Morgunblaðið - 26.01.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Að samkomulagi varð milli ASÍ og
ríkisstjórnarinnar samhliða fram-
lengingu kjarasamninganna að nú
verði ekki látið dragast lengur að
hefja átak í baráttunni við félagsleg
undirboð í tengslum við útboð á þjón-
ustu og verklegum framkvæmdum og
kennitöluflakki. Ríkisstjórnin gaf fyr-
irheit um þetta í yfirlýsingu við gerð
kjarasamninganna í fyrra en það
gekk lítið eftir.
Þorbjörn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar, segir að nú
séu þessi mál vonandi komin í góðan
gang „en þetta fór mjög seint í gang“.
Markmiðið er að tryggja eðlilegt
samkeppnisumhverfi þegar um útboð
er að ræða og réttindi launafólks í því
sambandi og stendur m.a. til að gera
mun stífari kröfur til bjóðenda í út-
boðum á þjónustu og verklegum
framkvæmdum.
„Útboðin snúa fyrst og fremst að
opinberum aðilum. Við erum að skoða
nokkrar greinar í lögunum um opin-
ber útboð. Það liggur ekki alveg ljóst
fyrir hver niðurstaðan verður en
þetta snýr að því að auka gegnsæið,
auka kröfur til bjóðenda og reyna að
styrkja stöðu starfsmannanna svo
þeir verði ekki gerðir að gervi-
undirverktökum.
Þessari vinnu er ekki alveg lokið
en ef breyta þarf lögum teljum við að
gera eigi það á vorþinginu,“ segir
hann.
Samhliða þessu er einnig unnið að
reglum um að fram fari samræmt
mat á bjóðendum í fram-
kvæmdir og þjónustu. Þor-
björn segir að menn séu
efnislega sammála um það sem fyrir
liggur úr þeirri vinnu.
„Þar er um það að ræða að settar
verði ákveðnar skyldur á opinbera
verkkaupa um að þegar þeir fá tilboð
verða þeir að skoða miklu betur feril
þess sem býður, bæði fjárhagslega og
faglega. Það á eftir að ná samkomu-
lagi um hvaða stöðu þessar reglur fá
en við teljum að það þurfi a.m.k. að
setja reglugerð um þær,“ segir hann.
Bæta stöðu þeirra sem spila rétt
„Við viljum að reglurnar séu þann-
ig að þeir sem spila rétt séu ekki í
verri stöðu en hinir. Það er verið að
reyna að bæta samkeppnisstöðu
þeirra fyrirtækja sem vilja standa
rétt að málum og að það muni skapa
betri og öruggari skilyrði fyrir starfs-
fólk. Sama hugsun ræður ferðinni
varðandi kennitöluflakkið, þ.e. að
reynt verði að koma í veg fyrir að þeir
sem skipta í sífellu um kennitölu geti
undirboðið þá sem standa skil á sínu
og gera þetta rétt.“
Gerðar stífari kröfur og eftirlit hert
Verkkaupar fari í saumana á ferli bjóð-
enda í útboðum áður en tilboði er tekið
Í undirbúningi er að endurtaka
næsta sumar átaksverkefnið
„Leggur þú þitt af mörkum“ sem
ASÍ, Samtök atvinnulífsins og Rík-
isskattstjóri unnu saman að gegn
svartri atvinnustarfsemi og til að
uppræta undanskot, með heim-
sóknum á fjölda vinnustaða. Átakið
á seinasta ári sem stóð yfir í um
fjóra mánuði skilaði góðum
árangri. Yfir helmingur fyr-
irtækja sem heimsótt voru
fékk athugasemdir vegna
síns rekstrar og talið var
að samfélagslegt tap
vegna svartrar vinnu
væri 13,8 milljarðar
kr. á ári.
,,Það bendir allt til þess að við
höldum þessu áfram,“ segir Þor-
björn Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Samiðnar. Gefin
var út skýrsla með niðurstöð-
unum sl. haust og segir Þorbjörn
að menn séu núna að fara yfir
hana og meta að hvaða hópum og
svæðum rétt sé að beina sjónum.
