Morgunblaðið - 20.01.2012, Qupperneq 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JANÚAR 2012
✝ Valdimar Við-ar Tómasson
fæddist í Reykjavík
18. júní 1970. Hann
lést á krabbameins-
deild Landspítalans
við Hringbraut 7.
janúar 2012.
Foreldrar hans
eru Tómas Svein-
björnsson, f. 18. júlí
1948, og Ragnheið-
ur Kristín Péturs-
dóttir, f. 6. febrúar 1952, d. 9.
mars 2007. Bróðir Viðars er Sig-
urður Sveinbjörn Tómasson, f.
1. júlí 1982, í sambúð með Evu
Maríu Grétarsdóttur.
Viðar kvæntist 11. nóvember
2006 Önnu Karen Kristjáns-
dóttur, f. 6. mars 1975. For-
eldrar hennar eru Kristján Hall-
dórsson, f. 17. mars 1950, og
Olga Guðnadóttir, f. 27. júní
1948. Viðar og Anna Karen
eignuðust saman börnin: 1)
Tómas Hróa, f. 14. febrúar 1999,
2) Ösp, f. 27. júlí 2000, d. 3. des-
ember 2002, 3) Kristján Ara, f.
14. apríl 2009. Fyrir átti Viðar
soninn Steinar, f. 3. mars 1994.
Móðir hans er
Svava Ingimars-
dóttir.
Viðar ólst upp í
Reykjavík að mestu
en varði flestum
sumrum í æsku á
Siglufirði hjá föð-
urforeldrum sínum.
Hann hóf búskap á
Akureyri með eig-
inkonu sinni árið
1998, sótti þar m.a.
sjóinn og fluttu þau til Reykja-
víkur árið 2000 og hafa búið þar
síðan. Hann stundaði lengst af
verslunarstörf hjá ýmsum fyr-
irtækjum og núna síðustu árin í
eigin rekstri, m.a. með fram-
leiðslu á fatnaði í Kína. Hann
var formaður Tennisfélags
Kópavogs um tíma. Viðar var
mikill áhugamaður um flugu-
stangveiði alla tíð og einnig tók
hann ástfóstri við skotveiði síð-
asta áratuginn. Hann hafði mik-
ið yndi af tónlist og spilaði lista-
vel á gítar.
Viðar verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag, 20. janúar
2012, og hefst athöfnin kl. 13.
Það er mikið tómarúm í fjöl-
skyldunni okkar þegar fallin er
frá þungamiðjan, yndislegur eig-
inmaður og pabbi hinn mesti.
Viðar var hávaxinn, hárprúður
og glæsilegur maður og vakti at-
hygli alls staðar þar sem hann fór.
Hann talaði hátt og glaðlega og
sýndi öllum nálægum áhuga. Hon-
um fannst allir hafa eitthvað ein-
stakt við sig og oft hætti hann ekki
fyrr en hann fann hvað það var.
Hann var víðsýnn og vel lesinn,
hafði skoðanir á hlutum en bar
mikla virðingu fyrir skoðunum
annarra.
Hann var hæfileikaríkur og
einstaklega vel gefinn. Ástríður
hans voru óteljandi. Má þar nefna
fluguveiði helst en Viðar stundaði
veiðar í öllum helstu laxveiðiám
landsins frá blautu barnsbeini.
Undanfarin ár hafði hann einnig
verið að dunda sér við fluguhnýt-
ingar.
Viðar lærði á gítar sem barn og
spilaði í hljómsveitum sem ung-
lingur. Gítarinn lagði hann aldrei
langt frá sér og fengum við litla
fjölskyldan oft að njóta lifandi tón-
listar Bobs Dylans í stofunni
heima. Hann hafði mikinn áhuga á
matargerð og var iðulega yfir-
kokkur í matarveislum stórfjöl-
skyldunnar. Villibráðin var hans
sérsvið.
