Morgunblaðið - 11.11.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.11.2011, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Afskiptum bankanna af svínakjöts- framleiðslunni er ekki lokið. Eftir endanlegan úrskurð samkeppnisyf- irvalda um ógildingu yfirtöku Stjörnugríss á eignum svínabúa Ar- ion banka er bankinn á ný orðinn svínakjötsframleiðandi að forminu til. Það er augljóslega flókið mál að ganga frá þessum skilum því fyrir- tækið er gjörbreytt frá því Stjörnu- grís tók yfir rekstur þess og vandséð hvernig hægt er að afmá áhrif sam- runans. Arion banki yfirtók svínabúin í Brautarholti á Kjalarnesi og á Hýru- mel í Borgarfirði í byrjun síðasta árs vegna þess að fyrirtækin urðu ógjaldfær vegna erfiðleika á mark- aðnum í kjölfar bankahrunsins. Fram hefur komið að bankinn þurfti að afskrifa milljarða af skuldum þeirra og hafði á fyrri erfiðleikatím- um svínaræktarinnar einnig þurft að afskrifa milljarða. Þau ár sem bank- inn rak Brautarholtsbúið greiddi hann með hverju framleiddu kílói. Versta leiðin fyrir markaðinn Bankinn ákvað að selja búin í ein- um pakka og samdi við stærsta svínakjötsframleiðanda landsins, Stjörnugrís á Kjalarnesi, um að kaupa. Talið var að þar með væru um 60% framleiðslunnar komin á eina hendi. Jón Bjarnason landbúnaðar- ráðherra reyndi að stöðva viðskiptin á þeim grundvelli að með þeim væri verið að viðhalda offramleiðslu og hringekju skuldsetningar og gjald- þrota í greininni. Samkeppnisyfir- völd komust að þeirri niðurstöðu að kaup Stjörnugríss á svínabúunum styrkti markaðsráðandi stöðu fé- lagsins og skapaði umtalsverðar samkeppnishömlur. Hins vegar treysti eftirlitið sér ekki til að hindra samrunann vegna þeirrar fjárhags- legu stöðu sem svínabúin voru komin í, þau hefðu hvort sem er verið á fall- anda fæti. Fimm minni svínakjötsframleið- endur áfrýjuðu úrskurðinum og fengu honum hnekkt. Við frekari umfjöllun samkeppnisyfirvalda kom fram að ef til vill hefði Arion banki valið verstu leiðina fyrir markaðinn með því að selja markaðsráðandi fyr- irtæki svínabúin. Nefndir voru aðrir möguleikar, eins og að loka öðru hvoru eða báðum búunum, tíma- bundið eða alveg, eða selja þau í smærri einingum. Vegna aukningar á framleiðslu og síðar neyslusamdráttar lækkaði verð á svínakjöti mikið. Lék þetta ástand búin grátt, samfara hækkun á fóðri og öðrum tilkostnaði, ekki aðeins þau sem fóru á hausinn, því talið er að allt eigið fé greinarinnar hafi guf- að upp og gamalgróin fjölskyldubú voru komin á fremsta hlunn með að gefast upp. En framleiðslan dróst saman og markaðurinn leitaði jafnvægis á ný. Breytingar á rekstri bankabúanna hefur vafalaust átt sinn þátt í því. Á þessu ári hefur verð á svínaköti hækkað en svínabændur fullyrða þó að þeir fái enn lægra verð en fyrir hrun. Þannig eru markaðsaðstæður gjörbreyttar frá því sem var þegar samkeppnisyfirvöld hófu athuganir sínar. Stjörnugrís er nú talinn vera með um helming framleiðslunnar. Stjörnugrís hefur rekið svínabúin í hálft annað ár og gert ýmsar ráð- stafanir í rekstrinum sem erfitt er að draga til baka. Verið er að vinna með lifandi dýr sem fara sinn hring og af- urðirnar enda á