Morgunblaðið - 02.11.2011, Page 16

Morgunblaðið - 02.11.2011, Page 16
Reuters Slæmar horfur Óvissa vegna Grikklands hélt áfram að skekja fjármálamarkaði í gær. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Skjálftavirkni á fjármálamörkuðum fer á ný vax- andi en ákvörðun grísku ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um skilyrði síðustu efnahagsáætlunar Evrópusambandsins leiddi til verulegrar lækkunar á hlutabréfamörkuðum í gær. Ákvörðunin er talin festa í sessi óvissu um framkvæmd síðustu björgunaráætlunar ESB vegna skuldakreppunnar á evrusvæðinu, sem til- kynnt var um í síðustu viku, og óttast er að hún muni leiða til þess að ekki verði hægt að afstýra allsherjargreiðslufalli gríska ríkisins. Dax-vísitalan í kauphöllinni í Frankfurt féll um tæp 5% í viðskiptum í gær en rétt eins og í öðrum kauphöllum á meginlandinu voru það lækkanir á gengi í hlutabréfum banka og fjármálafyrirtækja sem stýrðu gangi mála. Þannig féll gengi hluta- bréfa í Deutsche Bank og Commerzbank um meira en 9% í gær. Gengi hlutabréfa stóru frönsku bankanna féll einnig umtalsvert í kauphöllinni í París en efnahagsreikningar þeirra eru afar ber- skjaldaðir gagnvart verðfalli grískra ríkisskulda- bréfa. Gengi hlutabréfa í Société Générale féll til að mynda um rúm 16% í viðskiptum gærdagsins. Greinileg merki óróans mátti sjá á mörkuðum með ríkisskuldabréf evruríkjanna. Ávöxtunar- krafan á ítölsk ríkisskuldarbéf fór vel yfir 6% í gær en sérfræðingar á markaði telja fjárhag ítalska ríkisins ekki standa undir slíkum fjár- magnskostnaði til lengdar. Þá lækkaði gengi evr- unnar markvert gagnvart Bandaríkjadal á gjald- eyrismörkuðum. Ókyrrð á mörkuðum  Vaxandi óvissa á mörkuðum vegna óvænts útspils grískra stjórnvalda  Hlutabréf banka lækka mikið 16 FRÉTTIRViðskipti/Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011 Morgunblaðið/Jakob Fannar Framkvæmdastjóri Baldur Björnsson í Múrbúðinni. Icelandair leitaði hvorki eftir tilboð- um frá Múrbúðinni né Byko í tengslum við umfangsmiklar breyt- ingar á hóteli sínu á Akureyri í vor. Þetta kom fram í erindi Baldurs Björnssonar, framkvæmdastjóra Múrbúðarinnar, á opnum fundi um samkeppnisáhrif eignarhalds banka á fyrirtækjum í gær. Auk Baldurs hélt Jón Steinn Elíasson, fram- kvæmdastjóri Toppfisks, tölu um samkeppnisstöðuna í sjávarútvegi. Baldur sagði að við hótelfram- kvæmdir Icelandair á Akureyri virt- ust hafa verið send skilaboð til verk- takanna sem unnu að verkinu að kaupa allt efni í Húsasmiðjunni. Framtakssjóðurinn á Húsasmiðjuna og hlut í Icelandair, og Landsbank- inn á í Framtakssjóðnum. Baldur sagði þetta vera eitt dæmi um hvern- ig aðkoma bankanna skekkti sam- keppnisstöðuna á markaði í dag. Ennfremur sagði Baldur að sér virt- ist sem Reitir, fasteignafélag Lands- bankans, verslaði eingöngu við Húsasmiðjuna og að félagið hefði ekki leitað til Múrbúðarinnar eftir tilboðum í viðskipti. Hann taldi litlar líkur á því að Samkeppniseftirlitið gæti beitt sér í slíkum málum þar sem erfitt kynni að vera sanna að- samkeppnisbrot hefðu verið framin. ornarnar@mbl.is Ekki leitað eftir tilboðum  Segir viðskiptum Icelandair hafa verið beint til Húsasmiðjunnar án útboðs Stuttar fréttir ... ● Skuldatryggingarálag á ríkissjóð Ís- lands hefur hækkað nokkuð á síðustu dögum og stóð í lok mánudags í 300 punktum (3,00%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni. Á árinu hefur álagið farið hæst upp í 330 punkta sem var í byrjun október en lægst niður í 200 punkta sem var snemma í júní. Að jafnaði hefur álag rík- issjóðs verið 260 punktar á árinu. Skuldaálagið upp á við ● Hæsta tilboðið, sem barst í hlut skilanefnda Landsbankans og Glitnis í bresku verslunarkeðjunni Iceland, er sagt vera upp á 1,3 millj- arða sterlings- punda eða 273 milljarða króna Þetta kom fram í breska blaðinu Mail on Sunday um helgina. Fjárfestar hafa nú lagt inn tilboð í fyrstu umferð á sölu 67% hlut skilanefndar Landsbankans og 10% hlut skilanefndar Glitnis á Ice- land en þrotabúin fengu hlutabréfin í verslunarkeðjunni í sinn hlut við gjald- þrot Baugs Group á sínum tíma. Hæsta tilboðið í Iceland 273 milljarðar króna Landsbankinn ● Bandaríska blaðið The New York Times fullyrti í gær að eftirlitsaðilar rannsaki nú hvort hundruð milljóna bandaríkjadala hafi horfið sporlaust úr bókum MF Global rétt áður en fyr- irtækið lýsti sig gjaldþrota á mánudag. Í ljós kom að upphæðirnar var ekki að finna í bókum MF Global-fyrirtækisins þegar var verið að ganga frá sölu þess til annars verðbréfafyrirtækis um helgina. Í kjölfarið varð ekkert af við- skiptunum. Salan hefði afstýrt gjald- þrotinu en það hefur valdið töluverðum titringi á mörkuðum vestanhafs. Rannsókn hafin í kjölfar gjaldþrots MF Global og birgðastöðvar skipti máli. Guðmundur varar hins vegar við því að gera sér of miklar væntingar um að Ísland verði þungamiðja í skipaflutningum milli Asíu og Evr- ópu um norðurskautið með sérút- búnum skipum. Að mati Guðmund- ar eru enn 10-20 ár í að slíkir flutningar verði að veruleika. Ís- lendingar þurfa engu að síður að vera undir það búnir hvernig við getum tekið á móti þessum stóru skipum í höfn á Íslandi, segir Guð- mundur. „Ef við náum að markaðs- setja okkur sem umhleðsluhöfn gæti það orðið gríðarleg lyftistöng fyrir Íslendinga.“ Ísland verði selt sem umskipunarhöfn  Bráðnun íss á norðurskautinu skapar ný tækifæri Morgunblaðið/Golli Verðlaun Mentor hlaut í gær Nýsköpunarverðlaun Íslands árið 2011. Hörður Ægisson hordur@mbl.is Það er alls ekki sjálfgefið að Ísland verði umskipunarhöfn þegar ný flutningaleið verður til milli Asíu og Evrópu samhliða bráðnun íss á Norðurskautinu. Til þess að svo megi verða þurfa Íslendingar „að hafa þessa nýju heimsmynd í flutn- ingum til hliðsjónar við alla ákvörðunartöku um uppbyggingu siglingakerfa og taka þátt í að reyna að selja Ísland sem umskip- unarhöfn í framtíðinni.“ Þetta kom fram í erindi Guðmundar Nikulás- sonar, framkvæmdastjóra Eim- skips Innanlands, á Nýsköpunar- þingi í gærmorgun. Guðmundur segir að Íslendingar hafi vissulega mikilla hagsmuna að gæta varðandi það hver verði þró- un mála á norðurslóðum. „Þetta hefur til dæmis í för með sér að það opnast nýir möguleikar á aust- anverðu Grænlandi varðandi námuvinnslu mun norðar en áður hefur verið mögulegt,“ benti Guð- mundur á í ræðu sinni. Hann segir að verið sé að skoða fjölmörg