Fjölskyldur okkar tengjast af-
ar sterkum böndum sem hann sá
um að hnýta rækilega í gegnum
árin og má segja að hann hafi ver-
ið kjölfestan í lífi stórfjölskyld-
unnar alla tíð.
Hann vann að sínum skyldu-
störfum með alúð og ánægju og sá
alltaf til þess að við heimilisfólkið
værum sátt og heimilið skorti
ekkert.
Hann reyndist samstarfsfólki
og starfsmönnum vel en tók oft
erfiðar ákvarðanir varðandi rekst-
ur og starfsmannahald en náði
samt að halda vinsemd og virð-
ingu við alla.
Hann gat nánast gengið að
hvaða starfi sem var, heillandi alla
upp úr skónum. Best leið honum
þó í eigin rekstri sem átti hug
hans síðustu árin áður en hann
veiktist og sá hann mikið eftir
þeim rekstri og ætlaði sér alltaf að
taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið.
Viðar var ein af þessum sterku
manneskjum sem þola allt mót-
læti og þakka fyrir lexíur lífsins.
Sama hve erfiðar þær reynast.
Hann hafði ótrúlegan lífskraft
og barðist við sjúkdóminn af óút-
skýranlegum krafti, kvartaði ekki
og hlífði sér aldrei. Hann var dáð-
ur fyrir hugrekki, áræði og líkam-
lega og andlega yfirburði og fékk
mann til að trúa því að hann ætlaði
sér að sigrast á sjúkdómnum enda
maður sem gafst aldrei upp.
Drengirnir okkar eru stoltir af
þessum glæsilega föður sínum.
Það dró fyrir sólu, sorgin yfirtók.
Svífandi sálin með englanna bók.
Fljótt birti til aftur, mig heltók náð-
arkraftur.
Línan er stutt og bilið er lítið.
Ég er hér þú ert þar.
Ástin er geymd en aldrei gleymd.
Daga og nætur mun ég fylgja þér
og hvert sem ég fer þú verður með
mér.
Í huga og hjarta ei vil ég sjá þig þjást,
því samvistir okkar tveggja er minning
um ást.
(Ingunn Erla Ævarsdóttir)
Að leiðarlokum þakka ég and-
lega nærandi samveru við Viðar í
gegnum árin og farsælt hjóna-
band. Minnist um leið allra stund-
anna sem við áttum sem vinir, í
rómantík og sem foreldrar.
Ég vil koma á framfæri þakk-
læti til Sigurðar Björnssonar
krabbmeinslæknis, Hjördísar
hjúkrunarfræðings sem og öllu
því frábæra starfsfólki sem starf-
ar á krabbameinsdeildum 11b og e
við Hringbraut. Þið áttuð öll sér-
stakan sess í hjörtum okkar Við-
ars.
Hvíl í friði ástin mín.
Anna Karen Kristjánsdóttir.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Með þessum fallegu orðum vilj-
um við kveðja okkar yndislega
mág og svila, Valdimar Viðar
Tómasson, eða Vidda eins og hann
var kallaður. Stórt skarð hefur
verið höggvið í fjölskylduna okkar
og sitjum við hér eftir með sorg í
hjarta og mikla eftirsjá að frábær-
um manni.
Vidda leið best við árbakkann
með stöngina í hendinni. Hann
elskaði að veiða. Það var hans líf
og yndi að fara í sumarbústaðinn
okkar austur í Aðaldal, þar vildi
hann helst vera heilu og hálfu
sumrin að veiða með Tómasi Hróa
syni sínum, föður sínum og
tengdaföður.
Viddi var mikill kokkur og hafði
öll fjölskyldan mikla matarást á
honum. Hann naut þess að elda
fyrir aðra og vildi helst hafa fullt
hús af fólki. Hann var sterkur per-
sónuleiki sem átti mjög auðvelt
með að hrífa fólk með sér og með
honum bjó mikill kærleikur. Sýndi
það sig helst í því hvað hann bar
mikla umhyggju fyrir öðrum.
