Morgunblaðið - 26.01.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. JANÚAR 2012
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir
svokallaða Drottningarbraut er nú í
kynningu. Óánægjuraddir heyrast,
enda breytingin á bæjarmyndinni
töluverð og nú er farið að safna und-
irskriftum gegn breytingunni, eins
og var reyndar nefnt hér fyrir viku.
Sjón er sögu ríkari. Hugsanleg
breyting sést á myndunum hér til
hliðar, þar sem fyrirhuguðum hús-
um hefur verið bætt við.
Ráðið hefur verið í þrjár stöður
framkvæmdastjóra við Sjúkrahúsið
á Akureyri. Hildigunnur Svavars-
dóttir er nýr framkvæmdastjóri
hjúkrunar og bráða-, fræðslu- og
gæðasviðs, Sigurður E. Sigurðsson
framkvæmdastjóri lækninga og
handlækningasviðs og Gróa B. Jó-
hannesdóttir framkvæmdastjóri lyf-
lækningasviðs.
Sjóræningjafánum verður að
öllum líkindum flaggað vítt og breitt
um bæinn í tilefni af frumsýningu
Gulleyjunnar hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar annað kvöld. Verslunin The
Viking á Akureyri hefur gefið LA
nærri hundrað sjóræningjafána sem
fólk getur fengið gefins. Þeir verða
afhentir í Samkomuhúsinu. Fyrstur
kemur, fyrstur fær …
Tilkynnt var í vikunni að Sjall-
inn hefði hætt við að halda „Dirty
night“ sem auglýst hafði verið á
Facebook undanfarið, þar sem við-
burðurinn „stríðir mjög gegn jafn-
réttisstefnu bæjarins þar sem m.a.
er lögð áhersla á að vinna gegn
stöðluðum kynjaímyndum“, eins og
segir í tilkynningu frá Sjallanum.
Viðburðir sem „Dirty night“
hafa verið haldnir víða um land og
verið mjög umdeildir, „enda um að
ræða hugmyndafræði sem lýtur að
stöðluðum kynjaímyndum. Akur-
eyrarbær fagnar þeirri samfélags-
legu ábyrgð sem rekstraraðilar
Sjallans sýna í þessu máli“, segir í
fréttatilkynningu frá bænum.
Ástæða er til að óska for-
ráðamönnum Sjallans til hamingju
með þá ákvörðun.
Skákmót verður í Pennanum-
Eymundsson kl. 17 og opið hús hjá
Skákfélaginu í Íþróttahöllinni í
kvöld. Tilefnið er auðvitað Skák-
dagurinn.
Fastagestir í Sundlaug Akur-
eyrar sem kunna mannganginn
ættu að drífa sig snemma í laugina í
dag. Strax klukkan átta hefst sund-
skák, þar sem Akureyrarmeist-
arinn Smári Ólafsson vígir skák-
sett sem hentar vel til við þessar
aðstæður.
Söguleg stund er framundan í
Hofi; 5. febrúar verða fyrstu
píanótónleikarnir þar sem enginn
annar en Víkingur Heiðar Ólafs-
son leikur, m.a. frumflytur hann
sex píanólög eftir Jón Hlöðver Ás-
kelsson.
Skák og mát á Drottningarbrautarvæng?
Mikil breyting Svæðið sunnan við Bautann og inn fyrir umferðarmiðstöðina mun breytast verulega ef tillaga að nýju deiliskipulagi verður að veruleika.
BAKSVIÐ
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ríkið, Vestmannaeyjabær og lífeyr-
issjóðir hafa orðið ásátt um að ganga
til könnunarviðræðna um hugsan-
lega stofnun hlutafélags um smíði
nýrrar Vestmannaeyjaferju. Ög-
mundur Jónasson innanríkisráð-
herra sagði að það væri mikill áhugi
hjá öllum þessum aðilum að skoða
málin niður í kjölinn en ekkert væri
afráðið með niðurstöðuna. Gert er
ráð fyrir að ný ferja muni kosta um
fjóra milljarða. Kom þetta fram á
blaðamannafundi með fulltrúum inn-
anríkisráðuneytisins, Vestmanna-
eyjabæjar, Siglingastofnunar og
Vegagerðarinnar í gær.
Þá kom fram í máli Hermanns
Guðjónssonar siglingamálastjóra að
ljóst væri að ný ferja þyrfti að vera
grunnristari en núverandi Herjólfur
og gott þyrfti að vera að stýra henni
í miklum vindi. Ferjan þyrfti ekki að
vera jafnstór og núverandi Herjólfur
þar sem um styttri siglingaleið væri
að ræða og hægt að fara fleiri ferðir.
Bjóða út siglingar til 2015
Í máli Ögmundar kom fram að
siglingar í Landeyjahöfn yrðu veru-
legum takmörkum háðar meðan
siglt væri á núverandi skipi og smíði
nýrrar ferju því forgangsatriði.
Stefnt er að því að hún komist í
gagnið í síðasta lagi á árinu 2015.
