Morgunblaðið - 26.01.2012, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 6. J A N Ú A R 2 0 1 2
Stofnað 1913 21. tölublað 100. árgangur
FJÖLTEFLI
OFAN Í
LAUGINNI
HAFA JÁKVÆTT
VIÐHORF TIL
LÝTALÆKNINGA
GUÐRÚN EVA
OG PÁLL URÐU
FYRIR VALINU
FINNUR.IS OG
VIÐSKIPTABLAÐ BÓKMENNTAVERÐLAUN 34SKÁKDAGURINN 10
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Þrír skipverjar togarans Hallgríms SI-77 eru taldir
af eftir að skipið sökk um 150 sjómílur NV af Ála-
sundi í Noregi í gær. Leit að mönnunum var hætt
klukkan níu í gærkvöldi að íslenskum tíma en af-
takaveður var á svæðinu, ölduhæð um 15 metrar og
allt að 70 hnúta vindur. Fjórða skipverjanum, 34
ára gömlum Íslendingi, var bjargað úr sjónum með
þyrlu frá norska lofthernum.
Að sögn Jans Lillebø, björgunarstjóra hjá björg-
unarmiðstöð Suður-Noregs, voru mennirnir sem
fórust Íslendingar í kringum sextugt.
Skipið lagði af stað frá Siglufirði síðdegis á laug-
ardag en það hafði verið selt í brotajárn til Noregs.
Gæslunni barst sjálfvirkt neyðarkall frá skipinu kl.
13:14 í gær. Tvær norskar björgunarþyrlur voru
sendar af stað og komu þær á vettvang um kl. 16:30.
Hálftíma síðar fannst einn skipverjanna en hann
hafði komist í flotgalla. Flogið var með hann á
sjúkrahús í Álasundi og kom hann þangað um kl.
20:00. Hann er talinn við góða heilsu miðað við að-
stæður. Sökum þess að skipið hvarf snögglega úr
ferilvöktunarkerfum var talið að það hefði sokkið
hratt. Því má ætla að skipverjinn sem bjargaðist
hafi verið í sjónum í rúmar þrjár klukkustundir.
Björgunarmenn fundu einnig tóman björgunarbát
og brak úr skipinu og þótti þá ljóst að það hefði
sokkið. Það tók þyrlurnar um klukkustund að kom-
ast á slysstað og þar gátu þær leitað í 30-45 mínútur
áður en þær urðu að snúa við. Einnig tóku Orion-
leitarflugvél og nálægt skip þátt í leitinni.
Skipverjarnir þrír taldir af
Togarinn Hallgrímur SI-77 fórst í aftakaveðri utan við Noreg Þyrla bjargaði einum skipverja úr
sjónum eftir rúma þrjá tíma en hann er talinn við góða heilsu Leitinni hætt klukkan níu í gærkvöldi
Hallgrímur SI 77
Neyðarkall barst frá togaranumkl. 13.14
að íslenskum tíma.Þá var hann staddur
um 150 sjómílur NVaf Álasundi.
Skotland
Ísland
Færeyjar
Noregur
Danmörk
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Sökk Hallgrímur við bryggju á Siglufirði.
Viðbúnaður var á Vestfjörðum í nótt vegna snjóflóðahættu. Óvissuástandi
var lýst um norðanverða Vestfirði og var hættuástandi lýst í iðnaðarhverfi
á Ísafirði, í tveimur íbúðarhúsum skammt frá og á bæ í Hnífsdal.
Rafmagn fór af í Bolungarvík og á Kópaskeri, Þórshöfn, í Kelduhverfi
og Öxarfirði. Vegum var víða lokað vegna ófærðar og hættu á snjóflóðum.
Kristján Rafn Guðmundsson skíðamaður nýtti sér snjóinn á Ísafirði. »2
Snjóflóðahætta á Vestfjörðum
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Innflutningur á kjötvörum var tvö-
falt meiri á síðasta ári en árið 2010.
Verðmæti kjötútflutningsins fyrstu
ellefu mánuði ársins nam 1.152
milljónum, en nam 612 milljónum
sömu mánuði árið 2010. Á næstu
dögum verður lagt fram frumvarp á
Alþingi sem felur í sér breytta fram-
kvæmd á innflutningi búvara á lág-
markstollum. Ekkert var flutt inn af
landbúnaðarvörum á lágmarkstoll-
um á meðan Jón Bjarnason var
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra.
Mest er flutt inn af nautakjöti,
kjúklingum og svínakjöti. Talsvert
er líka flutt inn af villibráð og unn-
um kjötvörum. Innflutningur á ost-
um og unnum mjólkurvörum hefur
einnig aukist milli ára, en þó mun
minna en á kjötvörum.
Í desember bauð sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið út tollkvóta
vegna samnings við Evrópusam-
bandið um tollfrjálsan innflutning.
Niðurstaða útboðsins er að innflytj-
endur greiða um 200 milljónir fyrir
að fá að flytja inn tollfrjálst.
Ekkert hefur hins vegar verið
flutt inn síðustu ár á grundvelli
GATT-samnings um innflutning á
búvörum á lágmarkstollum. Ástæð-
an er sú að Jón Bjarnason ákvað að
innflutningurinn ætti að verða á
grundvelli verðtolla en ekki magn-
tolla. Það þýddi að tollurinn á vör-
unum varð hærri en af vörum sem
fluttar voru inn á grundvelli al-
mennra tolla. »6
Tvöfalt meiri innflutningur
Innflutningur á landbúnaðarvörum jókst mikið í fyrra og nam meira en milljarði
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Nítján stofnfjáreigendur í Spari-
sjóði Svarfdæla ætla að halda
áfram málarekstri vegna kaupa á
stofnfé. Þessir einstaklingar ann-
aðhvort staðgreiddu stofnféð á
sínum tíma eða greiddu lánin upp.
Búið er að fella niður kröfur hjá
þeim sem árið 2007 tóku lán til að
fjármagna stofnfjáraukningu. »6
Nítján ætla að halda
áfram málarekstri
–– Meira fyrir lesendur
FYLGIR MEÐ
MORGUNBLAÐINU
Í DAG
Reykjanesbraut var lokað á tólfta
tímanum í gærkvöldi. Mikið annríki
var hjá björgunarsveitum við að
aðstoða ökumenn sem komust
hvorki lönd né strönd. Sagði lög-
reglan á Suðurnesjum óvíst hvenær
opnað yrði fyrir umferð á ný. Fjöl-
margir flugfarþegar voru því
veðurtepptir í Keflavík auk þess
sem óljóst var hvort flugrútan
kæmist suðureftir í nótt með far-
þega til brottfarar.
Veðurtepptir á
Keflavíkurflugvelli