Viddi og Anna Karen áttu fal-
legt líf saman sem var uppfullt af
ævintýrum. Samheldni og sam-
hugur einkenndi þeirra samband.
Það sýndi sig þegar þau eignuðust
dóttur sína Ösp, sem var langveik
og lést aðeins tæplega þriggja ára
gömul, og aftur í veikindum Vidda
sem þau hjónin mættu af miklu
æðruleysi og baráttuhug. Anna
Karen var kletturinn hans og
hugsaði um hann af mikilli alúð,
ást og umhyggju en hann var líka
kletturinn hennar. Þrátt fyrir
veikindin þá var það honum efst í
huga að litlu fjölskyldunni liði sem
best. Viddi var einstaklega natinn
og góður pabbi og er þetta því
mikill missir fyrir syni hans þrjá,
Steinar, Tómas Hróa og Kristján
Ara.
Viddi lagði mikla áherslu á að
við kæmum öll og yrðum saman
hjá þeim í Fjallalindinni um jólin.
Þar áttum við yndislega daga með
litlu fjölskyldunni. Viddi stjórnaði
okkur í eldhúsinu úr stólnum sín-
um, eins og herforingi, og sá til
þess að allt væri eins og það átti að
vera. Á milli jóla og nýárs fórum
við öll saman til Akureyrar og
fögnuðum áramótunum. Þessi
tími er okkur óendanlega dýr-
mætur.
Elsku Viddi, tíminn okkar með
þér hér á jörð var allt of stuttur en
við huggum okkur við að Ösp hef-
ur tekið vel á móti pabba sínum og
við munum hitta ykkur feðginin
aftur en þangað til biðjum við góð-
an Guð að hugsa vel um ykkur.
Knúsaðu Ösp frá okkur. Minning-
in um þig mun lifa í hjörtum okkar
alla eilífð.
Elsku Anna Karen, Steinar,
Tómas Hrói, og Kristján Ari.
Missir ykkar er mikill og við mun-
um af öllu okkar hjarta og getu
hugga ykkur, binda um sárin,
svala sálu ykkar og þerra tárin,
elskurnar okkar.
Ykkar
Halldór, Hólmfríður,
Rakel og Baldvin.
Viðar Tómasson lést eftir erfið
veikindi hinn 7. janúar sl., 41 árs
gamall. Hann hafði háð harða bar-
áttu um tæplega tveggja ára
skeið, baráttu sem var háð í
stórsjó fram á síðasta dag án þess
að Viðar léti nokkurn tímann bil-
bug á sér finna. Viðar ætlaði sér
að sigrast á meinum sínum, og
með því hugarfari tók hann virkan
þátt í lífinu allt þar til yfir lauk.
Lokin komu bæði snöggt og
óvænt, og áfallið er mikið. Sá Við-
ar sem ég kynntist fyrir um 15 ár-
um er ekki sami maður og ég kveð
í dag. Hann var hávaxinn og
glæsilegur maður, vel til hafður
og svo rétt orð séu notuð, mikill
töffari. Skömmu eftir að ég hitti
hann fyrst tók hann upp samband
við Önnu Karen frænku mína, og
myndaðist þá með okkur ágætur
vinskapur. Tveimur árum síðar
fæddist þeim sonur, Tómas Hrói,
en fyrir átti Viðar soninn Steinar.
Og ári síðar fæddist Ösp. Frá því
seint á meðgöngunni hafði legið
fyrir að Ösp hefði dregið erfið spil
í þessu lífi. Það duga engin orð til
að lýsa því sem Viðar og Anna
Karen gengu í gegnum næstu tvö
árin. Litla fallega Ösp lést rúm-
lega tveggja ára gömul, hinn 3.
desember árið 2002. Árið 2009
fæddist svo lítill strákur, Kristján
Ari. Hvort sem erfið lífsreynsla
eða eðlilegur lífsþroski var að
verki má segja að Viðar hafi
breyst töluvert og vaxið sem mað-
ur. En sumt breyttist aldrei, sem
betur fer. Hann var aldrei neinn
hófsemdarmaður. En gagnstætt
hófsemdinni þarf ekki að standa
óhóf. Viðar var ástríðumaður.
