Morgunblaðið - 04.01.2012, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2012
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað Akureyrarbæ af skaðabóta-
kröfu stúlku, sem slasaðist í vatns-
rennibraut í Sundlaug Akureyrar
sumarið 2007 þegar stúlkan var 8
ára gömul.
Stúlkan fór í
rennibrautina
þegar grænt um-
ferðarljós logaði
efst í brautinni til
merkis um að
óhætt væri að
fara af stað.
Stúlkan sagðist
þó hafa beðið í
nokkra stund án
þess að sjá neinn
inni í rennibrautinni og þá ákveðið
að fara af stað niður. Í ljós kom
síðan að drengur hafði stöðvast í
miðri rennibrautinni og sat þar.
Stúlkan skall á honum og missti
við það tvær framtennur.
Stúlkan krafðist þess að við-
urkennd yrði með dómi skaðabóta-
skylda bæjarins. Héraðsdómur
taldi hins vegar að stúlkan hefði
ekki sýnt fram á að hönnun eða
gerð rennibrautarinnar hefði verið
í ósamræmi við þágildandi staðla.
Þá hefði ekki verið sýnt fram á
að starfsmenn sundlaugarinnar
hefðu með saknæmum eða ólög-
mætum hætti átt neinn þátt í
þeirri atburðarás er olli slysinu.
Var það niðurstaða dómsins að
slysið hefði verið óhappatilvik sem
Akureyrarbær bæri ekki bóta-
ábyrgð á.
Fær ekki
dæmdar
bætur
Stúlka slasaðist í
vatnsrennibraut
Sundlaug
Akureyrar.
um sem gengur
undir nafninu
Sprettur.
Skýrsla um mál-
ið var birt á
vegum MAST í
desember síð-
astliðnum þar
sem meðal ann-
ars kom fram að
meirihluti sýna
innihélt of mikið kadmíum. Í kjölfar-
ið var sala og dreifing á áburðinum
Anna Lilja Þórisdóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
Áburði, með talsvert meira en leyfi-
legu magni af þungmálminum
kadmíum, var dreift í verulegu
magni víða um land síðastliðið vor.
Matvælastofnun, MAST, hafði um
þetta vitneskju, en kaus að bíða með
að upplýsa það. Formaður Bænda-
samtakanna segir málið álitshnekki
fyrir stofnunina.
Skeljungur hefur dreift áburðin-
bönnuð, þar til frekari rannsóknir
hefðu farið fram.
„Það sem mér finnst vont í þessu
er að Matvælastofnun, sem er okkar
eftirlitsstofnun og við eigum að setja
traust okkar á varðandi heilnæmi
okkar framleiðslu og þar fram eftir
götunum, komi með upplýsingar um
málið núna níu mánuðum seinna,“
segir Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtakanna.
Hann bendir á að áburðurinn sem
um er að ræða hafi verið borinn á
tún í júní síðastliðnum og að bændur
séu farnir að gefa það hey sem aflað
var af túnunum þegar þeir loksins
frétta af þessu. „Þannig að þetta er
auðvitað mikill álitshnekkir fyrir
MAST og það eftirlit sem stofnunin
segist standa fyrir,“ segir Haraldur.
Í samtali við Bændablaðið segir
Valgeir Bjarnason, sérfræðingur
áburðar- og fóðureftirlits hjá
MAST, að ekki hafi verið upplýst
fyrr um málið m.a. vegna þess að
komið hafi á óvart að áburður frá
Skeljungi hafi verið mengaður og að
hann hafi þegar verið kominn í
dreifingu.
Í yfirlýsingu sem Skeljungur
sendi frá sér í gær segir að fyrir-
tækið hafi verið fullvissað um það af
birgja sínum í Bretlandi að þetta
muni ekki endurtaka sig. „Engar
takmarkanir gilda í Evrópusam-
bandinu um kadmíum-innihald í
áburði,“ segir í yfirlýsingunni. Ís-
land sé eitt fárra ríkja sem gangi
lengra og setji viðmiðunarmörk.
MAST upplýsti ekki um þungmálm í áburði
Áburði með miklu magni af þungmálminum kadmíum var dreift í fyrra Formaður Bændasamtak-
anna segir málið álitshnekki fyrir Matvælastofnun Reglur strangari á Íslandi en í ESB-löndum
Áburður Of mikið
kadmíum var í áburði.
Héraðsdómur
Reykjavíkur
hefur dæmt ís-
lenska ríkið til
að greiða 11 ára
gamalli stúlku
11,7 milljónir
króna vegna
mistaka sem
gerð voru á
fæðingardeild Landspítala þegar
stúlkan fæddist.
Við fæðinguna kom upp svokölluð
axlarklemma og hlaut stúlkan var-
anlegt tjón vegna þess. Er hún löm-
uð á hægri öxl. Hafa sérfræðingar
metið varanlega örorku stúlkunnar
40%.
Fjölskipaður héraðsdómur kemst
að þeirri niðurstöðu, að starfsmenn
Landspítala hafi gert saknæm mis-
tök við fæðingu stúlkunnar og er því
fallist á að ríkið sé skaðabótaskylt
gagnvart henni.
Bætur vegna
mistaka við
fæðingu