borðum neytenda. Þess má geta að Samkeppniseftir- litið hafnaði því að veita undanþágu frá banni við framkvæmd samrunans á meðan eftirlitið fjallaði um málið. Sérstaklega var þó tekið fram að ekki væru gerðar athugasemdir við að gripið yrði til nauðsynlegra ráð- stafana til úrbóta, í samræmi við kröfur Matvælastofnunar og héraðs- dýralæknis en ástand búanna var þá talið mjög bágborið. Brautarholtsbúið var lagt niður og dregið úr grísaeldi í Borgarfirði. Dómstólaleiðin möguleg Stjórnendur Arion banka og Stjörnugríss hafa ekki ákveðið hvort reynt verður að hnekkja niðurstöðu samkeppnisyfirvalda fyrir dómstól- um. Fyrirtækin þurfa nú að finna leiðir til að kljúfa bú bankans frá rekstri Stjörnugríss. Það er greini- lega flókið mál og tekur sinn tíma. Framhaldið er til athugunar hjá bankanum. Verði unað við niðurstöð- una hefur bankinn þann kost að reka búin áfram um tíma, leggja rekst- urinn niður eða setja þau í nýtt sölu- ferli. Þegar Samkeppniseftirlitið ógilti samrunann í sumar kom fram að það myndi fylgjast með ógildingunni. Á grundvelli þeirra upplýsinga yrði at- hugað hvort nauðsynlegt væri að beita heimild í samkeppnislögum til að skapa að nýju skilyrði fyrir virkri samkeppni á markaðnum. Ekki fengust upplýsingar hjá Samkeppn- iseftirlitinu um hvaða leiðir kæmu til greina í því efni. Aftur á byrjunarreit  Ekki liggur fyrir hvernig svínabú Arion banka verða skilin frá rekstri Stjörnu- gríss eftir ógildingu samrunans  Samkeppniseftirlitið getur gripið til aðgerða Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Svín Svínaræktin átti við mikla erfiðleika að etja eftir hrun en er nú að rétta úr kútnum. Framleiðsla hefur minnkað og verð afurðanna hækkað. Samruni svínabúa 2010 2011 5 Mars Félög Arion banka taka við rekstri svínabúanna. 9 Júlí Bankinn semur við Stjörnugrís um kaup á bústofni og kaup eða leigu fasteigna. 1 Október Samkeppniseftirlit sendir andmælabréf. 3 Febrúar Samkeppniseftirlitið úrskurðar að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar. Fimmminni svínakjötsframleiðendur áfrýja. 9 Júní Áfrýjunarnefnd fellir úrskurðinn úr gildi. 21 Júlí Samkeppniseftirlitið ógildir samruna búanna með nýjum úrskurði.Arion banki og Stjörnugrís áfrýja. 4 Nóvember Áfrýjunarnefnd staðfestir seinni úrskurð Samkeppniseftirlitsins. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011 „Við munum skoða það með Samkeppniseft- irlitinu hvernig hægt er að vinda ofan af þessum samruna. Það verður flókið,“ segir Geir Gunn- ar Geirsson, framkvæmda- stjóri Stjörnu- gríss. Hann er ósáttur við margt í úrskurðum samkeppnisyfirvalda og hjá stjórnsýslunni. Samruninn hafi fyrst verið leyfður og síðan ógiltur. Ekki hafa orðið grundvallarbreyt- ingar á markaðnum, að mati Geirs Gunnars. Stjörnugrís er með sömu viðskiptavini og fyrr. Hann segir ekki hægt að miða við stöðuna þeg- ar markaðurinn var í rúst vegna of- framleiðslu og afskipta banka. Verð á svínakjöti hafi lækkað að raungildi frá 2008. Flókið að vinda ofan af samrunanum Geir Gunnar Geirsson „Markaðurinn hefur verið kol- ruglaður frá hruni vegna of- framleiðslu og alveg fram á þetta ár. Nú er komið þokka- legt jafnvægi