Ástríðan gat brotist út í vinnusemi
og drifkrafti, persónueinkennum
sem viðskiptafélagar og sam-
starfsmenn nutu góðs af. Hún gat
brotist út í dillum eins og áhuga á
indversku kryddi, balsamik-ediki,
kofareyktu hangikjöti og alls kyns
öðrum lystisemdum. Og ekki voru
það fáir sem nutu góðs af því. Og
að sjálfsögðu braust ástríðan út í
áhugamálunum; tennis, veiði og
tónlist. Og raunar bara gagnvart
hverju sem vakti með honum
áhuga. Hin síðari ár fann ég
glöggt hversu athugull hann var.
Hann var vel að sér um æði margt
sem átti sér stað í stórfjölskyld-
unni, og hafði gagnvart því bæði
sinnu og skoðun. Og hann stóð
með manni, alltaf.
Þó að Viðar hafi dregið erfið
spil í lífinu, og sum þeirra hin erf-
iðustu sem við getum hvert og eitt
hugsað okkur, þá dró hann líka
góð spil. Hann átti nána fjöl-
skyldu, og drengirnir hans eru
honum allir góður vitnisburður.
Ástríðumaðurinn Viðar elskaði og
dáði hana Önnu Karen sína. Einn
daginn milli jóla og nýars sátu þau
hjá okkur að spjalli, og spurði þá
Viðar hvort við hefðum tekið eftir
því hvað konan hans væri falleg,
hann hefði bara ekki verið búinn
að taka eftir því fyrr þann daginn.
Anna Karen fussaði, sagðist bara
hafa verið að blása hárið á sér, en
gat ekki leynt brosinu. Og Viðar
hélt áfram að horfa fullkomlega
einlægur og fullur aðdáunar, svo
dauðveikur. En svo lifandi, allt til
loka.
Ég og eiginmaður minn, Magn-
ús Rúnar Magnússon, viljum
senda samúðarkveðjur til Önnu
Karenar, sona Viðars, sem og til
allra annarra aðstandenda og ást-
vina.
Hjördís Halldórsdóttir.
Kæri vinur. Það er mjög erfitt
að kveðja þig svona snemma því
maður gerir ráð fyrir að hafa vini
sína alltaf hjá sér. Við höfum alltaf
þekkst, kynntumst átta ára í
Langholtsskóla og höfum fylgst
að síðan þá. Ævi okkar er rétt
tæplega hálfnuð og ég reiknaði
með því að við myndum halda
áfram að hittast fram á elliárin.
Sem betur fer á ég margar og góð-
ar minningar um þig og þann tíma
sem ég hef átt með þér og mun
rifja þær reglulega upp. Þú varst
svo óeigingjarn og gjafmildur og
kenndir mér að meta góðan mat
og að hafa augun opin fyrir fal-
legum hlutum.
Þú varst alltaf sjálfstæður og
sterkur og ég vonaði að þú myndir
ná að sigrast á þessu eins og öllu
öðru sem þú hefur gert. Þú varst
samt áhyggjufullur rétt fyrir jól
og vildir að við heyrðumst á hverj-
um degi rétt eins og þú vissir eitt-
hvað meira þótt þú létir ekki á
neinu bera. Hringdir svo í mig
eldsnemma tveimur dögum fyrir
jól og vildir að pabbi þinn saumaði
á okkur eins jakka. Ég mun alltaf
varðveita jakkann og bera hann
við hátíðleg tækifæri.
Það er óþægileg og sorgleg til-
hugsun að hafa þig ekki lengur og
ég kveð þig með miklum söknuði.