Fram til þess tíma þarf að leysa
samgöngumálin til Eyja en siglingar
núverandi Herjólfs í Landeyjahöfn
hafa gengið brösulega eins og kunn-
ugt er.
Ákveðið hefur verið að bjóða út að
nýju siglingar til Vestmannaeyja.
Vegagerðin bauð síðast út rekstur
siglinga Herjólfs milli Vestmanna-
eyja og Þorlákshafnar árið 2005.
Samið var við Eimskip hf. sem hefur
síðan 1. janúar 2006 sinnt þessu
verkefni. Núverandi samningur
rennur út 1. maí næstkomandi og
hefur verið ákveðið að bjóða rekst-
urinn út að nýju og mun nýr samn-
ingur gilda frá 1. maí 2012 þar til ný
ferja hefur verið smíðuð og tilbúin til
að taka við af núverandi ferju. Land-
eyjahöfn og Þorlákshöfn verða báð-
ar notaðar við siglingar til Eyja til
2015 eins og verið hefur síðan Land-
eyjahöfn var opnuð sumarið 2010.
„Við ætlum að reyna að halda
áfram siglingum í Landeyjahöfn eft-
ir því sem frekast er kostur og út-
boðið tekur mið af því. Landeyjahöfn
verður áfram aðalhöfnin á þessum
millibilstíma til 2015. Við erum stað-
ráðin í að gera það allra besta fyrir
þá sem nýta sér þennan þjóðveg,“
sagði Ögmundur.
Spurður út í kostnað við nýja ferju
og framkvæmdir við Landeyjahöfn
svarar Ögmundur að þessar sam-
gönguframkvæmdir hafi ekki verið
dýrar umfram það sem gerist í öðr-
um landshlutum. „Við erum að tala
um ferju sem er ekki helmingurinn
af kostnaðinum við meðalstór jarð-
göng. Vestmannaeyingar hafa verið
afskiptir í þessu efni og þeir hafa bú-
ið við lakari samgöngur en aðrir. Við
erum að reyna að gera allt sem við
getum til að bregðast við því.“
Reyna að draga úr sandburði
Samhliða því að vinna að því að fá
nýja ferju og bjóða út rekstur Herj-
ólfs að nýju verður áfram reynt að
bæta hafnaraðstöðuna í Landeyja-
höfn. „Það er staðreynd sem verður
ekki horft framhjá að náttúruöflin
settu strik í reikninginn. Við erum
núna að skoða með hvaða hætti við
getum mætt því. Siglingastofnun
hefur unnið afar vel að þessum mál-
um og leitað ráðgjafar að utan, það
verður framhald á slíkri ráðgjafar-
vinnu,“ sagði Ögmundur.
Siglingastofnun endurskoðar nú
útreikninga á efnisburði og er
lögð áhersla á að skýra byrj-
unarörðugleika tengda sand-
burði og vinna að lausnum
til að draga úr honum með
ákveðnum aðgerðum.
Meðal annars er til skoð-
unar uppbygging á rifi sem
skýlir höfn-
inni og
dregur úr
sandburði
auk fasts
dælu-
búnaðar.
Smíði nýrrar ferju í forgang
Stofna hlutafélag um nýja Vestmannaeyjaferju sem á að vera tilbúin 2015 Ráðherra segir Eyja-
menn hafa búið við lakari samgöngur en aðrir landsmenn Siglingar til Eyja boðnar út til ársins 2015
Morgunblaðið/RAX
Landeyjahöfn Herjólfur siglir kannski sína síðustu ferð milli lands og Eyja næstkomandi vor.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, er sáttur við
framtíðarlausnina á sam-
göngum til Eyja. Hann segir þó
ófremdarástand ríkja í dag.
„Þetta er þjóðvegur sem er í
sundur. Við erum þess fullviss
að eftir 2015 verði þessir erf-
iðleikar úr sögunni en til þess
dags verða samgöngurnar ef-
laust erfiðar yfir vetrartímann.
Eitt af því sem við heimamenn
höfum viljað skoða er hvort
það séu til farþegabátar með
ótakmarkað haffæri á þessu
svæði sem gætu þá haldið
höfninni opinni jafnvel þótt
Herjólfur sé að glíma við dýp-
isvandamál,“ segir Elliði.
Með tilkomu Landeyjahafnar
jókst farþegafjöldi á milli lands
og Eyja úr 127.000, sem hann
var síðasta heila árið sem Herj-
ólfur sigldi til Þorlákshafnar, í
270.000 fyrsta árið sem hann
sigldi í Landeyjahöfn, þrátt fyr-
ir frátafir. „Það er miklu hag-
kvæmara að sigla í Land-
eyjahöfn.
Rekstrarkostnaðurinn við
25 mínútna siglingu er allt
annar en við þriggja klukku-
stunda siglingu. Það er miklu
dýrara fyrir ríkið að nota þess-
ar óhagkvæmu sam-
göngur til Þorláks-
hafnar áfram en að
byggja upp Land-
eyjahöfn.“
Þjóðvegur
í sundur
BÆJARSTJÓRINN
Elliði Vignisson