Morgunblaðið - 11.11.2011, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011
Myndlistarmennirnir Helgi
Þorgils Friðjónsson og Ing-
ólfur Arnarson veita leiðsögn
um sýninguna Hraðari og hæg-
ari línur í Listasafni Íslands í
Hafnarhúsi næstkomandi
sunnudag kl. 15.
Á sýninguna eru valin tví- og
þrívíð verk yfir sextíu íslenskra
og erlendra myndlistarmanna,
en verkin eru hluti af safneign
listsafnaranna Péturs Arason-
ar og Rögnu Róbertsdóttur sem safnað hafa ís-
lenskri og erlendri samtímamyndlist frá 7. ára-
tugnum fram til dagsins í dag.
Sýningarstjóri sýningarinnar er Birta Guðjóns-
dóttir.
Myndlist
Leiðsögn um Hrað-
ari og hægari línur
Helgi Þorgils
Friðjónsson
Málræktarþing Íslenskrar
málnefndar og Mjólkursamsöl-
unnar verður haldið á morgun í
tilefni dags íslenskrar tungu.
Þingið, sem hefur yfirskriftina
Æska í ólestri – mál okkar
allra, fer fram í Skriðu, sal
menntavísindasviðs HÍ við
Stakkahlíð kl. 11–14. Meðal
dagskrárliða er að Hallveig
Rúnarsdóttir og Hrönn Þráins-
dóttir flytja sönglög, Guðrún
Kvaran skýrir frá ályktun Íslenskrar málnefndar,
Anna Ingólfsdóttir ræðir læsi í leikskóla, Sigríður
Sigurjónsdóttir málþroska og málrækt og Anna
Þorbjörg Ingólfsdóttir ræðir tilgang íslensk-
unnar, og Þórarinn Eldjárn flytur erindi.
Þjóðfræði
Málræktarþing
haldið á morgun
Þórarinn
Eldjárn
Í hádeginu í dag verða aðrar
Föstudagsfreistingar Tónlist-
arfélagsins í Ketilhúsinu. Tón-
leikarnir hefjast kl. 12 og boðið
verður upp á súpu, brauð og
kaffi á meðan hlýtt er á þá Vil-
hjálm Inga Sigurðarson
trompetleikara og Matta Sa-
arinen gítarleikara en þeir
flytja verk eftir Giovanni
Buonaventura Viviani,
J.S. Bach, J. Sibelius, Theo
Charlier, Matti Saarinen og Unto Mononen.
Vilhjálmur Ingi Sigurðarson er fæddur á Akur-
eyri og alinn upp í Eyjafjarðarsveit. Föstudags-
freistingarnar eru haldnar í samstarfi við Menn-
ingarmiðstöðina í Listagili og Goya Tapas.
Tónlist
Föstudagsfreist-
ingar í Ketilhúsinu
Vilhjálmur Ingi
Sigurðarson
Dagur orðsins verður haldinn í
Grafarvogskirkju á sunnudag og
er að þessu sinni helgaður skáld-
inu Matthíasi Johannessen. Dag-
skráin stendur frá kl. 10 til 12 og
hefst með því að Ástráður Ey-
steinsson prófessor og Gunnar
Kristjánsson prófastur flytja er-
indi um Matthías, en síðan flytur
Gunnar Eyjólfsson leikari ljóðið
„Hrunadansinn“.
Messa hefst kl. 11 með því að
Matthías flytur frumort ljóð og
Pálmi Gestsson leikari flytur ljóð
við lag Carls Möller við undirleik
Guðmundar Steingrímssonar og
fleiri.
Vigfús Þór Árnason, Lena Rós
Matthíasdóttir og Sigurður Grét-
ar Helgason þjóna fyrir altari.
Kór Grafarvogskirkju syngur
undir stjórn Hákons Leifssonar
sem leikur einnig á orgel. Ein-
söng syngur Gunnar Guðbjörns-
son.
