Morgunblaðið - 04.01.2012, Qupperneq 13
Verðbreytingar á áfengi 1. janúar 2012
Víntegundir valdar af handahófi:
Vodka: Smirnoff 1l. 6.669 kr. 6.990 kr.
Bjór: Víking Gylltur 500 ml (engin breyting - síðast breytt 1. ágúst 2011)
Hvítvín: Alamos Chardonnay 750 ml. 1.899 kr. 1.999 kr.
Rauðvín: Montes Cabarnet Sauvignon 750 ml. 1.798 kr. 1.899 kr.
Tilbúið dæmi Vínbúðarinnar:
Vodka 700 ml. 5.299 kr. 5.465 kr.
Bjór 500 ml. 345 kr. 350 kr.
Hvítvín 750 ml. 1.998 kr. 2.031 kr.
Rauðvín 750 ml. 1.998 kr. 2.039 kr.
Nýtt verð
Eldra verð 1. jan. 2012
Andri Karl
andri@mbl.is
Íslendingar virðast hafa skálað í ein-
hverju öðru en freyðivíni um liðin
áramót, ef marka má sölutölur úr
Vínbúðum Áfengis- og tóbaksversl-
unar ríkisins. Sala freyðivíns var
tæpum tíu prósentum minni í des-
embermánuði en sama mánuð árið
2010. Í lítrum talið minnkaði sala á
áfengi um 2,6% í desember milli ára.
Er það svipaður samdráttur og á
heildina litið milli sömu ára.
Ef aðeins er litið á desembermán-
uð má sjá að samdráttur var í sölu
allra flokka. Sala á rauðvíni minnk-
aði um 0,8%, sala á hvítvíni um eitt
prósent, sala á ókrydduðu brenni-
víni og vodka um 6,3% og 3,2% sam-
dráttur var í sölu á lagerbjór.
Annasamasti tími ársins í Vínbúð-
unum er alla jafna vikan fyrir ára-
mót, þ.e. dagana 27.-31. desember.
Þessa viku seldust 503 þúsund lítrar
af áfengi en það er sjö prósent
minna en sömu daga árið 2010. Við-
skiptavinum Vínbúðanna fækkaði
um sömu prósentu, fóru úr 101 þús-
und í 94 þúsund. Flestir viðskipta-
vinir á síðasta ári komu í Vínbúð-
irnar 30. desember eða 43.900 og
keyptu þeir 256 þúsund lítra af
áfengi.
8,3% samdráttur í sterku víni
Á öllu síðasta ári voru seldar 18,4
milljónir lítrar af áfengi sem er 2,7%
minna en árið 2010. Af einstökum
flokkum má sjá að sala á rauðvíni
stóð því sem næst í stað en sala á
hvítvíni jókst um tæp tvö prósent.
Þá var töluverð aukning á sölu
blandaðra drykkja eða um 6,9%.
Enn minnkar hins vegar sala á
sterku víni, og var 8,3% minni sala
var á ókrydduðu brennivíni og
vodka milli áranna 2011 og 2010. Þá
var töluvert minna keypt af bjór eða
um 3,8% minna.
Erfitt er að spá fyrir um hvernig
þróunin verður á þessu ári en ef
miðað er við þróun síðustu ára –
verð hefur hækkað og minna keypt
– má búast við enn meiri samdrætti.
Um ára mót hækkuðu áfengisgjöld
um 5,1% á alla flokka. Samkvæmt
upplýsingum frá ÁTVR hækkar
verð á áfengi að meðaltali um 2,05%.
en hækkunin er mismunandi eftir
flokkum, auk þess sem fleiri þættir
spila inn í og geta því einstaka teg-
undir hækkað meira en aðrar.
Eins og sést á meðfylgjandi korti
er töluverður munur á tilbúnu dæmi
ÁTVR á meðaltalshækkunum og
raunverulegum verðbreytingum á
fáeinum tegundum völdum af
handahófi. Þannig má sjá að Víking
gylltur hefur ekki hækkað í verði,
báðar tegundir léttvíns hækkuðu
hins vegar um eitt hundrað krónur
og vodkaflaska um 321 krónu. Það
er öllu meira en gert er ráð fyrir í
tilbúnu dæmi ÁTVR.
