Morgunblaðið - 20.01.2012, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Golli
Jafnaðarsinnar Þau Viktor Ingi Lorange og Bryndís Torfadóttir eru talsmenn félagsins.
fleiru slíku til að ná athygli fólks.
Umræðan komin af stað
Bryndís, sem er nemandi í
Kvennaskólanum í Reykjavík, segir
umræðu um aukið jafnrétti almennt
vera nokkra meðal ungs fólks og
mikilvægt sé að viðhalda henni.
„Ég hef tekið mikið eftir þess-
ari umræðu verandi í menntaskóla
og kannski sérstaklega eftir að hafa
setið kynjafræðiáfanga. Umræðan
um jafnrétti kynjanna er mikil en
nýkomnar tölur sýndu að t.d. enn
sé óútskýrður 10% launamunur á
milli kynjanna. Jafnréttismál
kynjanna voru einmitt rædd á fundi
sem við héldum á miðvikudaginn
svo og jafnrétti sam- og tvíkyn-
hneigðra. Við viljum líka hefja upp
málefni annarra hópa sem hafa ekki
verið jafn mikið í umræðunni.
Framtíðarsýn félagsins er sú að
hver og einn einstaklingur verði
metinn á einstaklingsgrundvelli en
ekki út frá þeim samfélagshópi sem
hann tilheyrir,“ segir Bryndís.
Áhrif á bæði kynin
Umræða um birtingarmyndir
kynjanna í fjölmiðlum og staðal-
ímyndir hafa verið nokkuð til um-
ræðu í samfélaginu. Bryndís segir
að eftir að hafa setið kynjafræðiá-
fangann hafi hún farið að setja
spurningarmerki við margt sem
hún velti ekki fyrir sér áður.
„Ég gerði mér grein fyrir því
hversu mikið fjölmiðlar móta hug-
myndir manns um það hvernig kyn-
in séu og ætlast er til að maður
hagi sér og líti út. Þetta hefur áhrif
á bæði kynin þó að meira sé talað
um það hvernig ákveðin mynd af
konum eða stelpum sé dregin upp.
Við viljum hvetja fólk til að vera
meðvitað og gagnrýnið á þetta,“
segir Bryndís. Í nokkrum skólum
er nú farið að kenna kynjafræði og
hafa meðlimir í Félagi ungra jafn-
réttissinna hugmyndir um að slík
kennsla verði í boði í sem flestum
skólum.
Vikulegir fundir
Markhópur félagsins er ungt
fólk alveg niður í grunnskólaaldur.
Flestir félagar eru nú á mennta-
skólaaldri en félagið er ætlað fólki á
aldrinum 14-28 ára. Öllum er þó
velkomið að sitja opna fundi félags-
ins.
Síðastliðið miðvikudagskvöld
var haldinn umræðufundur þar sem
helstu stefnumál félagsins voru
rædd. Voru þar ræddar ýmsar hug-
myndir að aðgerðum og félagar
vilja gjarnan afla sér meiri fræðslu.
Bryndís segir að hafi einhver áhuga
á samstarfi eða að sjá um fræðslu
sé það vel þegið. Miðað er að því að
halda vikulega fundi á laugardögum
í Hinu húsinu. Félag ungra jafn-
réttissinna er með síðu á Facebook
þar sem hægt er að fylgjast með
nýjustu fréttum og fundum.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012
Listaskólinn Edinburgh College of Art
í Skotlandi er fyrsti skólinn í Englandi
til að nota gínur í yfirstærðum. Gín-
urnar voru sýndar á fjölmiðlafundi í
vikunni. Þær eru upp í stærð 20 og
verða notaðar af fatahönnunarnem-
um við skólann. Yfirstærð er þó
vissulega afstætt hugtak enda geta
alls ekki allar konur komist í jafn smá
föt og tískusýningarfyrirsæturnar.
Þar með eru þeirra venjulegu númer
orðnar óvenjustór. Fyrirsætur í stærri
númerum, sé miðað við tískuheiminn,
stíga nú æ fleiri fram á sjónarsviðið
til að sýna heiminum eins og er. Að
konur eru líka fallegar með sínar lín-
ur, læri, rass og brjóst.
Tíska
Reuters
Stærri Það er aðeins hægt að klípa í þessar gínur, sem er óvenjulegt.
Fallegar línur, læri og brjóst
Fatahönnun Neminn Lorn Cowie.
Það er alltaf gott að taka sér góða
bók í hönd og gleyma sér yfir
áhugaverðri sögu. Bókin Táknmál
blómanna eftir Vanessu Diffen-
baugh, segir frá hinni 18 ára Victo-
riu sem er alin upp á flækingi milli
fósturheimila og stofnana. Þegar
hún kynnist ungum blómabónda
sem eins og hún kann að láta blóm-
in tala fyrir sig, þarf hún að horfast
í augu við eigin bresti og læra að
treysta öðrum. Tilfinningarík og
átakamikil saga um eftirsjá, höfnun
og einmanaleika en líka von, fyrir-
gefningu og ást.
Áhugaverð bók
Töfrandi tákn-
mál blóma
Meðal hugmynda innan Félags
ungra jafnréttissina er að
kennsla í kynjafræði verði í boði
í sem flestum skólum.
Í Háskóla Íslands er kynja-
fræði kennd á félagsvís-
indasviði og tilheyrir stjórn-
málafræðideild. Á vefsíðu
námsins segir meðal annars að
kynjafræði snúist um marg-
breytileika mannlífsins og að
nánast allt í veröldinni hafi
kynjafræðilegar hliðar. Fátt sé
því kynjafræðinni óviðkomandi.
Enn fremur segir að kyn sé
grundvallarstærð í tilverunni og
eitt af því sem skapar marg-
breytileika mannlífsins rétt eins
og kynhneigð, þjóðernisupp-
runi, aldur, stétt, fötlun og fleiri
félagslegir áhrifaþættir.
Kyn skapar
fjölbreytni
KYNJAFRÆÐI
Það var dálítil kabarettstemning í nýjustu hönnun
Lenu Hoschek sem sýnd var á tískuvikunni í Berlín á
dögunum. Fatnaðurinn var í anda seinnistríðsáranna
og húfur á höfði fyrirsætanna undirstrikuð dálítið
dulúðugan brag. Kannski hafi þarna verið dulbúnir
njósnarar á ferð? Það var margt um manninn á
tískuvikunni og vakti athygli að Pierre Sarkozy,
sonur Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, sást
á áhorfendabekk og virtist skemmta sér ágæt-
lega yfir nýjustu haust- og vetrartískunni.
Tíska
Kabarettstemning á þýsku tískusýningarpöllunum
Reuters
Smart Blúndur voru áberandi í hönnun Lenu Hoschek og var dálítill seinnistríðsárabragur yfir fatnaðinum. Kátur Forsetasonurinn skemmti sér vel.