölu austanlands en svalastur á
Vestfjörðum. Úrkomusamt var í
flestum landshlutum og óvenjumikil
úrkoma á fáeinum veðurstöðvum.
Þetta kemur fram í yfirliti Trausta
Jónssonar veðurfræðings.
Meðalhiti í Reykjavík mældist 5,0
stig og er það 0,6 stigum ofan með-
allags áranna 1961 til 1990 en í með-
allagi síðasta áratugar. Meðalhiti á
Akureyri var 3,4 stig og er það 0,4
stigum ofan meðallags. Á Höfn í
Hornafirði var meðalhiti 5,7 stig, 1,2
stigum hærra en í meðalári. Á Hvera-
völlum var meðalhitinn -0,7 stig og er
það 0,5 stigum ofan meðallags.
Að tiltölu varð hlýjast á Fljótsdals-
héraði. Hiti á Egilsstöðum var 2,2
stigum ofan meðallags, en kaldast
var að tiltölu á Vestfjörðum, hiti 0,2
stigum undir meðallagi í Bolungar-
vík. Októbermánuður er sá fimmti
hlýjasti á Egilsstöðum síðan mæling-
ar hófust fyrir 56 árum.
Úrkomumet víða slegin
Október telst vera úrkomusamur.
Í Reykjavík mældist úrkoman 104,3
millimetrar og er það 22% umfram
meðallag. Í Stykkishólmi mældist úr-
koman 70% umfram meðallag, enn
meiri var úrkoman þó í október 2007.
Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum
mældist úrkoman 56% umfram með-
allag.
Mánaðarúrkomumet voru slegin á
nokkrum stöðvum. Af þeim stöðvum
sem lengi hafa athugað má nefna
Æðey (athuganir í október aftur til
1954), Hraun á Skaga (athuganir aft-
ur til 1956), Tjörn í Svarfaðardal (at-
huganir aftur til 1969) og á Gríms-
stöðum á Fjöllum (samfelldar
úrkomumælingar frá og með 1936).
„Þetta eru allt stöðvar þar sem úr-
koma er oftast fremur lítil og er
væntanlega til marks um að loft-
straumar hafi verið eitthvað óvenju-
legir,“ segir Trausti.
Meðalhiti fyrstu 10 mánaða ársins í
Reykjavík er 6,2 stig og er það um 1,1
stigi hlýrra en í meðalári 1961 til
1990, en nákvæmlega í meðallagi
miðað við 2001 til 2010. Í Stykkis-
hólmi er meðaltal fyrstu 10 mánaða
ársins 1,0 stigi ofan meðallagsins
1961 til 1990. Á Akureyri er meðalhiti
fyrstu 10 mánuði ársins 0,8 stigum of-
an meðallags. sisi@mbl.is
Október var
hlýr en blautur
Úrkoma var víða langt yfir meðallagi
Fyrstu 10 mánuðir ársins eru hlýir
Morgunblaðið/Ómar
Úrkoma Regnhlífar komu víða að
góðum notum í nýliðnum mánuði.
INCQC 2012 G05
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Ný sending
Peysur og vesti
Stærðir
36-52
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Myndlista
vörur
í miklu ú
rvali
Strigar, ótal stærðir
frá kr.195
Acryllitir 75 ml
kr.480
Gólftrönur
frá kr.4.395
Þekjulitir/Föndurlitir
frá kr.480 16 ára
Verkfæralagerinn
Fullt af nýjungum í lista-og föndurdeild
Blýantar, Strokleður, Trélitir, Tússlitir,
Teikniblokkir, Teiknikol, Föndurlitir,
Þekjulitir, Vatnslitir, Akrýllitir, Olíulitir,
Penslar, Skissubækur, Vattkúlur, Vír,
Vatnslitablokkir, Leir, Lím, Kennara-
tyggjó, Föndurvír,Límbyssur, Lóðboltar,
Hitabyssur, Heftibyssur, Málningar-
penslar og málningarvörur
í miklu úrvali