Morgunblaðið - 20.01.2012, Síða 24

Morgunblaðið - 20.01.2012, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012 ✝ Margaret Al-geo fæddist í Winnipeg 31. ágúst 1929. Hún lést í Calgary í Kanada á nýársdag, 1. janúar 2012. Hún var dótt- ir hjónanna Mar- grétar Jónsdóttur Sigurðssonar og Thorsteins Jóns- sonar Þorsteins- sonar. Foreldrar hennar voru bæði íslenskrar ættar, börn landnema sem flutt- ust til Kanada á seinni hluta nítjándu aldar. Þorsteinn faðir Margrétar var yngsti sonur hjónanna Solveigar Bjarnadótt- ur frá Gufuskálum á Snæfells- nesi og Jóns Þorsteinssonar frá Ytri-Hraundal í Mýrasýslu, en vestra tóku þau upp ætt- arnafnið Stone. Elsti sonur þeirra, Þorleifur, varð hins- vegar eftir á Íslandi og á hér af- komendur sem eru í góðu sam- bandi við ættingja sína vestra. Margrét móðir hennar var dótt- ir Jóns Sigurðssonar frá Hálsi í Kinn í Þingeyjarsýslu og Pálínu Þórðardóttur frá Eyrarlandi á Akureyri. Hefur föðurætt Mar- grétar verið rakin allt til landnáms- mannsins Helga magra. Margaret átti sex systkini, fimm þeirra eru látin, en Dorothy Pound, yngsta syst- irin, lifir hana. Margaret giftist rúmlega tvítug Te- rence Algeo (látinn) sem var af skoskum ættum og eignuðust þau fjögur börn, sem eru: Jessie Algeo hjúkrunarfræðingur, bú- sett í Victoria, BC, hún á tvær dætur og dótturdóttur; Peggy heimilisfræðikennari, búsett í Calgary, gift Don Chudzy, þau eiga tvær dætur, Christopher tæknifræðingur og verktaki, býr í Calgary, kvæntur Cheryl Algeo, þau eiga tvö börn; og William sjúkrahústæknifræð- ingur sem býr í Winnipeg, kvæntur Wendy Algeo og eiga þau þrjá syni. Bálför hefur farið fram. Minningarathöfn verður í Calg- ary í dag, 20. janúar 2012. Fækkað hefur um einn í þeim trúlega fámenna hópi Vestur-Ís- lendinga, sem eru íslenskir í báð- ar ættir. Margaret, sem alltaf gekk undir nafninu Peggy, ólst upp í Winnipeg í stórum systk- inahópi. Í húsinu bjó einnig amma hennar, Solveig, sem náði háum aldri en talaði aldrei annað en íslensku. Peggy fór oft í sendi- ferðir fyrir ömmu sína og þurfti því að læra ýmis orð á íslensku en í þá daga var ekki lögð áhersla á að börn innflytjenda lærðu mál gamla landsins. Það þótti vera þeim heldur til trafala við að komast áfram í nýja landinu. En amma var alltaf kölluð amma og það orð hefur haldist í fjölskyld- unni allt til þessa dags. Terence maður Peggyar var mikill áhugamaður um flug og meðal annars smíðaði hann sér einkaflugvél í bílskúrnum sínum en þegar plássið í skúrnum varð of lítið, flutti hann skrokkinn inn í dagstofu fjölskyldunnar og hélt þar áfram smíðinni. Um þetta ævintýri skrifaði Peggy bók sem var prentuð og gefin út í Winni- peg undir nafninu: „An Airoplane in my Livingroom“. Smíðinni lauk og Peggy fékk stofuna sína aftur en þau hjónin flugu vítt og breitt á flugvélinni á næstu árum, meðal annars einu sinni alla leið til Flórída. Á fyrsta áratug þessarar aldar endurnýjuðust kynni fjölskyldn- anna í Kanada og á Íslandi með tíðari ferðum milli heimsálfanna og svo þegar með tilkomu netsins var hægt að hafa allt að því dag- leg samskipti. Peggy kom til Ís- lands í fylgd mestallrar fjöl- skyldu sinnar árið 2003 og urðu þá fagnaðarfundir. Hún hafði þá aftur hafið háskólanám við Mani- toba-háskóla og útskrifaðist það- an tveim árum seinna með BA- gráðu í mannfræði, 73 ára gömul. Það sumar kom hún í aðra Ís- landsferð, þá í fylgd með Chri- stopher syni sínum, sem er mikill útivistarmaður og notaði tímann til hjólreiða um