með hækkandi verði og var full þörf á,“ segir Guðbrandur Brynjúlfsson, bóndi á Brúarlandi, einn þeirra svína- bænda sem áfrýjuðu fyrsta úr- skurði Samkeppniseftirlitsins. Þeim ofbauð sú samþjöppun sem samruninn hafði í för með sér. Guðbrandur tekur fram að þeir séu ekki lengur aðilar að þessu máli, það sé á milli fyrirtækjanna og Samkeppniseftirlitsins. Guðbrandur segir að þótt mikl- ar hækkanir hafi orðið á tilkostn- aði undanfarin ár hafi verð til bænda lækkað úr 350 krónum í 260 krónur á kíló, þegar það fór lægst. Bullandi taprekstur hafi verið á framleiðslunni undanfarin ár. Full þörf á hækkun afurðaverðs Guðbrandur Brynjúlfsson Tölur Bændasamtakanna sýna að í lok september hafði framleiðsla á svínakjöti minnkað um 8% á árs- fjórðungnum, miðað við sama tíma í fyrra, en 2,3% á 12 mánaða tíma- bili. Salan minnkaði einnig en þó minna því samdrátturinn nam rúmum 4% á ársfjórðungnum og rúmlega 1% á heilu ári. Tölur Hagstofunnar sýna að út- söluverð á svínakjöti hefur verið að þokast upp á við. Hækkunin í október er um 8% frá sama tíma í fyrra, og 14% frá 2009. Út- söluverðið er þó enn töluvert und- ir verðinu í október 2008. Framleiðslan minnk- ar og verðið hækkar Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Nýtt hagvaxtarmódel sem sagt er byggjast á framboðsdrifnum sjálfbærum hagvexti er lagt fram í nýrri efnahagsáætlun sem Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráð- herra, kynnti í gær. Í áætluninni segir að efnahagsstefnan á Íslandi undanfarna áratugi hafi miðað að því að viðhalda hagvexti með opinberum inn- gripum í eftirspurnarhlið hagkerfisins, með- al annars með aukinni skuldsetningu rík- issjóðs og uppbyggingu orkufrekrar stóriðju. Sú stefna hafi leitt til ofþenslu og óstöðugleika. Afleiðingin sé einhæfni út- flutningsgreina og erlend skuldasöfnun. Skapi aðstæður fyrir útflutning Að sögn Árna Páls vilja stjórnvöld nýta aðstæður nú með lágu raungengi og fjölga þeim fyrirtækjum sem séu með útflutnings- markaði í huga þegar þau þróa vörufram- leiðslu sína og þjónustu. Aðalatriðið sé að skapa aðstæður svo fyr- irtæki geti sótt á erlenda markaði. Það sé meðal annars gert með lágu stöðugu raun- gengi og með því að ríkissjóður sé vel rek- inn svo vaxtastig lækki og auðveldi þannig fyrirtækjunum að fjármagna sig. „Áætlunin miðar að þessu svo fyrirtækin geti gert áætlanir fram í tímann og sótt á útflutningsmarkaðina af miklu meira sjálfs- trausti,“ segir Árni Páll. Ekki byggt á fölsku gengi Efnahagsþróunin hér ætti að vera tilefni til að fjölga stoðum velsældarinnar á næstu árum með fjölbreyttari útflutningsgrunni fyrir framtíðina. „Það er óraunsætt að byggja velsæld á fölsku gengi krónunnar. Við verðum að byggja hana upp eins og þau lönd í kringum okkur sem mestum árangri hafa náð, á kröftugri, samkeppnishæfri útflutningsstarf- semi og raunverulegum efnahagslegum ár- angri af því sem við gerum,“ segir Árni Páll. Stoðum velsældarinnar verði fjölgað  Ný efnahagsáætlun kynnt sem miðar að fjölbreyttari útflutningsgrunni Morgunblaðið/Sigurgeir S. Áætlun Lögð er áhersla á samtillta hagstjórn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.