Að lokinni messu verður boðið
upp á kaffi og veitingar í safn-
aðarsal kirkjunnar.
Morgunblaðið/Kristinn
Ljóð Dagur orðsins er helgaður
Matthíasi Johannessen.
Dagur
orðsins í
Grafarvogi
Helgaður Matt-
híasi Johannessen Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta verður fjölbreytileg sýning
og óvenjuleg fyrir mig,“ segir
myndlistarmaðurinn Kees Visser
um sýningu sem hann opnar í and-
dyri Arion banka í Borgartúni á
morgun. „Venjulega vinn ég inn-
setningar sérstaklega inn í rými en
hér verða myndir úr mismunandi
seríum, í ólíka miðla,“ bætir hann
við. „Eitt verkið er til að mynda
módel fyrir stórt verk sem ég vann
í fyrra á 14 metra langan vegg í
Frakklandi. Svo sýni ég líka skýr-
ingarteikningar að þessu verki, en
það hef ég aldrei gert áður. Þessum
undirbúningsteikningum má líkja
við partítur í tónlist. Ég hef alltaf
litið svo á að málverkin mín, sem
byggja á línum og hrynjandi, séu
mjög músíkölsk í eðli sínu.“
Kees fjallar um verk sín og feril í
fyrirlestrasal bankans á morgun
klukkan 13.30 og fyrirlesturinn kall-
ar hann Talkischeap. Á sama tíma
opnar sýningin í anddyri bankans.
Í meira en þrjá áratugi hefur
Kees, sem er af hollensku bergi
brotinn, verið þátttakandi í íslensku
listalífi. Hann flutti til landsins árið
1976 og var einn af stofnendum Ný-
listasafnsins. Síðustu árin hefur
Kees unnið að list sinni í Hollandi, í
París og hér á landi, en hér starfaði
hann einnig sem fararstjóri. „Ég
hætti því árið 2008 þegar ég var bú-
inn að vera fararstjóri í 25 ár. Þá
var komið nóg,“ segir hann á sinni
góðu íslensku og brosir.
Kees sýnir meðal annars verk úr
stórri röð blómamynda, sem hann
hefur unnið að síðustu átta ár. Þar
hefur hann gert hágæðaskönn af
útsprungnum blómum. Þau eru fal-
leg og kallast á við hefðir í listasög-
unni.
„Ég byrjaði ekki á þessum verk-
um til að gera seríu en nú er ég
kominn með á fjórða hundrað blóm.
Þegar ég var ungur hjólaði ég oft
að heiman á morgnana og tíndi
blóm handa foreldrum mínum. Ég
nýt þess líka að rýna í jarðveginn
og skoða skordýr og mosa. Yfirborð
náttúrunnar er heillandi. Í þessum
verkum er yfirborð blómanna líka
tengt yfirborði málverka minna.“
Kynning hefur mælst vel fyrir
Fyrirlestur Kees Vissers er fjórði
slíki fyrirlesturinn hjá Arion banka
á þessu ári og jafnframt hafa verið
opnaðar sýningar á verkum lista-
mannanna sem kynntir hafa verið.
„Við viljum kynna myndlist, sam-
tímalist og safneign bankans, fyrir
starfsfólki og viðskiptavinum. Það
hefur mælst mjög vel fyrir,“ segir
Klara Stephensen umsjónarmaður
listaverka Arion-banka.
Morgunblaðið/Einar Falur
Gult málverk Kees Visser býr sig undir að koma einu verka sinna fyrir í
anddyri Arion banka. Hann sýnir verk úr nokkrum seríum.
Blómamyndir
og músíkölsk
málverk
Fyrirlestur og sýning
» Myndlistarmaðurinn Kees
Visser heldur fyrirlestur og
opnar sýningu á verkum sínum
í Arion banka við Borgartún á
morgun, laugardag, kl. 13.30.
» Kees er af hollensku bergi
brotinn en fluttist til Íslands
árið 1976 og var einn af stofn-
endum Nýlistasafnsins.