sveitir landsins. Peggy naut þess mjög að vera á „gamla landinu“ ferðast um og skoða slóðir forfeðra sinna, bæði vestanlands og norðan. Hennar verður minnst sem frábærrar konu, hún var hress og kát og hvers manns hugljúfi. Það voru forréttindi að fá að kynnast henni og fjölskyldu hennar. Edda og Jóhann, Hveragerði. Jóhanna og Magnús, Kópavogi. Margaret (Peggy Thorsteinsdóttir) Algeo ✝ SigurðurGunnar Krist- jánsson, sjómaður, verkamaður og síð- ar múrari, fæddist á Akrahóli í Grindavík 8. októ- ber 1929. Hann lést 10. janúar 2012. Foreldrar hans voru Kristján Sig- urðsson, f. 12. des- ember 1908, d. 22. desember 1996, og Margrét Sigurðardóttir, f. 28. febrúar 1909, d. 13. október 1994. Systkini Sigurðar eru Björg S. Kristjánsdóttir, f. 13. október 1931, og Ólafía K. Kristjáns- dóttir, f. 10. desember 1940, d. 25. september 1999. Hinn 8. október 1954 giftist Sigurður Þorgerði Halldórs- dóttur, f. 15. júní 1928, d. 7. nóvember 2006. Foreldrar hennar voru Jóna Magnúsína Þóroddsdóttir, f. 7. janúar 1900, d. 13. desember 1981, og Janus Þorbjarnarson (fósturfaðir), f. 14. ágúst 1903, d. 25. mars 1980. Sigurður og Þorgerður eign- uðust fjögur börn. a) Guð- mundur Marvin, f. 27. maí 1954, sam- býliskona hans er Edda Auðardóttir, f. 27. desember 1960, þau eiga þrjú börn, Evu Rún, Sunnu Úrsúlu og Ingvar Marvin, fyr- ir átti hann þrjú börn, Sigurð Mar- vin, Karen Ósk og Guðmund Stefán. b) Margrét Kr., f. 16. febrúar 1960, maki Róbert Henry Vogt, f. 19. ágúst 1964, saman eiga þau soninn Anthony Evans. c) María Þóra, f. 29. október 1963, maki Gísli G. Gíslason, f. 3. jan- úar 1961, saman eiga þau tvær dætur, Erlu Jónu og Þorgerði. d) Magnús Jenni, f. 3. apríl 1965, hann á soninn Kristófer Jóel. Fósturdóttir Sigurðar er Guðbjörg Sölva Gísladóttir, f. 2. febrúar 1948, maki Sigurður J. Guðjónsson, f. 31. mars 1947, þau eiga þrjár dætur, Gerði, Bjarklindi og Maríu Ólöfu. Útför Sigurðar verður gerð frá Grindavíkurkirkju í dag, 20. janúar 2012, og hefst athöfnin klukkan 14. Minning um hann pabba minn. Nú er hann pabbi kominn til mömmu, ekki voru nú mörg ár á milli þeirra, mamma varð bráð- kvödd 7. nóvember 2006, svo það eru fimm ár, tveir mánuðir og þrír dagar á milli þeirra. Og maður fann og sá að hann hafði misst mikið eftir að hún fór. Og hann var mjög duglegur að koma mörgum sinnum á dag í heimsókn og borða með okkur. Með fyrstu minningum sem maður á um hann er þegar hann vann hjá Fiskimjöli og lýsi hér í bæ, og lyktin fór ekki vel í mann, sérstaklega í matartímum, hann gat nú ekki alveg skilið það. Svo vann hann lengi við múrvinnu og tók sveinsprófið 1976. Hann pússaði Landsbankann, elliheim- ilið og kirkjuna auk fjölmargra húsa. Svo var harmonikkan aldr- ei langt undan sem hann var mjög iðinn við að spila á áður fyrr, það voru alltaf sérstakir harmonikkudagar. Svo var alltaf spilaður manni á fimmtudags- kvöldum og hlustað á útvarps- leikritið, og alla tíð hefur manni þótt vænt um þann tíma. Mikið var farið í útilegur á sumrin, fyrst með lítið tjald, svo hús- tjaldið sem manni þótti algjör paradís með sérsvefnherbergi, svo kom tjaldvagninn ’82 sem var mikið notaður. Þau voru mjög ánægð með húsið sem þau byggðu og við fluttum í 1974, þau voru í því til ársins 2006, en þetta var hús númer tvö sem þau byggðu. Hann greindist með krabbamein 22. september og var það komið víða í hann. Og ekki vildi hann nú þiggja of mikla aðstoð, það var bara fyrir gamla fólkið, en hann sættist á að fá smáheimahjúkrun. Hann var lagður inn á Sjúkrahús Keflavíkur 28. desember og var þar til 5. janúar, þá var hann bú- inn að fá nóg þar, það var ekkert að honum. Svo var hans síðasta ferð þangað aðfaranótt 10. jan- úar, og var hann látinn kl. 8.30 um morguninn. Hann var einn af þeim sem aldrei kvarta. Svo ekki átti hann í þessum veikindum lengi, og þó að það sé mjög erfitt að sætta sig við að hann sé far- inn er maður sáttur að hann kvaldist ekki mikið. Man hvað hann var ánægður þegar við héldum upp á áttræðisafmælið hans með pomp og prakt, og fengum tvo harmonikkuleikara til að spila. Eins var hann ánægður þegar ég hélt upp á mitt afmæli, vorum að rifja upp sögur úr því, og mikið var hlegið. Honum leiddist ekki í góðum félagsskap, þó að hann sækti ekki mikið í hann sjálfur seinni árin. Hann var alla tíð mjög ljúf- ur og greiðvikinn, og við systk- inin vissum alveg við hvern við áttum að tala til að vera lengur úti eða fá bílinn lánaðan, og fljót- ur var hann að aðstoða mann við að pússa eða annað sem til féll. Og það var mjög ljúft og gott að fá að hafa hann yfir jólin. Hann fór á alla heimaleiki sem hann komst á í körfubolta og fótbolta, kom svo við og lét vita hvernig fór. Sendum þakklæti til starfs- fólks Víðihlíðar Sjúkrahúss Keflavíkur fyrir alla aðstoðina og Ingu fyrir heimaþrifin. Hvíl í friði elsku pabbi. Margrét Sigurðar. Sigurður Gunnar Kristjánsson ✝ Jakobína Sig-urvinsdóttir fæddist á Völlum í Eyjafjarðarsveit 16. nóvember 1932. Hún lést á heimili sínu Barmahlíð 6 á Ak- ureyri 9. janúar 2012. Foreldrar hennar voru Guð- laug Þóra Frið- riksdóttir, f. 8. apríl 1899, d. 26. júlí 1990, og Sigurvin Jóhannesson, f. 11. júlí 1891, d. 10. sept. 1980. Systkini Jakobínu eru níu en fimm þeirra létust á unga aldri. Friðrik, Páll, Sigurlína Guðrún og María Freygerður dóu úr berklum. Kristín var talin hafa dáið úr heilahimnu- bólgu. Valgerður, f. 6. ágúst 1918, d. 24. maí 1996 og Mar- grét Lilja, f. 7. júní 1930, d. 20. maí 1997 komust á efri ár. Eftirlifandi systur Jakobínu eru Freyja Pálína, f. 16. feb. 1943 og Kristín Friðrika, f. 12. jan. 1938. Jakobína giftist Gesti J. Kristinssyni, f. 17. apríl 1910, d. 21. maí 1956, hinn 11. júlí 1952 og bjuggu þau lengst af í Ytra-Dalsgerði, Eyjafjarð- arsveit. Saman eignuðust þau fimm börn, þau eru 1) Friðrik, 1977, sambýliskona er Jóna K. Sigurjónsóttir; Soffía Björk, f. 10. mars 1984, unnusti Stefán Þ. Hauksson og eiga þau einn strák; Arnar Logi, f. 21. maí 1988, sambýliskona hans er Elfa D. Ólafsdóttir og á hann eina dóttur. 4) Rósa Sigurlaug, f. 24. mars 1953, eiginmaður Sigurgeir Steindórsson, f. 25. nóv. 1954. Börn þeirra eru: Hrafnhildur Sólrún, f. 25. feb. 1973, eiginmaður Tómas P. Sævarsson, þau eiga tvær dæt- ur; Steindór Björn, f. 28. apríl 1979, sambýliskona Halldóra Brynjólfsdóttir; Valur Guð- björn, f. 19. júní 1986, eig- inkona Laufey Jónsdóttir, þau eiga eina dóttur. 5) Kristín Hlín, f. 25. nóv. 1955, sam- býlismaður Sigurður H. Jó- hannsson, f. 20. maí 1959. Börn Kristínar eru: Heiðar Gestur, f. 28. ágúst 1975; Ár- mann Hólm, f. 23. sept. 1981, hann á þrjár dætur; Telma Sif, f. 25. ágúst 1993. Árið 1957 hófu Arnbjörn Karlesson, f. 14. júní 1930, d. 25. sept 2009, og Jakobína sambúð. Árið 1973 fluttu þau í Barmahlíð 6 á Akureyri. Dótt- ir Jakobínu og einkadóttir Arnbjörns er Birna Ingibjörg, f. 13. ágúst 1959. Börn Birnu eru Arnbjörn Böðvarsson, f. 26. okt. 1979 og Svandís Böðv- arsdóttir, f. 5. júní 1985, sam- býlismaður Símon Þ. Sím- onarson, þau eiga tvö börn. Útför Jakobínu fer fram frá Glerárkirkju í dag, 20. janúar 2012, kl. 13.30. f. 14. jan. 1950, eiginkona Susana T. Araojo, f. 31. maí 1962. Börn Friðriks eru: Gest- ur, f. 2. maí 1971, og á hann eitt barn; Magnea, f. 30. júní 1972, sam- býlismaður Brynj- ólfur Brynjólfsson, þau eiga fimm börn; Margrét Lilja, f. 15. feb. 1982, sam- býlismaður Sigvaldi B. Magn- ússon; og fósturdóttirin Sara, f. 23. nóv. 1993. 