Morgunblaðið - 11.11.2011, Side 24

Morgunblaðið - 11.11.2011, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011 ✝ SigurbjörgSteindórsdóttir fæddist á Akureyri 18. september 1950. Hún lést á heimili sínu, Tungusíðu 2 Ak- ureyri, 4. október 2011. Faðir hennar var Steindór Stein- dórsson járnsmiður frá Akureyri, f. 14.4. 1921, d. 30.1. 1977, móðir hennar Guðbjörg Sigurgeirsdóttir húsmóðir, f. 7.2. 1924, d. 28.12. 2002. Systk- ini Sigurbjargar eru: Halldóra, starfsmaður FSA, f. 1.4. 1946, maki Björn Jónsson, málari, Steindór, járnsmiður, f. 6.3. 1953, maki Hlédís Hálfdán- ardóttir, Sigurgeir, fram- kvæmdastjóri, f. 25.10. 1954, maki Rósa Sigurlaug Gests- dóttir. Hinn 28. desember 1968 gift- ist Sigurbjörg Bernharði Stein- grímssyni, listamanni og at- ingur, f. 9.12 1972, maki Sig- urður Kristján Blomsterberg, rafeindarvirki. Börn þeirra eru: Guðrún Karítas, f. 23.11. 1998, Agnes Erla, f. 7.2. 2001, Sveinn Bernharð, f. 9.4. 2005 og Katrín Arndís, f. 4.10. 1992, stjúpdóttir. 4) Steingrímur Magnús, nemi, f. 22.5. 1982. Sigurbjörg lauk gagnfræða- prófi frá Gagnfræðiskóla Ak- ureyrar 1967. Hún vann ýmis störf um ævina, starfaði á leik- skóla, á Sólborg á Akureyri og við afgreiðslu- og umönn- unarstörf. Hún rak gistiheimili, listagallerý, vídeoleigu og veit- ingastað um árabil með eig- inmanni sínum. Hún var búsett í Reykjavík á árunum 1969 til 1977 þegar hún fluttist aftur til Akureyrar. Sigurbjörg var mik- il áhugamanneskja um trúmál og sótti ýmis námskeið á vegum kirkjunnar þ. á m. nokkur Alfa- námskeið. Sigurbjörg var alla tíð mikil fjölskyldumanneskja og sýndi fólkinu sínu ávallt áhuga og kærleik. Hún var ein- stök móðir, amma, tengda- mamma og vinkona. Útför Sigurbjargar verður gerð frá Glerárkirkju í dag, 11. nóvember 2011, og hefst athöfn- in kl. 11. vinnurekanda, f. 24.2. 1948, d. 29.3. 2005. Sigurbjörg og Bernharð eign- uðust fjögur börn. Þau eru: 1) Berg- hildur Erla, fjöl- miðlafræðingur og ráðgjafi, f. 1.2. 1968, maki Edvard Börkur Edv- ardsson, fram- kvæmdastjóri, syn- ir þeirra eru: Sigurbjörn Bernharð, f. 2.4. 1994 og Edvard Dagur, f. 12.10. 1998. 2) Bern- harð Stefán sjávarútvegsfræð- ingur, f. 14.8. 1969, synir hans eru Alexander Freyr, f. 2.12. 1999, Viktor Logi, f. 12.12. 2001, Sigursteinn Breki, f. 29.9. 2008. Móðir Alexanders og Viktors er Sólbjörg Sólversdóttir, hjúkr- unarfræðingur, móðir Sig- ursteins Breka er Halla Þor- steinsdóttir, hjúkrunarfræðinemi. 3) Björg Maríanna, geðhjúkrunarfræð- Elsku hjartans, fallega mamma, nú er komið að kveðju- stund. Mig setur hljóða en á sama tíma langar mig að skrifa heila bók um þig með öllum dýrmætu minningunum, það bíður betri tíma. Ég er full af þakklæti á þess- um tímamótum sem fyllir svolítið upp í allt tómarúmið sem þú skilur eftir þig. Þú varst aðeins 17 ára þegar þú áttir mig og síðan komu börnin eitt af öðru næstu árin, urðu að lokum fjögur og frá fyrsta degi varstu fullkomin móðir. Þú vildir það besta fyrir okkur, þú studdir okkur alltaf og varst til staðar þegar eitthvað bjátaði á. Þú varst vinur okkar og ráðgjafi og það var ómetanlegt. Þú varst svo skemmtileg og hæfileikarík, með fallega söngrödd og óendan- lega smekkleg. Þú varst lista- kokkur og gast gert mat úr engu. Og þegar þú fylltist orku gastu flutt fjöll. Þú varst svo stolt af okkur börnunum þínum, ömmu- börnum og tengdabörnum og gafst okkur svo margt. Þú varst listakona á svo margan máta og barst það með þér hvar sem þú komst. Ég hef aldrei átt eins inni- haldsrík og heimspekileg samtöl við nokkra manneskju og þig þar sem þú leiddir mig áfram með kærleikann að leiðarljósi. Þú dvaldir löngum stundum hjá mér og Berki og börnunum og svo mikil