Kees Visser fjallar um ferilinn
Fyrir stuttu kom út geisladiskurinn
Fimm í tangó þar sem samnefnd
sveit spilar frumsamda íslenska
tangóa í bland við finnska. Sveitin
er fjögurra ára, skipuð þeim Ágústi
Ólafssyni söngvara, Ástríði A. Sig-
urðardóttur píanóleikara, Írisi
Dögg Gísladóttur fiðluleikara,
Kristínu Lárusdóttur sellóleikara
og Vadim Federov harmonikkuleik-
ara.
Kristín Lárusdóttir átti hug-
myndina að sveitinni og segir hana
hafa kviknað þegar hún kom heim
úr námi í Finnlandi haustið 2006.
„Ég fór að vinna með Ágústi í óp-
erunni og Írisi Dögg veturinn 2006
til 2007 og þá kom upp sú hugmynd
að setja upp tangóband sem myndi
einbeita sér að finnskum tangóum,“
segir Kristín og bætir við að ekki
síst hafi henni dottið þetta í hug þar
sem hún saknaði Finnlands.
Þó sveitin hafi upphaflega ætlað
að spila finnska tangóa byrjaði hún
nánast strax að spila frumsamin lög,
eins og Kristín rekur söguna. „Ég
ræddi við Harald V. Sveinbjörnsson
að hann myndi útsetja fyrir okkur
tangóa og hann kom strax með einn
frumsaminn fyrir okkur. Svo höfum
við alltaf verið að fá fleiri og fleiri
sem samdir eru sérstaklega fyrir
okkur,“ segir Kristín, en Haraldur á
átta tangóa á plötunni og Hafdís
Bjarnadóttir þrjá tangóa. „Við eig-
um miklu fleiri og þyrftum eiginlega
að gera plötu númer tvö,“ segir
Kristín og tekur fram að fátt sé
skemmtilegra að spila en tangóa
sem samdir hafa verið fyrir sveitina.
Frumsamdir tangóar í
bland við finnska
Hefð Fjögur af Fimm í tangó: Ágúst Ólafsson, Ástríður A. Sigurðardóttir,
Íris Dögg Gísladóttir og Kristín Lárusdóttur.
Tangósveitin Fimm í tangó gefur út geisladisk
Lestu.is gefur út að nýju skáldsög-
una Morgun lífsins eftir Kristmann
Guðmundsson og fagnar því með
útgáfuhófi á Bókasafni Seltjarn-
arness í dag kl. 17. Við sama tæki-
færi verður Kristmann kynntur
sem skáld mánaðarins á bókasafn-
inu og opnuð sýning á munum og
bókum tengdum Kristmanni.
Ármann Jakobsson íslenskufræð-
ingur og Bjarni Harðarson bóksali
verða með stutt erindi um Krist-
mann við opnun sýningarinnar, en
hann var gríðarlega vinsæll rithöf-
undur í Noregi um 1930, en hann
bjó þá þar. Kristmann naut vin-
sælda víða um heim og hafa bækur
eftir hann verið þýddar á tæplega
40 tungumál. Morgunn lífsins, sem
kom út 1929 undir heitinu Livets
Morgen, var þýdd á meira en 20
tungumál og eftir bókinni var gerð
þýsk kvikmynd árið 1955 sem verð-
ur sýnd í Bíó Paradís sunnudaginn
20. nóvember næstkomandi.
Baldur Hafstað prófessor í ís-
lensku ritar inngang að endur-
útgáfu Morguns lífsins, sem gefinn
er út samtímis á hefðbundnu formi,
sem rafbók og sem hljóðbók.
Morgunn lífsins
gefinn út að nýju
Kristmann skáld mánaðarins
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Vinsæll Kristmann Guðmundsson
naut hylli víða um heim.
Það er því vel hægt
að mæla með því að
fólk geri sér far um að skella
sér í menningarferð til
Grindavíkur39
»