Monitor - 15.12.2011, Qupperneq 13
13 FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2011 Monitor
Hvað ert þú að gera í vetur?
Ég er að vinna í Fókus í Kringlunni og svo er ég að útskrifast
sem stúdent af félagsfræði laugardaginn næstkomandi frá
Fjölbrautaskólanum í Ármúla. Svo er ég bara að djamma
allar helgar og leika mér.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég hef áhuga á að ferðast, menningu, förðun og fylgist
með tísku. Svo hef ég áhuga á söng, var í Söngskólanum í
Reykjavík, félagsstörfum og djamminu.
Hvað langar þig að starfa við í framtíðinni?
Mig langar mikið að læra nútímafræði í Háskólanum á
Akureyri og ætla örugglega að læra förðun eftir áramót. Í
framtíðinni langar mig allavega að starfa einhversstaðar þar
sem ég vinn náið með fólki eða börnum.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Ég veit ekki alveg hvað mig langar í, ég á allt sem ég þarf.
Mig langar samt alltaf í föt og fi nnst gaman að fá bækur. Ef
ég ætti að segja alveg eins og er þá langar mig samt í pöndu.
Draumurinn er að eiga pöndu sem gæludýr.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfi n sem þú hefur fengið?
Ég hugsa að það sé api sem ég fékk frá ömmu og afa þegar
ég var lítil. Við systkinin fengum öll apa, með honum fylgdi
dótabanani og dudda og ég var alltaf með þennan apa.
Af hverju ætti fólk að „like-a“ þína forsíðu?
Svo að stórfenglegir hlutir geti
gerst!
Guðrún Edda Reynisdóttir
HRAÐASPURNINGAR
Fyrstu sex: 120592.
Uppáhaldsmatur: Humar, kjúklingur og sushi.
Uppáhaldsstaður í heiminum: Heima hjá ömmu
og afa.
Uppáhaldsjólasveinn: Kertasníkir.
Uppáhaldsforsíða Monitor til þessa: Ragnhildur
Steinunn.
Hvað ert þú að gera í vetur?
Ég fl utti úr Breiðholti í Grafarvog í fyrra og byrjaði í
Borgarholtsskóla. Ég er sem sagt á öðru ári þar á marg-
miðlunarbraut og það gengur bara drulluvel. Svo fer ég sex
sinnum í viku á boxæfi ngar. Það var markmið sem ég setti
mér, að koma mér í form, og hef verið að vinna að því síðan
í sumar.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Það er ljósmyndun, ég er alltaf að taka ljósmyndir, og í raun
allt sem tengist list. Mér fi nnst gaman að teikna. Svo er box-
ið eina íþróttin sem ég get verið í, ég fíla ekki hópíþróttir.
Hvað langar þig að starfa við í framtíðinni?
Mig langar að starfa við einhvern fjölmiðil, til dæmis sem
upptökumaður eða ljósmyndari.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Í rauninni ekki neitt. Eða jú, mig langar í nýja fi lmu á
myndavélina mína og ég held að ég fái svoleiðis. Svo vantar
mig reyndar líka skó fyrir íþróttirnar.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfi n sem þú hefur fengið?
Þegar ég var lítill fékk ég Vidda-brúðu, persónuna úr Toy
Story, og ég var alltaf með hana. Ég á hana meira að segja
ennþá.
Af hverju ætti fólk að „like-a“ þína forsíðu?
Ég er ekki þessi gaur sem segir: „„Like-aðu“ mína mynd af
því að ég er betri en allir hinir.“ Ég er kærulaus gaur, þótt
það væri alveg kúl að vinna þennan
síma og það er gaman að fá að
vera á forsíðunni.
Daníel Hjörtur Hjartarson
HRAÐASPURNINGAR
Fyrstu sex: 150394.
Uppáhaldsmatur: Ég hugsa að það sé sá sem kemur
bráðum, hamborgarhryggurinn.
Uppáhaldsstaður í heiminum: Þar sem vinir mínir eru.
Uppáhaldsjólasveinn: Stekkjastaur, hann byrjar gamanið.
Uppáhaldsforsíða Monitor til þessa: Gói, sem var með
allt límbandið.
Hvað ert þú að gera í vetur?
Ég er að læra lögfræði við Háskólann í Reykjavík.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Aðallega líkamsrækt og svo hef ég áhuga á því að ferðast.
Hvað langar þig að starfa við í framtíðinni?
Ég verð einhver framkvæmdastjóri hjá mjög virtu fyrirtæki
(hlær).
Hvað langar þig í jólagjöf?
Ef ég fengi að velja, þótt ég efi st um að ég fái það, þá myndi
ég vilja PlayStation 3-leikjatölvu og fullt af leikjum í hana
eins og Simpson-leikinn, NBA og FIFA.
Hver er eftirminnilegasta jólagjöfi n sem þú hefur fengið?
Það er dálítið eftirminnilegt þegar ég fékk ferðatösku sem
mér fannst mjög óspennandi. Síðan fékk ég samt mjög
fallegt úr á sömu jólum.
Af hverju ætti fólk að „like-a“ þína forsíðu?
Af því ég syng vel í sturtu.
Olga Helena Ólafsdóttir
HRAÐASPURNINGAR
Fyrstu sex: 160391.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari á American
Style.
Uppáhaldsstaður í heiminum: Bora Bora.
Uppáhaldsjólasveinn: Stúfur, því hann er svo
lítill, feitur og krúttlegur.
Uppáhaldsforsíða Monitor til þessa: Sveppi.