,,Við gerum ráð fyrir að fara í
svipaðar ferðir í sumarbyrjun og
við fórum í fyrra,“ segir hann. Í
fyrrasumar fóru eftirlitsteymi um
og könnuðu ástandið með heim-
sóknum á 2.136 starfstöðvar um
land allt. Voru skráðir 6.167
starfsmenn í þessum heimsókn-
um.
Átaksverkefnið endurtekið
UNDIRBÚA FLEIRI HEIMSÓKNIR GEGN SVARTRI ATVINNU
Þorbjörn
Guðmundsson
FRÉTTASKÝRING
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Níu dagar eru síðan meirihlutinn í
bæjarstjórn Kópavogs féll. Prófess-
or í stjórnmálafræði segir að leysa
þurfi úr málum sem fyrst. Ekki sé
hægt að efna til kosninga. Bæjar-
fulltrúar Samfylkingarinnar og
Sjálfstæðisflokks segja engar form-
legar viðræður hafa verið, en að
ýmsar þreifingar eigi sér stað.
Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði í Háskóla
Íslands, segir þetta ástand í Kópa-
vogi ekki vera einsdæmi. „Sums
staðar er það þannig að meirihlutar
lifa ekki lengi, það er mismikill stöð-
ugleiki í þeim,“ segir Gunnar Helgi.
„Væntanlega er gamli meirihlutinn
enn við völd og verkaskiptingin sem
hann hefur ákveðið heldur sér lík-
lega þar til ný hefur verið ákveðin.“
Gunnar segir enga lagaheimild fyrir
því að efna til kosninga gangi ekki
að mynda nýjan meirihluta. „Það er
ekki hægt. Fólk verður að leysa úr
þessu. Það er ástæða fyrir því að við
höfum pólitíska stjórn á sveitar-
félögum, það þarf að taka pólitískar
ákvarðanir, þannig að til lengri tíma
er þetta slæmt.“
Engir formlegir viðræðufundir
voru haldnir í gær á milli Sjálfstæð-
isflokks og Samfylkingar, en síðar-
nefndi flokkurinn hefur lýst yfir
vilja til slíks samstarfs. Hafsteinn
Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar, segir að ákjósanlegast
væri ef allir flokkar gætu unnið
saman, eins og Hjálmar Hjálmars-
son, fulltrúi Næstbesta flokksins,
hefur lagt fram. „Það er svosem
ekkert nýtt að allir flokkar vinni
saman, það hefur gerst áður. Við
verðum að fara að finna leið til að
klára þetta og helst fyrir helgina.
Menn eru yfirleitt sammála í 90%
mála.“
Sérstakt flokkabandalag
Samfylkingin og VG hafa gefið út
yfirlýsingu um að halda áfram sam-
starfi í bæjarstjórn. Ármann Kr.
Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna,
vildi fá að hefja viðræður við Sam-
fylkinguna eina og sér í gær, en því
var hafnað. „Mér finnst mjög
sérstakt að geta ekki rætt
um að mynda meirihluta í
Kópavogi án þess að það sé
skilyrt að þessir tveir flokk-
ar séu saman, ekki síst í ljósi
þess að þeir voru ekki í neinu
bandalagi fyrir kosningar.“
Ármann segir stöðuna bæði
óvænta og flókna, en ekki sé
dagaspursmál að leysa úr
henni. „Það er mikilvægara
að vanda til verka svo hægt
sé að koma á eðlilegu
stjórnarfari á ný.“
Mikið þreifað hjá
bæjarfulltrúum
Stóru flokkarnir vilja fara að leysa úr hnútnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bæjarstjórn Meirihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs féll fyrir níu dögum. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað,
en mikið um ýmsar þreifingar, að sögn bæjarfulltrúa. Samfylking og VG hafa myndað með sér bandalag.
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Það hefur ekki nokkur einasti þing-
maður sem ég hef hitt léð máls á því.
