Morgunblaðið - 20.01.2012, Page 12

Morgunblaðið - 20.01.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012 BAKSVIÐ Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Í okkar menningu er hefð fyrir því að greina börn sem gráta mikið með magakveisu. Rannsóknir hafa þó sýnt að grátur barna veltur mjög á hversu færir foreldrarnir eru að róa barnið og það byggist á tengslunum þeirra á milli.“ Þetta kom fram í fyr- irlestrinum Fyrsta ástarsambandið: Grundvöllur öruggra tengsla sem Sæunn Kjartansdóttur sálgreinir flutti á Læknadögum í gær. Þar fjallaði hún um tengslaþörf ung- barna og hversu mikilvæg tengsl ungbarna við foreldra sína eru upp á velgengni þeirra í lífinu síðar meir. Sæunn segir að skýringar á gráti barna sé undantekningarlítið leitað í líkamanum, barnið er með í mag- anum eða að taka tennur, og lítið horft til annarra þátta. „Rétt eins og fullorðnir gráta ungbörn yfir fleiru en líkamlegum verkjum. Í dag vant- ar ekkert upp á þekkingu okkar á líkamsstarfsemi barna en þekking á tengslaþörf ungbarna hefur átt erfitt uppdráttar. Ég tel að það sé vegna þess að hún er of truflandi, gengur þvert á þau gildi sem hafa verið ráðandi í vestrænum sam- félögum þar sem allir, þar með talið ung börn, eiga að vera sjálfstæðir og sterkir og það á ekki að vera íþyngj- andi fyrir fólk að eignast börn.“ Streita ógn við fóstrið Ljóst er að ungt barn getur ekki sjálft stjórnað líðan sinni. Það þarfn- ast foreldra eða annarra fullorðinna sem þekkja það og eru sjálfir í bæri- legu jafnvægi til að veita því öryggi og hamla streitu. Sæunn segir börn afar viðkvæm fyrir streitu sem stafi t.d. af vanlíðan foreldra. „Viðvarandi streita getur haft alvarlegar afleið- ingar á þroska þeirra og heilsu fram á fullorðinsár. Á meðgöngunni er lagður grunnur að líðan ein- staklingsins, þroska hans og heilsu til æviloka. Streita móður á með- göngu er því ógn fyrir fóstrið,“ segir Sæunn. „Streituhormóninn kortisól breytir hjartslætti móðurinnar og dregur úr blóðflæði til fóstursins sem getur haft áhrif á fæðing- arþyngd. Kortisól hefur jafnframt bein áhrif á mótun heila fóstursins. Börn mæðra sem þjást af kvíða á meðgöngu eru líklegri til að hafa aukið magn kortisóls um ókominn aldur og þau eru viðkvæmari fyrir kvíðaröskunum. Viðvarandi hátt magn kortisóls hjá fóstri og ungu barni getur skaðað mótun tauga- brauta, veikt ónæmiskerfið, minnk- að mótstöðuafl gegn sýkingum og skaðað heilann. Að auki hefur streita áhrif á hormón sem stýrir líð- an, sem tengist margskonar hegð- unarvanda og tilfinningavanda barna. Aukin þekking á viðkvæmni fósturs fyrir andlegu ekki síður en líkamlegu ástandi móður gerir að mínu mati auknar kröfur til heil- brigðisstarfsfólks að taka vanlíðan kvenna á meðgöngu mjög alvar- lega.“ Eftir fæðinguna hefur líðan móð- urinnar ennþá mikil áhrif á barnið og það er áfram jafn háð henni að sögn Sæunnar. „Fólk á að nálgast barnið sem hugsandi tilfinningaveru en ekki einblína á hegðun þess og líkamlegar þarfir. Ungbörn eru margfalt næmari en fullorðnir, þau eru eins og svampur á líðan foreldra sinna og því er það ekki fyrr en for- eldrarnir fá hjálp með sínar tilfinn- ingar sem léttir á börnum þeirra.“ Áhrifalítið og væntir ekki góðs Sæunn segir börn með öruggt tengslamynstur hafa betri sjálfs- mynd, vera í betra tilfinningalegu jafnvægi og sýna meiri seiglu, frum- kvæði, félagslega færni og einbeit- ingu, þau leggja síður önnur börn í einelti og þau verða síður fyrir ein- elti. Barn með óörugg tengsl upplifir sig áhrifalítið og væntir ekki góðs af öðrum. „Að mínu mati er það sam- félagsleg ábyrgð að koma barni til manns, þess vegna tel ég að velferð- arkerfið þurfi að koma mun sterkar til og styðja við foreldra sem standa höllum fæti. Því fyrr sem brugðist verður við því heilbrigðari verða börnin og samfélagið líka.