2) Ingólfur Marinó, f. 4. maí 1951, eig- inkona Marites T. Talle, f. 21. júlí 1970. Börn Ingólfs eru: Gestur, f. 10. maí 1978; Inga Þórey, f. 10. júlí 1980, sam- býlismaður Jón S. Sigtryggs- son, þau eiga eitt barn, fyrir átti Inga tvö börn. Fóst- urdóttir Ingólfs er Jóna S. Svavarsdóttir, f. 23. okt. 1975, sambýlismaður Sigþór Ragn- arsson, hún á fimm börn og eitt barnabarn. 3) Björn Gunn- ar, f. 30. mars 1952, eiginkona Filippía Ingólfsdóttir, 6. jan. 1956. Börn þeirra eru: Ing- ólfur Árni, f. 8. ágúst 1976, kvæntur Bryndísi L. Bryn- geirsdóttur, þau eiga þrjú börn; Þorbjörn, f. 30. ágúst Elsku mamma og vinkona. Þegar ég hugsa til baka þá er það svo ótalmargt sem ég þarf að þakka þér fyrir. Allar samveru- stundirnar okkar og hversu mikil mamma og amma þú varst. Þú varst alltaf tilbúin að passa börn- in mín og ég þurfti aldrei að missa úr vinnu því þú varst alltaf heima og tilbúin að grípa inn í. Öll ferðalögin sem við fórum með ykkur Adda eru ómetanleg. Við ferðuðumst saman um landið þvert og endilangt. Addi og Sig- urgeir höfðu þó miklu meiri áhuga á öræfunum en ég og þú. Við nýttum þá tímann og fórum í búðir og skoðuðum kaupfélögin sem voru í nágrenninu. Sérstak- lega eftirminnileg er hestaferðin sem við fórum bara í tvær í Húsafelli þegar Addi og Sigur- geir fóru upp á jökul. Við fundum okkur alltaf eitthvað spennandi og áhugavert að gera þegar þeir félagar fóru á vit ævintýranna. Vorin voru líklega þinn uppá- haldstími. Þú yngdist um ein 20 ár þegar sauðburður hófst og það var eins og þú þyrftir ekkert að sofa. Þú tókst yfirleitt seinnipart nætur og morgunvaktina. Við Birna systir tókum yfirleitt fyrri- part nætur og kvöldvaktina. Á þessum tíma var ég að passa Rósu og seinna Róslín og tókum við þær auðvitað með okkur. Þar fengu þær að kynnast hestum, kindum og sauðburði. Kindurnar þurftu mismikla hjálp og yfirleitt höfðum við nesti með okkur, s.s. kringlur, kaffi og kleinur, og borðuðum það sitjandi á hey- böggum. Á þessum tíma fannst okkur við hafa setið nýlega í ná- kvæmlega sömu sporum með börnunum mínum, Hröbbu, Steindóri og Val, en þarna sátum við með barnabörnunum okkar. Dýr voru þér alltaf mjög hug- leikin. Þú þurftir yfirleitt ekki nema að líta á hestana til að vita af hvaða kyni þeir voru. Eitt svona dæmi höfum við þegar Hrabba útskrifaðist úr Háskól- anum 2003. Útskriftarveislan var haldin í sveitinni og Jón Björns- son og Sigrún Jakobsdóttir komu ríðandi þangað. Þú leist út úr fellihýsinu þínu og sagðir strax að hesturinn hans Jóns væri und- an Hrafni frá Holtsmúla. Jón sagði það rétt og bauð þér á bak. Leist þér miklu betur á hestinn hennar Sigrúnar og þrátt fyrir að vera á þessum tíma orðin 70 ára vippaðir þú þér í hnakkinn eins og ung stúlka. Það var virkilega gaman að sjá þig á baki og hversu hestlagin þú varst alltaf. Þú hafðir greinilega engu gleymt. Oft á ég eftir að sakna þín og leiðsagnar þinnar. Með kærri þökk fyrir allt. Þín dóttir, Rósa Sigurlaug Gestsdóttir. Elsku amma. Mikið af minningum kemur upp í hugann nú þegar þú