Morgunblaðið - 11.11.2011, Síða 35

Morgunblaðið - 11.11.2011, Síða 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand LÍF MITT ER EKKI FULLKOMIÐ... ÞÚ SEFUR ALLAN DAGINN! ...ÞÓ SVO AÐ SUMIR HALDI ÞAÐ MAMMA SEGIR AÐ ÞÚ EIGIR AÐ TÆMA RUSLIÐ ÞITT! EN KARFAN ER EKKI FULL MAMMA ER ÓSAMMÁLA ÞAÐ ER NÓG PLÁSS EFTIR ÞÚ ÁTT SAMT AÐ TÆMA HANA LJÓTA RUGLIÐ ÞÚ ERT ALDEILIS MEÐ MUNNINN FYRIR NEÐAN NEFIÐ, EN ÞAÐ MÁ BREYTA ÞVÍ! ER EITTHVAÐ SEM ÞÚ VILT AÐ ÉG GERI ÁÐUR EN ÉG FER Í VÍKING TIL ENGLANDS? JÁ... ÉG VIL AÐ ÞÚ MÁLIR HÚSIÐ ÉG VERÐ AÐ MUNA AÐ SPYRJA HANA EKKI ÞESSARAR SPURNINGAR NÆST ÞEGAR ÉG FER ÞESSIR ÍKORNAR VIRÐAST EKKI ÆTLA AÐ GEFAST UPP! ÞAÐ HLÝTUR AÐ VERA EINHVER LEIÐ TIL ÞESS AÐ STOPPA ÞÁ OG ÉG SKAL FINNA ÚT HVER HÚN ER, HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR ÉG MUN STOPPA YKKUR, ILLU ÍKORNAR, ÞÓ ÞAÐ VERÐI ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÉG GERI Á ÞESSARI JÖRÐ ER ÞETTA NÚ EKKI AÐEINS OF LANGT GENGIÐ? EINS GOTT AÐ ÉG DRÍFI MIG, ÞAÐ ER ALLT AÐ HRYNJA EN ÞEIR ERU ENNÞÁ AÐ SLÁST ERTU TILBÚINN AÐ GEFAST UPP? KEMUR EKKI TIL GREINA! ÞETTA ER HREIN GEÐVEIKI! Áskorun – klárið sjópottinn í Laugardal Okkur langar til að skora á framkvæmda- aðila við sjópottinn í Laugardalslauginni að halda áfram með þetta þarfa verkefni. Þarna er ekkert að gerast viku eftir viku, hvers vegna? Við fáum engin svör þegar spurt er hvenær búast megi við að verkið klárist. Um mitt sum- ar var hafist handa og lítið miðar – komið fram í nóvember, einu sinni var sagt að þá yrðu verklok. Ekki er það frostið sem tefur. Við sjó- pottsunnendur skorum á framkvæmdaaðila að klára þetta verk við fyrsta tækifæri. Hálfn- að er verk þá hafið er. Pottormarnir. Símaskráin Er nauðsynlegt að prenta símaskrána á hverju ári? Eldri borgari. Ást er… … að sjá bara stjörnur Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, bingó kl. 13.30. Þriggja kvölda námsk. í framsögn 14., 21. og 28. nóv. Kennari: Sigurður Skúlason leikari. Skráning í síma: 4112702. Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Bingó kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Kertanámskeið kl. 9, bingó kl. 13, handavinna. Dalbraut 18-20 | Stóladans kl. 10.30, söngstund kl. 14. Dalbraut 27 | Handavinnustofa kl. 8. Lestur úr dagblöðum kl. 10 á 2. hæð. Listamaður mánaðarins. Félag eldri borgara í Kópavogi | Gleði- gjafarnir í Gullsmára kl. 14. Félagsfundur FEBK í Gullsmára 12. nóv. kl. 14. Styrmir Gunnarsson fv. ritstjóri ræðir um hags- munamál aldraðra. Veitingar í boði FEBK. Skvettuball-diskó á sama stað kl. 20. Félag eldri borgara, Reykjavík | Opinn félagsfundur með Guðbjarti Hannessyni, velferðarráðherra og Jónu Valgerði Krist- jánsdóttur, formanni Landssambands eldri borgara, í Stangarhyl 4 fös. 18. nóv. kl. 15.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik- félagið Snúður og Snælda æfing kl. 9. Dansleikur sunnudag kl. 20, Klassík leikur fyrir dansi. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.15, málm- og silfursmíði kl. 9.30/13, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10. Leikfimi kl. 10.30, Gleðigjafarnir kl. 14. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Kaffispjall í krók kl. 10.30. Jóga kl. 11. Spilað í krók kl. 13.30. Syngjum saman kl. 14. Félagsstarf Gerðubergi | Bókband og fl. kl. 9, prjónakaffi kl. 10. Stafganga/létt ganga kl. 10.30. Frá hád. er spilasalur op- inn. Kóræfing kl. 12.30. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9. Hraunsel | Útskurður kl. 10. Leikfimi Bjarkarhúsi kl. 11.30, brids kl. 13, næsti dansleikur verður 18. nóv. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9/10. Vinnu- stofa kl. 9 án leiðbeinanda. Bingó kl. 13.30, kaffisala í hléi. Böðun fyrir hádegi, hár- snyrting, fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Við Hringborðið kl. 8.50, thaichi kl. 9. Listasmiðjan kl. 13; myndlist. Gáfumannakaffi kl. 15. Hæð- argarðsbíó kl. 16. Rútuferð í Forlagið/ Sjóminjasafn kl. 13. Íþróttafélagið Glóð | Opið hús í línudansi í Kópavogsskóla kl. 14.40, zumba- byrjendur kl. 16. Norðurbrún 1 | Myndlist/úrskurður kl. 9. Bingó kl. 14. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, leirmótun og handav. kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10.15, bingó kl. 13.30. Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30. Í Kiljunni var flutt vísa sem Jó-hannes úr Kötlum samdi á kaffistofu í kjallara Bókabúðar Máls og menningar um Ester, sem var starfsmaður verslunarinnar: Yndisleg er Ester, einkum þegar hún sest er, fallegt á henni flest er en framhliðin þó best er. Vísur eru kjörnar fyrir fésbók- ina, kjarni málsins í knöppum texta, og því engin furða að þar kunna hagyrðingar og vísnavinir vel við sig. Ein síðan er helguð skáldbóndanum Hákoni Að- alsteinssyni. Þar skrifar Ingibjörg Hallgrímsdóttir: „Þessa vísu orti Hákon í tilefni þess að ég missti af flugvél til Íslands frá Lundúnum. Seinna orti hann fleiri vísur af sama tilefni en ég man þær ekki og er ekki viss um að eiga þær. Lagði út á loftbrúna, leið sér valdi torsnúna, lenti í solli Lundúna, líklega er hún týnd núna. Þegar ég keypti Oddrúnu skrif- aði hann eftirfarandi vísu á saur- blað bókarinnar. Gleðistundir gefast margar, gaman verður þær að finna þegar andi Ingibjargar auðgast vegna ljóða minna. Jón Ingvar Jónsson skrifar einn- ig á síðuna: „Ég fór fyrir nokkrum árum með hópi fólks undir leið- sögn Hákonar að Kárahnjúkum. Hákon fór með nýlega vísu fyrir mig, sagðist hafa séð gular vinnu- vélar (caterpillar) utan í Fremri- Kárahnjúki og hafa ort: (Fölna grös á breiðum) bala, (blöðin fella) víðirunnar þar sem leika lausum hala lýs á höfði fjallkonunnar. Það sem er innan sviga er ég ekki viss um að rétt sé með farið. Gott væri að fá leiðréttingu frá þeim sem eiga þessa vísu skráða eða eru vissir um að muna hana. Ég heimsótti Hákon einu eða tveimur árum síðar að Húsum og 2006 ortum við saman á Vopna- skaki. Ég var spurður um Hákon og þóttist ekkert kannast við hann: Að spyrja mig er þarflaust þref, það er vart til neins, nefndan aldrei heyrt ég hef Hákon Aðalsteins. Hákon svaraði þessu, en ekki man ég vísuna. Það er enginn skaði því þetta var síðar sent út á RÚV.“ Páll Eyjólfsson skrifar á sömu síðu: „Þórdís á Melum fékk lánað tóbak hjá Síu á Húsum og fékk sent með Bjarna pósti. Þessi vísa fylgdi líkkistunöglunum: Kæri póstur Þetta bréf verður Þórdís að fá. Það verður fljótt að Melum að ná því líf hennar liggur að veði. Þá getur hún nautninni svalað um sinn sjúgandi eitrið í líkamann inn og haldið sér heilli á geði.“ Og Páll bætir við: „20. mars 2005 kaupir Hákon tóbak fyrir Þórdísi á Melum og hún sækir það í Brekku- gerðishús og móttökurnar voru þessar: Ekki er lítill ökuhraðinn, annað betra margur kaus, mædd og fúl er mætt á staðinn Melabrussan tóbakslaus. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Kötlum og Hákoni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.