Það er auðvitað mjög undarlegt að
forsætisráðherra skuli skella þessu
fram eins og hún hafi skipað forseta
þingsins og geti þar með dregið þá
skipun til baka eða eitthvað í þá
veruna,“ segir Gunnar Bragi
Sveinsson, þingflokksformaður
Framsóknarflokksins.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra, sagði við fjölmiðla að
loknum ríkisstjórnarfundi á þriðju-
daginn að til greina kæmi að nýr
forseti Alþingis tæki við af Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur. Þá sagði
hún ennfremur: „Staðan er þannig
að í okkar flokki þá gengust allir
ráðherrar og líka forseti undir það
að það gætu orðið breytingar á kjör-
tímabilinu. En ég lagði Ástu til sem
forseta þingsins á sínum tíma og hef
ekki enn gert neinar breytingar á
því.“
Átta hafa skrifað undir
„Þetta gengur auðvitað ekki
þannig fyrir sig enda er forseti Al-
þingis auðvitað bara kjörinn af þing-
mönnum. Forsætisráðherra hefur
ekkert meira um það mál að segja
nema bara sem eitt atkvæði í þing-
salnum,“ segir Gunnar Bragi.
Átta þingmenn hafa sett nafn sitt
á undirskriftalista þar sem farið er
fram á að Ásta Ragnheiður láti af
embætti forseta Alþingis að sögn
Birgittu Jónsdóttur, þingmanns
Hreyfingarinnar, en hún hóf undir-
skriftasöfnunina í kjölfar þess að
meirihluti Alþingis hafnaði því síð-
astliðinn föstudag að taka af dag-
skrá þingsins þingsályktunartillögu
sjálfstæðismanna um að fallið yrði
frá landsdómsákæru á hendur Geir
H. Haarde, fyrrum forsætisráð-
herra, en Ásta Ragnheiður hefur
verið harðlega gagnrýnd fyrir að
hafa samþykkt að málið skyldi sett á
dagskrána.
„Ég hef ekki nokkra trú á því að
það sé meirihluti fyrir því í þinginu
að skipta um forseta og get ekki
ímyndað mér að það fáist nema örfá
atkvæði til þess að styðja þá til-
lögu,“ segir Ragnheiður Elín Árna-
dóttir, þingflokksformaður Sjálf-
stæðisflokksins. Hún segir
ennfremur óþolandi fyrir forseta Al-
þingis að búa við óvissu um það
hvort ætlunin sé að setja hana af eða
ekki og því sé mikilvægt að fá botn í
það mál sem fyrst hvort slík tillaga
komi fram og hverjir styðji hana.
Hvorki náðist í Björn Val Gísla-
son, þingflokksformann Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
né Magnús Orra Schram, starfandi
þingflokksformann Samfylkingar-
innar, við vinnslu fréttarinnar.
Furða sig á
ummælum for-
sætisráðherra
Ræður ekki hver er forseti Alþingis
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alþingi Jóhanna Sigurðardóttir og
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
Landsdómsmálið
» Samþykkt var á Alþingi í lok
september 2010 að ákæra Geir
H. Haarde, fyrrum forsætisráð-
herra, fyrir landsdómi.
» Sjálfstæðismenn lögðu fram
þingsályktunartillögu á Alþingi
fyrir jól um að ákæran yrði
dregin til baka.
» Hafnað var með 31 atkvæði
gegn 29 að tillagan yrði tekin
af dagskrá Alþingis.
Hjálmar Hjálmarsson, bæjar-
fulltrúi Næstbesta flokksins,
óskaði eftir því að leggja fram
tillögu um breytt vinnulag í
bæjarstjórn og samstarf allra
flokka á bæjarstjórnarfundi í
fyrradag. Hjálmar fékk ekki að
setja tillöguna á dagskrá.
„Kannski hefði ég mátt und-
irbúa þetta öðruvísi. En ég legg
hana fyrir í bæjarráði á morgun
(í dag). Ég held að samhent
bæjarstjórn sé árangursríkari.
Það er ekki gott ástand í Kópa-
vogi; það ríkir ákveðinn trún-
aðarbrestur á milli gamla
meirihlutans og bæjarstjóra.
Við þurfum traustan hóp sem
styður bæjarstjórann, hann
er framkvæmda-
stjórinn. Þessi
rifrildi draga
orku úr fólki.
Pólitík þarf
ekki að
vera
svona.“
Þurfum
traustan hóp
VILL MEIRA SAMSTARF
Hjálmar
Hjálmarsson