hefur kvatt okkur. Að mörgu leyti hef ég verið einstaklega heppin að eiga þig fyrir ömmu. Þú tókst að þér að passa mig þegar nokkrir aðrir voru búnir að gefast upp á að reyna það. Þú vissir að ef ég hefði nóg fyrir stafni væri þetta ekkert mál. Ef svo var ekki fór ég hins vegar að gera mis vel séðar tilraunir. Þú og afi fóruð í það minnsta að kalla mig Emil af einhverri ástæðu. Ég var aðeins 8 ára þegar við fluttum í þarnæsta hús. Þú varst alltaf heima þegar ég kom heim úr skólanum og ég gat alltaf leit- að til þín. Ef það var kalt gafstu mér eitthvað heitt að drekka og alltaf gast þú hlýjað kaldar tásur. Við höfum eytt ótrúlega miklum tíma í að rökræða (mishátt) um öll heimsins mál og spila á spil. Þessi tími er ómetanlegur fyrir mig og ég vildi óska að öll börn hefðu einhvern fullorðinn til að koma heim til eftir skóla. Þú kenndir mér allskonar hluti sem virðast mismikilvægir og misskemmtilegir. Ég get ekki sagt að ég hafi haft gaman af því að læra að búa til rúllupylsur eða hreinsa punga. Hins vegar met ég mikils allt það sem þú kenndir mér í sambandi við dýr hvort sem það voru kýr, hestar, kindur eða hundar. Skemmtilegust var hestamennskan. Oft varstu harð- ur kennari enda mátti enginn frá Ytra-Dalsgerði, hvorki knapi né hestur, ekki standa sig afburða- vel. Viljalítill knapi eða hestur átti að eyða tíma sínum í eitthvað annað. Náttfarakynið var og er talið með mjög gott geðslag en „Gerðakynið“ á til fádæma þver- móðsku og þráa en kannski á góðum degi kallast þetta stað- festa. Þú varst aldrei ánægð þeg- ar ég heimfærði kennslu þína í kynbótum upp á okkur í fjöl- skyldunni og naut ég þess mikið að ergja þig á þessu. Við ferðuðumst líka mikið saman og ég lærði mikið af þér og afa. Afi þekkti allar Íslend- ingasögurnar og tók mig alltaf í sögukennslu þegar við ferðuð- umst. Af þér lærði ég líklega mest í stjórnun. Þú stjórnaðir alltaf öllu og varst dugleg að skipa fyrir. Ég held að það sé ekki tilviljun að ég er með gráðu í stjórnun í dag og elski starfið mitt bæði við stjórnunina og við að leiðbeina og kenna stórum nemendahópum. Guð blessi þig og varðveiti, elsku amma Hrafnhildur Sólrún Sigurgeirsdóttir. Elsku amma. Þú varst konan sem ég kom alltaf að spilandi eða að leggja kapal. Þú varst sú sem alltaf reyndir að fá mig til að borða helling af ekkert svo góð- um, eiginlega „ógeðslegum“ súr- mat. Þegar ég hugsa til baka tengi ég þig við salt hrossakjöt því þú gerðir besta saltaða hrossakjötið sem fyrirfinnst. Annan fótinn á þér kallaðir þú sjálf „vitlausa“ fótinn. Ég veit ekki af hverju þú kallaðir hann það en mér tókst alltaf að stíga á hann eða traðka á honum. Ég get ekki með nokkru móti talið öll ó- in og æ-in sem mér tókst að fá þig til að framkalla með brussu- skapnum í mér. Þér þóttu fjólublá blóm ein- staklega falleg og það þótti mér eiginlega líka. Einu sinni keyptir Jakobína Sigurvinsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma Lý. Síðast þegar við hitt- umst áttum við alveg frá- bæra stund saman. Það var á aðfangadagskvöld og við vorum að færa þér jólamat- inn. Þú varst ein heima og við áttum athygli þína óskipta. Ég sýndi þér kjól- inn sem ég hannaði og teiknaði sjálf. Amma Róslín hjálpaði mér svo að sauma hann. Þú varst svo glöð og ánægð með hann og hrós- aðir mér mikið. Því miður gátum við ekki spilað í þetta skipti en ég hlakka til að svindla á þér í spilum næst þegar við hittumst. Róslín Erla Tómasdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.