hlýja fylgdi þér að hitastigið hækkaði í húsinu, meira segja þegar þú laumaðir þér inn í her- bergi til að leggja þig sem þér þótti nú ekki slæmt. Þegar þú varst búin að fara einn hring um húsið mitt var eins og hr. Proppé hefði litið inn, nema það var bara aðeins fínna. Þú áttir stóra og mikla trú sem þú ræktaðir öllum stundum og varst sannfærð um að lífið væri ekki endanlegt. Þau voru ófá Biblíukornin sem við drógum saman til að fá skilaboð að ofan. Við fjölskyldan fórum til Spánar í sumar og það var svo heitt að við gátum okkur lítið hreyft þannig að við sátum heilu og hálfu dagana og spjölluðum saman um heima og geima. Við vorum nú ekkert voða- lega ánægð með allan þennan hita en óskaplega er ég þakklát fyrir hann í dag því hann gerði það að verkum að við gátum spjallað og eytt tímanum saman í stað þess að æða út um allar trissur. Þú stakkst þér af mikilli list í sund- laugina til að kæla þig og í eitt skipti var krafturinn svo mikill að bikiníið þitt varð eftir í lauginni við mikla kátínu viðstaddra og þú hlóst manna hæst. Þú gafst lífinu svo margt og það voru svo margir sem elskuðu þig. Þú skildir aldrei við þig móðurástina og varst sómi allra mæðra. Þú skilur eftir þig stórt skarð en þú kenndir okkur börnunum þínum að styðja hvert annað með vináttuna að vopni og það mun hjálpa okkur að fylla upp í þetta stóra skarð. Nú ertu komin til elsku pabba sem var eini maðurinn í þínu lífi. Guð blessi þig og geymi, elsku mamma, og þína dýrmætu minn- ingu, skilaðu ástarkveðju til pabba. Þín mjúka móðurhönd mig áfram lífið leiddi. Nú farin ertu á aðra strönd. Ég ávallt mig á þig reiddi. Nú hvílir þú hjá góðum Guð’ sem gafst svo mikið sjálf. Nú laus þú ert við heimsins puð en ég um tíma er hálf. (BEB.) Þín dóttir og sálufélagi, Berghildur Erla Bernharðsdóttir. Elsku hjartans fallega mamma mín. Mikið fékk ég stórt verkefni upp í hendurnar núna og það lang- erfiðasta hingað til. Nú sit ég hér í miklu tómarúmi og er svo andlaus eitthvað. Það er svo óendanlega margt sem mig langar til að segja og það er svo margs að minnast, elsku mamma. Ég var svo heppin í uppvextinum að eiga svona mömmu. Mömmu sem var alltaf til staðar og tók þátt í lífi mínu og okkar allra á allan hátt. Þú varst svo mikil trúnaðarvinkona mín og ég gat sagt þér öll leyndarmálin mín og þú gekkst í gegnum allt með mér. Allir mínir sigrar voru þínir og þú hafðir alltaf tíma fyrir mig og ég gat alltaf treyst á þig. Þú varst sterkasta kona sem ég hef á ævi minni kynnst og stóra hetjan í lífi mínu. Þú hafðir fengið mörg verkefni í lífinu og ófá erfið en alltaf stóðstu upp eins og sann- kölluð hetja. Þú varst svo margt að listinn er ótæmandi en lítið brot er að þú varst hjartahlý, skemmti- leg, litrík, fyndin, fjörug, hug- myndarík, umburðarlynd, gjaf- mild, hjálpsöm, blíð og elskuleg. Nærvera þín var svo sterk og hún er svo sterk í hjarta mínu. Þú varst elskuð af svo mörgum vegna þess að þú varst með hjarta úr gulli. Þú varst nú líka mikið fyrir gull og glys og hafðir einstaklega gaman af því að punta þig og setja á þig gullið þitt, skrautið, glimm- er, tiger-munstrið og glamúrinn. Þú varst glæsilegust af öllum þeg- ar þú varst í þínu fínasta pússi. Það eru þungur harmur í Tungusíðu núna. Heimili þínu sem var svo einstakt og fallegt á allan hátt. Það voru þung spor að koma þangað í þessum tilgangi, elsku hjartans mamma, og minningin um þig á stéttinni að taka á móti okkur með opinn faðminn og ný- bakaða skúffuköku svo sterk. Þú bakaðir nefnilega bestu skúffu- köku í heimi og reyndar allan mat. Mömmumaturinn þinn var engu líkur. Við erum búnar að eiga svo dásamlegar samverustundir upp á síðkastið sem eru mér svo dýr- mætar minningar núna. Það var svo skemmtilegt á Spáni í sumar þar sem við vorum öll saman. Þrátt fyrir nánast óbærilegan hita þá skemmtum við okkur svo vel. Í september sl. héldum við veislu í tilefni af 61 árs afmæli þínu, þá reyndi ég að feta í fótspor þín þó að enginn kæmist með tærnar þar sem þú hafðir hælana hvað varðar myndarskap og einstakt auga fyrir smekkleg- heitum. Ófá samtöl okkar síðustu vikur hafa m.a. snúist um jólin. Þú varst svo oft hjá okkur á jólunum og þú elskaðir jólin því þá vorum við öll saman, þannig vildir þú hafa líf þitt og þú lifðir fyrir sam- verustundir okkar. Þú varst svo einstök amma og barnabörnin þín dýrkuðu þig, dáðu og elskuðu. Þú kallaðir þau nöfnum sem enginn annar notaði og það var svo mikil umhyggja, húmor og gleði í þess- um nöfnum. Elsku hjartans mamma mín, nú höfum við drukkið síðasta kaffi- bollann saman. Ég þakka þér fyrir allt og allt og get aldrei þakkað nægilega fyrir mig. Þú ert mitt leiðarljós. Þú kyssir pabba kossa frá okkur öllum og hann mun um- vefja þig þegar þú kemur nú til hans. Guð geymi þig. Þín dóttir Björg Maríanna Bernharðsdóttir. Það er erfitt að ímynda sér lífið án þín, mamma mín. Þú hefur allt- af verið mér stoð og stytta í öllu mínu lífi. Alltaf var hægt að leita bestu ráða hjá þér. Þú varst alltaf óspör á hrósið og hvattir mann áfram. Nú ertu farin á annan stað án þess að maður hafi nokkuð um það að segja. Það er sárt og sökn- uðurinn mikill. Ég get þó glatt mig við að þú sért komin á betri stað. Það er eina huggunin sem maður finnur í sorginni að missa þig. Minning- arnar um þig munu þó ylja manni um ókomna tíð. Allt sem við spjöll- uðum, brölluðum og spáðum í verður ljóslifandi í minningunni. Trú þín á Guð var líka bjargföst og þú miðlaðir henni af hlýju til mín og annarra. Leitt þótti mér að heilsa þín var ekki sem best. Það var þó gaman að ræða við þig um hin ýmsu heilsutengdu mál. Þú leitaðir líka stundum til mín með heilsuráð sem mér þótti mjög vænt um og saman komumst við að merkileg- um vísindauppgötvunum. Þó verð ég að viðurkenna að þau ráð voru ekki alltaf efst á forgangslistanum þínum. Við áttum frábærar stund- ir saman og slógum oft á létta strengi. Oft hlógum við saman þrátt fyrir að hlutirnir væru ekki eins og við óskuðum. Nærvera þín var alltaf yndisleg, hvort sem það var í rökræðum, við matarborðið eða bara vitandi af þér hrjótandi í næsta herbergi. En skemmtileg- ast var að hlæja með þér og heim- sækja þig til Akureyrar. Alltaf stóðstu úti á plani þegar bíllinn renndi í hlað og tókst okkur í fang- ið. Svo tók við veisla sem þú töfr- aðir fram með þinni frábæru mat- seld og umhyggjusemi. Vertu velkomin til mín um jólin eins og við plönuðum og ég passa upp á að matseðillinn verði samkvæmt þín- um óskum. Ég veit að synir mínir og ömmubörn syrgja þig líka djúpt og sakna þín mikið, enda varstu frábær amma. Sú fallega minning er ekki síðri en minningin um þig sem móður. Nú kveð ég þig, mamma mín, og þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur gefið mér. Lífið er þar stærsta gjöfin en samveran með þér sú besta. Ég vona að þú finnir fljótt þinn stað á himnum og pabbi verði með þér. Ég geymi fallega minn- ingu um þig um ókomin ár, elsku mamma mín. Takk fyrir sam- fylgdina. Þinn sonur Bernharð Stefán. Elsku móðir mín, nú erum við að skilja í þessum heimi. Þú hefur alltaf stutt við bakið á mér þegar ég hef þurft á því að halda. Að þú hafir horfið frá mér svo skyndi- lega er óbærilega sorglegt. Þú varst mér alltaf mikill gleðigjafi og þó þú hafir verið að glíma við veik- indi, sem ég oft og tíðum skildi ekki, voru samverustundir okkar mér alltaf mikils virði. Ég veit að lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá þér en þér var einni lagið að hlæja, dansa, syngja og njóta lífs- ins. Svo fannst mér gott að búa hjá þér, þú varst nú einkar lagin í eld- húsinu. Þú samgladdist með mér þegar mér gekk vel og fannst til með mér þegar eitthvað fór úr- skeiðis. Þú varst besta mamma sem ég gat hugsað mér og ég vildi að samverustundirnar okkar hefðu verið fleiri. Ég veit að allir sem voru þér samferða í gegnum lífið eiga eftir að sakna þín mikið því þú varst svo mikill gleðigjafi. Það var svo gott að koma með vini mína heim því þú tókst alltaf svo vel á móti okkur. Þú varst mér mikill sálufélagi eftir að ég flutti aftur til Akureyrar og ég met vin- skap okkar óendalega mikils. Þú varst mér alltaf innan handar ef mig vantaði eitthvað og vildir allt- af allt fyrir mig gera. Þú varst sú sem vaktir eftir mér þegar ég fór niðrí bæ þegar ég var ungur og ég þakka þér fyrir það. Ég vona að veikindum þínum sé nú lokið og að þér líði vel. Mig langar þakka þér fyrir allt það liðna, þetta var mér dýrmætur tími og ég vona að þú finnir frið þarna hinum megin. Ég sakna þín. Þinn sonur Steingrímur Magnús Bernharðsson. Elsku Sibba mín, nú er komið að leiðarlokum, við áttum margar góðar stundir saman. Þú varst ein af merkilegri manneskjum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina. Þegar ég kom til þín í Tungusíðu tókst þú ávallt á móti mér með hlýhug og kossi á kinn og beið ætíð girnileg skúffukaka eftir mér. Þrátt fyrir að þú mættir oft og tíðum mótlæti í lífinu þá léstu það ekki hafa mikil áhrif á þig, þú hafðir þann eigin- leika að geta horft á þetta allt saman með léttum hug og húmor eða gerðir grín að þessu öllu sam- an. Þú varst einstaklega ráðagóð og var ávallt gott að leita til þín, voru ráð þín ætíð góð og gæfurík. Einnig varstu einstaklega gjaf- mild kona og vildir allt fyrir alla gera, barnabörnin þín dýrkuðu þig og þú taldir það ekki eftir þér að klæða þig upp og setja upp leik- rit með þeim, og varð það öllum til mikillar skemmtunar. Söknuður þeirra verður mjög mikill við frá- fall þitt svona allt of snemma. Við sátum oft löngum stundum og ræddum um heima og geima, aldr- ei var húmorinn og hláturinn langt undan og sögunar þínar voru æv- intýralegar. Mikill snyrtipinni varstu, heimili þitt var alltaf ein- staklega snyrtilegt og þegar kom að stórum veislum varstu ómiss- andi, því þú vannst á við 10 manns og hlífðir þér aldrei. Alls staðar þar sem þú varst var hreint og fal- legt. Ég veit að nú ertu komin á góðan stað og bíður Benni eftir þér með bros á vör og koss á kinn. Þín verður mjög sárt saknað í framtíðinni. Takk fyrir allar góðu stundirnar og samfylgdina í þessu lífi. Þinn vinur og tengdasonur, Sigurður B. Elskulega tengdamóðir mín og vinur, mig setti hljóðan þegar mér var tilkynnt þar sem ég var stadd- ur erlendis að þú værir farin. Mér fannst þessi frétt svo óraunveru- leg og ég er ekki ennþá búinn að átta mig á því að ég fæ ekki að sjá þig aftur, spjalla við þig, taka á móti þér eða heimsækja þig norð- ur til Akureyrar og segja þér frá strákunum mínum sem þú varst svo óendanlega stolt af. Nú eru minningarnar um þig það sem ég á eftir og verða víst að duga. Þú varst svo hjartahlý, raunagóð, æðrulaus, elskaðir börnin þín, barnabörn og tengdasyni og lifðir fyrir okkur. Ég veit og skil að lífið er ekki alltaf sanngjarnt og sjálf- sagt sjaldan eins grimmt og við þá sem vilja engum illt og sækjast ekki eftir veraldlegum frama. Við áttum okkar góðu stundir saman, höfðum bæði gaman af mat og átt- um ófáar stundirnar saman í eld- húsinu þar sem við töfruðum fram hátíðarmáltíðir. Þú þreyttist ekki á að segja frá því við matarborðið hvað