Við Birna biðjum algóðan Guð að
hlúa að fjölskyldu þinni, sem þér
þótti svo undurvænt um, og ást-
vinum þínum öllum á þessum erf-
iðu tímum.
Þinn einlægur vinur,
Valur Gunnarsson.
Einn af okkar bestu kaup-
mönnum af yngri kynslóðinni er
fallinn frá. Viðar var verslunar-
maður fram í fingurgóma. Hæfi-
leikar hans lágu í vöruþekkingu,
næmu auga fyrir framstillingu á
vörum, þjónustulund við við-
skiptavini og einstökum dugnaði.
Einnig var Viðar mjög fróður um
marga hluti.
Sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni. Faðir Viðars er Tómas
Sveinbjörnsson, einn af okkar
fremstu klæðskerum sem hefur
stjórnað mörgum af stærstu fata-
framleiðslufyrirtækjum landsins í
gegnum tíðina. Föðuramma Við-
ars er Anna Hertervig sem rak
verslunina Túngötu 1 á Siglufirði í
áratugi með slíkum myndarbrag
að landsþekkt var. Kvenskörung-
ur hinn mesti sem lifir sonarson
sinn. Við hjónin höfum verslað við
þessa þrjá ættliði í gegnum tíðina
og bar þar aldrei skugga á.
Kynni okkar Viðars hófust þeg-
ar hann byrjaði að starfa hjá
Rúmfatalagernum sem aðstoðar-
verslunarstjóri og síðar verslun-
arstjóri. Viðar var miklum hæfi-
leikum gæddur. Hann var
ósérhlífinn, heiðarlegur og hinn
mesti dugnaðarforkur. Hann
hafði mikinn áhuga á starfi sínu og
vildi alltaf gera betur í dag en í
gær. Hann kynnti sér keppinaut-
ana vel og sá hvar mátti sækja
fram. Hann, ásamt öðru góðu fólki
í Rúmfatalagernum, byggði upp
söluhæstu búðina á öllum Norð-
urlöndum hjá þessari verslunar-
keðju.
Við ferðuðumst oft með Viðari
og Önnu Karen til Kína, þar sem
við sóttum vörusýningar. Það var
gaman að fylgjast með Viðari
koma inn á risastóra vörusýningu
þar sem þúsundir fyrirtækja
sýndu framleiðslu sína. Fyrir hon-
um var þetta eins og að koma að
fallegri og gjöfugri laxveiðiá á Ís-
landi. Hann var fljótur að sjá út
bestu fyrirtækin með góðar vörur
fyrir íslenska neytendur. Alveg
eins og hann fann út bestu hylina í
laxveiðiám og setti í væna laxa.
Viðar var alla tíð mjög mikill lax-
veiðimaður og undi sér hvergi bet-
ur en úti í náttúrunni með veiði-
stöng í hendi. Einnig hafði hann
mjög gaman af að fara til rjúpna
og á gæs. Í þessum Kínaferðum
kynntumst við hversu góður og
ljúfur drengur Viðar var, hvernig
hann vildi þóknast öðrum og láta
gott af sér leiða. Það sama á við
um Önnu Karen. Þau voru sam-
heldin og báru virðingu hvort fyr-
ir öðru. Það var ánægjulegt að
taka þátt í brúðkaupi þeirra á
Búðum á Snæfellsnesi.
Við ferðuðumst ekki aðeins
með þeim hjónum í Kína heldur
einnig á Íslandi. Allt eru þetta
ógleymanlegar ferðir. Öðrum eins
eðalkokkum höfum við vart
kynnst. Þau kunnu að bera fram
bæði mat og drykk. Nærvera
þeirra hjóna var alltaf ljúf,
skemmtileg og þægileg. Fyrir það
þökkum við.