“ Gráta yfir fleiru en líkamlegum verkjum  Skýringar á gráti ungbarna undantekningalítið leitað í líkamanum  Viðvarandi streita barna og foreldra þeirra getur haft alvarlegar afleiðingar á þroska barnsins og heilsu fram á fullorðinsár Reuters Grátið Skýringar á gráti barna er undantekningarlítið leitað í líkamanum og lítið horft til annarra þátta. Tengsl foreldra og barna » Þroski heilans er háður ánægjulegum samskiptum. » Viðvarandi streita getur skaðað mótun taugabrauta, veikt ónæmiskerfið, minnkað mótstöðuafl gegn sýkingum og skaðað svæði heilans sem hefur með minni að gera. » Vanlíðan foreldra getur valdið streitu í barninu og líð- an foreldra hefur áhrif á getu þeirra til að róa barn og veita því öryggi. » Líkamleg nálægð móður ein og sér veitir barninu ekki nægilegt öryggi, það er heldur ekki nóg að hún sé hlýleg. Hún þarf að vera læs á tjáningu barnsins og fær um að svara henni á viðeigandi hátt. » Geta foreldra veltur á mörg- um þáttum; eins og reynslu þeirra úr barnæsku, líðan móður á meðgöngu og í fæð- ingu, stuðningi maka og fjöl- skyldu, félagslegum að- stæðum, hæfni til að hugsa um líðan sína og setja hana í samhengi og ekki síður per- sónuleikagerð, sjálfhverfir ein- staklingar eiga t.d. ekki gott með að setja sig í spor ann- arra. » Þegar móðir eða barn sýna einkenni um vanlíðan er of tak- markandi að einblína og leita að sjúkdómum hjá öðru hvoru þeirra, heldur er nauðsynlegt að horfa til tengsla þeirra. » www.fyrstutengsl.is Læknadagar 2012 Grundvöllur öruggra tengsla foreldra og barna Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Búast má við miklu annríki á skíða- svæðum landsins næstkomandi sunnudag, þegar alþjóðaskíðadag- urinn verður haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti um allt land. Það eru Skíðasamband Íslands, skíðafélögin og skíðasvæðin sem sameiginlega standa að deginum hér á landi undir yfirskriftinni „Snjór um víða veröld“. Með þessu er hafið hvatningarátak til þess að efla íþróttina hér á landi, en hún hefur verið á undanhaldi síðustu ár. Frítt verður fyrir börn 12 ára og yngri á allflestum skíðasvæðum. Á skíðasvæðin í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Stafdal, Tindastól og Oddsskarði verður frítt fyrir alla þennan dag. „World Snow Day“ er hluti af hvatningarátaki Alþjóðaskíðasam- bandsins, FIS, til aukinnar skíða- iðkunar barna og verður 22. janúar framvegis tileinkaður átakinu. Þórunn Sif Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri Skíðasambands Ís- lands, segir að átakið beinist sér- staklega að skíða- og brettaiðkun, en allir séu hvattir til að nýta sér skíðasvæðin til hollrar útivistar. „Við viljum alltaf sjá fleiri börn og unglinga á skíðum og það skipt- ir miklu um að halda skíðaíþrótt- inni við,“ segir Þórunn og bendir á að þátttaka í þessum degi sé kjörið tækifæri fyrir foreldra til að fara með börnunum í brekkurnar. Hún segir skíðaíþróttina sérstaklega góða og heilbrigða fjölskylduíþrótt og allir geti fundið afþreyingu við hæfi. Í því sambandi bendir hún á að sérstök snjóþotusvæði verði fyr- ir þá sem ekki treysti sér á skíði. Svæðin munu öll vera með sér- staka dagskrá. Alls staðar verður boðið upp á ókeypis tilsögn fyrir byrjendur, kakó verður í boði og lukkuleikur fyrir börnin á öllum svæðum með fjölbreyttum vinning- um, m.a. árskorti á skíði. Þórunn segir að undirbúningur dagsins hafi gengið mjög vel og viðbrögðin víðast hvar verið mjög góð. „Fækkun í skíðaiðkun á und- anförnum árum hér á landi er ástæða þess að við tökum þátt í þessu heljarverkefni,“ segir Þór- unn um leið og hún hvetur sem flesta til að mæta í brekkurnar. Frítt á skíðasvæðin fyrir alla  Átak hafið til að efla skíðaiðkun barna  Frítt verður fyrir börn 12 ára og yngri á allflest skíðasvæði  Alþjóðaskíðadagurinn verður haldinn hátíðlegur á skíðasvæðum landsins sunnudaginn 22. janúar nk. Morgunblaðið/Kristján Hlíðarfjall Búast má við annríki á skíðasvæðum landsins á sunnudag þegar alþjóðaskíðadagurinn verður haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti. Sérstök áhersla er lögð á að fjölga börnum og unglingum á meðal skíðaiðkenda. Veturinn hefur verið afar góður til skíðaiðkunar hér á landi. Þórunn Harðardóttir hjá Skíðasambandinu segir aðsókn í skíðasvæðin almennt hafa aukist í vetur og að eft- irspurnin sýni sig t.d. í Bláfjöll- um, en þangað komi margt fólk þá daga sem opið er. Þór- unn segir að nú sé opið á öll- um skíðasvæðum landsins og snjór alls staðar. Skíðafærið sé afar gott um allt land. Það sé í raun einsdæmi miðað við flest undanfarin ár. Sem dæmi nefn- ir hún að í Stafdal á Aust- fjörðum hafi verið opið fleiri daga það sem af er janúar en allt síðasta ár. Veðurspáin fyrir sunnudag ætti að gleðja flesta skíðaunn- endur og þá sem ætla að stíga sín fyrstu skref á skíðum en búast má við frosti hægviðri og úrkomulitlu víðast hvar á landinu. Skíðasvæði landsins opin SKÍÐAFÆRIÐ MJÖG GOTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.