tengdasonur þinn gæti eldað góðan mat, en að ganga frá eftir sig væri nú allt annað mál. Og það eru nú ekki allar tengdamæður sem hefðu leyft tengdasyninum að breyta jólahefðunum á heimili sínu fyrstu jólin okkar saman, en það gerðir þú fyrir mig þegar þú leyfðir mér að elda rjúpu. Við rest- ina af fjölskyldunni sagðir þú, að það væru engin jól hjá Berki nema að hann fengi rjúpurnar sínar. Ég vildi óska þess að við hefðum feng- ið meiri tíma og að við hefðum get- að átt saman fleiri gæðastundir því þú hafðir svo góða nærveru og það var svo gaman að sjá hversu stolt þú varst af börnunum þínum og barnabörnum. Þú varst góð móðir, amma og tengdamóðir, það var gott að leita til þín, þú varst tilbúin til að hlusta og þú varst ekki með tilbúið svar á reiðum höndum. Þú sagðir stundum við mig þegar eitthvað bjátaði á að hlutirnir myndu finna sína leið og oft væri betra að sleppa takinu því við réðum ekki alltaf för. Trúin var stór partur af þínu lífi og margar heimspekilegar samræður urðu á milli okkar um þau mál en aldrei reyndir þú að þröngva þínum skoðunum uppá aðra heldur virtir þú skoðanir annarra. Þú skilur eftir þig stórt skarð og þín verður sárt saknað, elsku Sibba mín, en ég veit að þú ert nú loksins komin til hans Benna þíns, þið hafið náð saman að nýju. Ég veit að þú munt vaka yfir okkur og vernda. Guð geymi þig, elsku Sibba mín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Þinn tengdasonur E. Börkur Edvardsson. Elsku amma, ég vildi að við hefðum getað eytt meiri tíma sam- an. Þegar ég hugsa til þín þá hugsa ég um allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Eins og t.d. Spánarferðin, hún var æðisleg, þú vast svo hress og skemmtileg eins og alltaf og náttúrlega lang-brún- ust af okkur öllum. Það var svo gaman að vera með þér því með þér var alltaf svo mikil hlýja í kringum þig og það var alltaf gam- an að vera með þér og ef manni leið eitthvað illa þá gat maður allt- af leitað til þín. Þú ert alveg ynd- isleg manneskja og góð og falleg og bara allt það jákvæða og þín verður mjög sárt saknað. Bara ef ég gæti fengið að kveðja þig þá myndi kveðjan standa yfir í marga daga því það er svo erfitt að kveðja þig og okkur þótti svo vænt um þig. Ég vildi bara að við þyrft- um aldrei að kveðja þig, elsku amma, það er svo erfitt að segja bara nokkur orð um allt sem við gerðum saman, og svo munum við svo vel eftir því þegar þú horfðir á einhverja vonda mynd og svo í lok- in á myndinni þá komstu að því að myndin var byggð á sönnum at- burði og því varstu svo hrædd að þú þorðir varla að fara heim og vera ein heima. Hjá þér var alltaf svo góður matur og alltaf þegar maður kom til Akureyrar þá var alltaf til besta skúffukaka í heimi. Og svo man ég svo vel eftir því þegar þú varst sextug, þá héldum við surprise-afmælisveislu og það var góður dagur og allir skemmtu sér konunglega. Og svo í ár þegar þú varðst 61 þá héldum við veislu hérna heima hjá okkur, það var líka mjög skemmtileg veisla. Það var alltaf hreint hjá þér og þegar þú komst í heimsókn þá tókstu alltaf allt í gegn. Ég veit ekki hvernig ég á að enda þetta, en hvíldu í friði, elsku amma, við elsk- um þig. Þín barnabörn að eilífu, Guðrún Karítas, Agnes Erla og Sveinn Bernharð. Við vitum með vissu hvað er og var en framtíðin er alltaf óljós. Því var það áfall þegar ég fékk sím- hringingu á föstudagskvöld og mér var tjáð að Sigurbjörg systir mín væri látin. Einhvern veginn gerir maður aldrei ráð fyrir að heyra slíkar sorgarfréttir þrátt fyrir að reynslan eigi að vera búin að kenna manni að það megi búast við öllu. Eftir á að hyggja vitum Sigurbjörg Steindórsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.