Færri skáluðu í freyðivíni
Meira var keypt af léttvíni í Vínbúðum ÁTVR árið 2011 en 2010 en minna af bjór og sterku áfengi
Á árinu 2011 voru seldar 18,4 milljónir lítra af áfengi sem er tæpum þremur prósentum minna en 2010
Heildarsala áfengis 2010 og 2011
Salan í desember (þús. lítrar)
2010 (alls 2.066 þús. lítrar) 2011 (alls 2.013 þús. lítrar)
Salan í janúar-desember (þús. lítrar)
2010 (alls 18.942 þús. lítrar) 2011 (alls 18.438 þús. lítrar)
250
200
150
100
50
0
Rauðvín Hvítvín Ókr. brenniv.og vodka Freyðivín Lagerbjór
24
8
24
6
11
9
11
8
26 25 3
1
28
1.
52
7
1.
47
8
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
-0,8%
-1,0%
-6,3% -9,9%
-3,2%
Rauðvín Hvítvín Ókr. brenniv.og vodka Freyðivín Lagerbjór
1.800
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
16.000
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
1.
76
9
1.
77
3
+0,2%
1.
12
4
1.
14
4
+1,8%
26
5
24
3
-8,3%
14
7
15
7
+6,9%
14
.8
27
14
.2
70
-3,8%
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2012
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Byggingavöruverslunin BYKO
hætti með afsláttarkort fyrir ein-
staklinga um áramótin og hefur þess
í stað lækkað verð á vörum sínum um
allt að þrjátíu og fimm prósent. Er
þetta meðal annars gert til að bregð-
ast við samkeppni frá þýska fyrir-
tækinu Bauhaus sem opnar stærstu
byggingavöruverslun landsins í vor.
„Við erum í raun að breyta verð-
stefnu fyrirtækisins og erum fyrst
og fremst að lækka verð á öllum
vörum. Við lækkum allar vörur frá
einu prósenti og upp í þrjátíu og
fimm prósent. Þetta er að jafnaði um
tíu til fimmtán prósenta verðlækk-
un,“ segir Guðmundur H. Jónsson,
forstjóri BYKO.
Koma til móts við heimilin
Verðlækkunin næst með því að
þeir fjármunir sem fást með því að
leggja niður afsláttarkerfið verða
notaðir til þess að lækka álagningu á
vörunum að sögn Guðmundar.
Stærri viðskiptavinir fá þó eftir sem
áður einhverja afslætti en á öðru
sniði en verið hefur.
Inntur eftir því hvort verðlækk-
unin sé tilkomin vegna innkomu
Bauhaus á byggingavörumarkaðinn
segir Guðmundur að það sé hluti
ástæðunnar. Samkeppni á markaðn-
um sé að breytast og aukast og
BYKO bregðist að sjálfsögðu við því.
„Svo hefur fjárhagslegt svigrúm
heimilanna minnkað á síðastliðnum
árum og við viljum koma til móts við
breyttar aðstæður þeirra. Við höfum
fundið fyrir kröfu frá viðskiptavinum
um aukið gegnsæi í verðlagningu
verslana,“ segir Guðmundur.
Telja sig með lægsta verðið
Að sögn Sigurðar Arnars Sigurðs-
sonar, forstjóra Húsasmiðjunnar,
telja menn þar á bæ sig ekki þurfa að
bregðast sérstaklega við útspili
BYKO né komu Bauhaus.
„Við munum bara halda áfram að
fylgjast vel með markaðnum eins og
við höfum gert hingað til. Við erum
óhræddir við að takast á við þá sam-
keppni og við fögnum henni,“ segir
hann.
Fyrirtækið fylgist með verði á
markaðnum mörgum sinnum á dag
og leiðrétti verð oft í viku. Segir Sig-
urður Arnar að það telji sig hafa boð-
ið lægsta verðið á markaðnum í heilt
ár undir merkinu „lægsta lága verð
Húsasmiðjunnar“.
„Nú er danska félagið Bygma
nýbúið að kaupa Húsasmiðjuna
þannig að við erum komin með mjög
öflugan bakhjarl til að takast á við
hvaða samkeppni sem er á markaðn-
um á hverjum tíma,“ segir hann.
Bregðast við
samkeppni
BYKO lækkaði vöruverð um áramótin
Dæmi um verð-
lækkanir hjá BYKO
Var Nýtt v. Breyt.
Byggingatimbur,
óheflað, 1x6
(lengdarmetri)
BYKOmálning
(10 lítrar)
Málningarúlla
og bakki
Parket, eik (m2)
Gólfflís 30x60
cm (m2)
335 235 -30%
7.990 7.499 -6%
1.190 990 -17%
3.990 3.910 -2%
5.390 4.312 -20%
(Verð í krónum)
Fylgstu með Ebbu útbúa
einfalda og bragðgóða
heilsurétti í MBL sjónvarpi
á hverjum miðvikudegi.
- heilsuréttir