Fljótt skipast veður í lofti. Í
baráttunni við illvígan sjúkdóm
sýndi Viðar hvaða eiginleikum
hann var gæddur. Lífsviljinn var
sterkur til síðasta dags. Hans
sterka stoð í lífinu var Anna Kar-
en ásamt föður sínum og allri fjöl-
skyldunni. Virðing okkar fyrir
þeim og Viðari í þessum veikind-
um er djúpstæð.
Við vottum Önnu Karen,
drengjunum, Tómasi, Önnu Her-
tervig ásamt fjölskyldunni allri
okkar dýpstu samúð.
Guð blessi góðan dreng.
Anna María og
Ágúst Ármann.
Dimmir í hjarta
og dimmir í sál,
dapur ég stari út í bláinn.
Hvers virði er hróður,
kostir og prjál
er hvetur maðurinn ljáinn?
Núna sefur þú hinn síðasta blund,
sorgir nístir hverja flakandi und.
Sit ég hnípinn og hljóður
er komum saman
á kyrrlátri stund
að kveðja ástvin og bróður.
Ég hef kallað,
kveinað og spurt:
Hvað á svona að þýða,
í blóma lífsins
er rifinn í burt?
Ég berst við sorg og kvíða.
Mig langar ekki að ganga leiðinu að,
mér líður illa á þeim volaða stað,
segir stúlka og stamar.
Ég hugsa alltaf
og ákaft um það
að sjáumst aldrei framar.
Bæla þau grátinn
í bekkjunum nær,
blessaður klerkurinn stynur.
Þar sitja börnin
sem þér voru kær,
þarna er ástin þín vinur
Nú slær kantorinn hinn síðasta hljóm,
svarar líkaböng með niðdimmum róm,
svo ýfast hjartasárin.
Er gengur röðin,
til grafar með blóm
getur ei hamið tárin.
Í dauðans angist
ég ákalla þig.
Er allt dæmt til að hverfa?
Hvað um börnin,
hvað verður um mig
hver mun landið erfa?
Þá heyrði ég raddir sem að himnum í
frá
hvísla að mér, víst hann lifir, og sjá:
brostu nú, kæri bróðir.
Þar eru vinir hans
englunum hjá
og hans elskaða móðir.
(Hannes Blandon)
Hvíl í friði kæri vinur.
Pétur Þórir Pétursson.
Valdimar Viðar
Tómasson
Elsku amma Veiga. Áður en
ég kveð þig langar mig að segja
nokkur orð við þig.
Síðustu ár hafa verið kapp-
hlaup hvert fyrir sig. Ef ég
hefði þurft að velja á milli þín
og vina minna hefði ég alltaf
valið þig, þú varst minn fyrsti
valkostur. Alltaf hef ég elskað
þig og þótti mjög vænt um þig.
Þegar þú varst uppi á sjúkra-
húsi og tókst um höfuðið á mér
Sigurveig María
Sigvaldadóttir
✝ SigurveigMaría Sig-
valdadóttir fæddist
á Svalbarðsseli í
Þistilfirði 17. apríl
1942. Hún lést 8.
janúar síðastliðinn.
Útför Sig-
urveigar Maríu fór
fram frá Akureyr-
arkirkju 16. janúar
2012.
og lagðir það á
maga þinn þá fann
ég hlýju, umhyggju
og ást sem þú veitt-
ir mér alltaf. Þú
varst alltaf sterk
og bjartsýn á að
þér myndi batna.
Fyrsti dagurinn
þinn á Hlíð er mér
eftirminnilegur en
þá lágum við sam-
an í rúminu þínu og
kúrðum saman og þú varst vel
vakandi. Þegar þú greindist aft-
ur síðastliðið sumar var það
mér mikið áfall. Ég vildi alltaf
vita um líðan þína á hverjum
einasta degi og þú varst efst í
huga mér og mun ég alltaf elska
þig.
Þetta er hinsta kveðja frá
mér til þín. Hvíl í friði.
Þinn
Jörundur sonarsonur.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR