Morgunblaðið - 02.11.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 02.11.2011, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2011 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Við heitum Gylfi, Rúnar, Megas, hjá okkur er svo fjör/hvert sem við förum þar er bros á vör/Við leikum og syngjum léttir í lund/eigum með fólki gleðistund.“ Þannig hljómar fyrsta erindi texta Gylfa Ægissonar við eigið lag, „Þrjár stjörnur“, tit- illag nýútkominnar plötu þríeykisins GRM, þ.e. Gylfa, Rúnars Þórs og Megasar. Platan sú hefur að geyma þekkt lög eftir þá félaga, líkt og fyrsta plata þeirra sem náði gullsölu fyrr á árinu, MS GRM. Má þar nefna smelli á borð við „Í sól og sumaryl“, „Við Birkiland“, „Kók“ og „Fallerí fallera“. Platan var tekin upp í Upptöku- heimili Geimsteins, stúdíói Rúnars heitins Júlíussonar og er platan til- einkuð honum, rokkara Íslands númer 1, eins og segir á umslagi plötunnar. Synir Rúnars, Júlíus og Baldur, eru meðal þeirra sem leika inn á plötuna en Júlíus sá einnig um upptökustjórn, hljóðupptökur og hljóðblöndun. Stuðbandið GRM „Það hefur verið mikið að gera hjá okkur og okkur hefur alls staðar allt- af verið vel tekið. Við vorum að koma núna frá Ísafirði og Hólmavík, það var alveg frábærlega gaman og mik- ið stuð,“ segir Gylfi um GRM. – Þið eruð líka þrjár stjörnur … „Við náttúrlega lítum ekkert á okkur sem einhverjar stjörnur en af því að Megas er búinn að gera „Tvær stjörnur“ þá létum við þetta heita „Þrjár stjörnur“, þá eru þær orðnar fimm. Það er mjög fínt,“ segir Gylfi. Líklega muni þeir enda alla tónleika á þessu lagi. – Hvar sem þið eruð er hopp og hí, eins og segir í textanum. Þetta er stuðband, er það ekki? „Þetta er stuðband og mikið hleg- ið og við gerum grín hver að öðrum. Margir halda að við Rúnar séum allt- af eitthvað að kýta en það kannski á bara að vera þannig á yfirborðinu en er ekkert, við erum mjög miklir vinir og höfum verið alltaf.“ Sem fyrr segir náði fyrsta plata GRM gullsölu og segir Gylfi að tríóið muni halda áfram svo lengi sem vel gengur. „Við eigum mikið af efni,“ segir Gylfi og því ekki loku fyrir það skotið að fleiri plötur komi út. „Mér finnst persónulega þessi plata mikið léttari en hin,“ segir Gylfi um nýju plötuna, Þrjár stjörnur. Óborganlegt – Var þá meira flipp í stúdíóinu? „Já, já, já. Þegar hann tekur „Fallerí“ hann Megasar, það var óborganlegt að horfa á hann í gegn- um glerið.“ – Þið hafið s.s. ekki fylgst graf- alvarlegir með því? „Nei, við grétum úr hlátri við Rún- ar,“ svarar Gylfi. – Og hlustendur munu kannski gera það líka? „Það er ekkert ótrúlegt, ég held að enginn eigi eftir að toppa það.“ – Þið eruð þó ansi alvarlegir á ljós- myndinni sem prýðir umslagið... „Já, ég brosti nú á mörgum mynd- um en Megas sagði að það væri bannað að brosa. Það voru nokkrar af mér skellihlæjandi en þetta var valið, ég gat verið alvarlegur í smá- stund,“ segir Gylfi kíminn. 65 ára afmælistónleikar Gylfi er með fleiri járn í eldinum en GRM því hann heldur upp á 65 ára afmæli sitt með tónleikum hinn 12. nóvember í Salnum í Kópavogi og ekki útilokað að aukatónleikum verði bætt við. Gylfi segir að góðir leyni- gestir muni leika með honum á tón- leikunum en hverjir það eru er leyndarmál enn sem komið er. Útgáfutónleikar GRM verða svo haldnir 16. desember og þá einnig í Salnum. En fram að því mun þríeyk- ið koma fram hér og þar, að sögn Gylfa. Hægt er að fylgjast með æv- intýrum GRM á Facebook, með því að slá GRM inn í leitarglugga. Leika og syngja léttir í lund, eiga með fólki gleðistund  Þrjár stjörnur nefnist ný plata Gylfa, Rúnars og Megasar, GRM Alvara Umslag plötunnar Þrjár stjörnur. Rúnar, Gylfi og Megas alvarlegir á svip eins og Megas vildi hafa það. Ljósmynd/Þormar Vignir Gunnarsson Gull GRM fékk afhenta gullplötu í sumar fyrir frumburðinn MS GRM.  Pétur Ben og Samúel Jón Sam- úelsson Big Band koma fram á næstu tónleikum tónleikarað- arinnar Rafmagnslaus á norð- urpólnum, fimmtudaginn 3. nóv- ember. Tónleikarnir eru þeir síðustu á árinu í röðinni og eru haldnir í samstarfi við Funk í Reykjavík. Auk Péturs og stór- sveitar Samúels kemur fram plötu- snúðurinn DJ Lucky og leikur lög af upptrekktum grammófóni því rafmagnið er naumt skammtað, eins og yfirskrift tónleikarað- arinnar gefur til kynna. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og verður hleypt inn frá kl. 20.30. Morgunblaðið/Ernir Pétur, stórsveit Samúels og DJ Lucky  Tískuráð Listafélags Verzl- unarskóla Íslands heldur árlega hönnunarkeppni og tískusýningu í Listavikunni í Verzló, 3. nóvember nk. kl. 12. Ungir og upprennandi hönnuðir munu sýna verk sín auk þekktra fatahönnuða og -merkja, og má þar nefna Munda, DEAD og Forynju. Sýningin fer fram á marmaranum í Verzlunarskólanum. Morgunblaðið/Ernir Hönnunarkeppni og tískusýning í Verzló Seint koma sumir en koma þó Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Þegar síðrokkið fór sem hæst, upp úr 2000, var ein sveit hérlend sem sýndi eftirtektarverða spretti í þeim fræðunum. Um var að ræða hljóm- sveitina Náttfara, þá skipaða þeim Andra Ásgrímssyni, Nóa Steini Ein- arssyni, Haraldi Þorsteinssyni og Rúnari Sigurbjörnssyni. Tveir þeir fyrrnefndu færðu sig síðan yfir í Leaves og Náttfari hætti skyndilega störfum. Var það mikill harmur fyrir tónlistarunnendur að aldrei skyldi neitt koma út með þessari gæðasveit en því hefur nú loksins verið kippt í liðinn. Endurreistur Náttfari var að senda frá sér plötuna Töf (hæfandi nafn) en á gítar leikur nú Ólafur Jos- ephsson (Stafrænn Hákon). „Seint koma sumir en koma þó,“ segir Nói Steinn og kímir. „Við vorum langt komnir með plötu þegar við hættum á sínum tíma. Það var svo sem ekki stórkost- legt drama sem lá að baki hljóm- sveitarslitunum en eitthvað þó. Við vorum bara ekki á sömu blaðsíðunni hvað strauma og stefnur varðaði og hvert við ættum að fara með bandið. Þetta endaði nokkuð skyndilega en við höfum allar götur síðan verið með þetta efni á bak við eyrað og fannst synd – eins og fleirum – að þetta hefði aldrei komið út.“ Nói segir að þeir hafi svo tekið upp þráðinn og í fyrstu hafi þeir vilj- að koma þessu af sér með því að leika á tónleikum, hreinsa hausinn þannig. „Síðan var þetta bara svo gaman og sú hugmynd kviknaði að klára þetta hálfnaða verk. 70% af efninu eru gamalt efni, sem við höfum unn- ið upp á nýtt. Við tókum upp í sama hljóðveri og við vorum í fyrir níu ár- um. Hún var einkennileg tilfinningin að heyra upp á nýtt sömu gítar- hljómana og maður heyrði þá.“ Náttfaramenn ætla að vera iðnir við spilakolann í haust og troða t.d. upp á Faktorý nú á fimmtudaginn. Fílingurinn er góður. „Það er bara mikil stemning í bandinu. Við erum ánægðir og stolt- ir af þessu efni og munum halda áfram á meðan það er gaman.“  Náttfari snarar út plötu sem beðið hefur verið eftir í tæpan áratug Gamalt verður nýtt „Við tókum upp í sama hljóðveri og við vorum í fyrir níu árum,“ segir Nói Steinn Einarsson í endurreistum Náttfara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.