áhugaverð verkefni þarna og ekki sé ólíklegt að í tengslum við þau skapist verkefni hérlendis hvað varði umskipun á málmum til flutninga um allan heim og eins verði þörf fyrir ýmsa þjónustu þar sem nálægð við alþjóðlega flugvelli Stórt verkefni » Íslendingar þurfa að vera til- búnir að takast á við það stóra verkefni sem siglingar um Norður-Íshafið eru. » Mikið af tækifærum fyrir ís- lensk fyrirtæki samhliða nýjum möguleikum í námuvinnslu á austanverðu Grænlandi. » Yrði gríðarleg lyftistöng ef tækist að markaðssetja Ísland sem umhleðsluhöfn. Fjöldauppsagnir eru yfirvofandi hjá stærstu bönk- um Evrópu vegna versnandi af- komu og efna- hagshorfa. Danske Bank, stærsti banki Danmerkur, til- kynnti í gær að um 2.000 starfs- mönnum yrði sagt upp á næstunni en um 8 milljarða króna tap var á rekstri bankans á þriðja ársfjórð- ungi. Credit Suisse, sem er annar stærsti banki Sviss, tilkynnti einnig um uppsagnir í gær en ráðgert er að fækka starfsmönnum bankans um 1.500. Þessar uppsagnir bætast við þær sem boðaðar voru í sumar en þá tilkynnti bankinn um að 2.000 starfsmönnum yrði sagt upp. Þá var haft eftir Robert Diamon, forstjóra Barclays Capital, í gær að bankinn hefði fækkað starfsmönnum um 3.500 á árinu og búist var við að starfsmönnum yrði fækkað enn frekar. Þessi þróun kemur ekki á óvart þar sem boðuð aukning á eig- infjárkröfu evrópskra banka sam- hliða stigmagnandi áhrifum skulda- kreppunnar á efnahagsreikning þeirra kallar á aðhaldsaðgerðir á flestum sviðum rekstrar þeirra. ornarnar@mbl.is Fjölda- uppsagnir í Evrópu Bankar Fækkun framundan. Bankar bregðast við verri horfum                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-.. +/.-0/ ++.-/1 2+-2+ 23-13. +0-1.0 +24-5+ +-101, +/+-35 +,0-/, ++,-5+ +/1-2. ++1-+0 2+-202 23-15. +0-1// +24-40 +-10// +/+-5 +,/-24 2+.-,435 ++,-/4 +/1-5/ ++1-, 2+-..1 23-,2. +0-,.4 +.3-.. +-1/.+ +/2-+1 +,/-0. Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Greiningardeild Arion banka spáir því að tekjur Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi aukist um 11,2% frá því á sama tíma fyrir ári, og verði um 34,6 milljarðar. Icelandair mun birta afkomu sína fyrir fjórð- unginn í dag og gerir greining- ardeild Arion ráð fyrir því að rekst- ur félagsins skili 5,3 milljarða hagnaði. Staða frábrugðin Staða Icelandair er töluvert frá- brugðin stöðu erlendra flugfélaga sem mörg hver hafa skilað lélegri afkomu á þriðja ársfjórðungi. Stöð- ugur vöxtur hefur einkennt árið hjá Icelandair og hafa farþegar verið um 19,5% fleiri en árið 2010. Um miðjan september tilkynnti félagið að framboð Icelandair yrði aukið um 13% á næsta ári – á sama tíma og búist er við versnandi horf- um í alþjóðlegu efnahagslífi. Arion banki spáir 7,5% tekjuvexti hjá Ice- landair árið 2012. Icelandair mun njóta góðs af því að hafa yfir að ráða hagkvæmum smærri vélum sem taka um 180 manns í sæti því kostnaðarsamara er fyrir stóru flugfélögin – með vélar sem taka 300-400 manns í sæti – að fljúga beint yfir Atlantshafið þegar sam- dráttur gerir vart við sig. Spáir góðu skyggni framundan hjá Icelandair  Staða Icelandair sögð sterk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.